Heimilisritið - 01.02.1944, Blaðsíða 38
hin venjulega hersýning, en þá
hafði ég fengið nóg. Ég var orðinn
glorsvangur og fór niður í ágæta
krá niðri á Unter den Linden, fékk
mér þar væna máltíð og skolaði
henni niður með nógu af Deides-
heimer.
Síðar. Dosch-Fleurat sagði mér
góða sögu frá Rínarlöndum, þar
§em hann hafði verið til að athuga
hernámið. Hann segir, að kaþólsk-
ir prestar hafi mætt þýzku fvlk-
ingunum við Rínarbrýrnar og
blessað yfir þær. Schulte kardínáli
blessaði Hitler í Kölnardómkirkj-
unni fyrir það, að „hann sendir
okkur aftur herinn okkar1'. Þeir
eru auðgleymdir á fjandskap naz-
ista við kirkjuna. Dosch segir, að
Rínarvín sé ekki sparað í kvöld.
Og Frakkar ákalia Genf! Ég
hringdi í Lundúnaskrifstofuna til
þess að forvitnast um, hvað Bret-
ar ætla sér. Þeir hlógu og iásu fyr-
ir mig nokkra útdrætti úr sunnu-
dagsblöðunum. Observer Garvins
og Sunday Dispatch, sem eru eign
Rothermeres, eru hrijin af tiltæki
Hitlers. Nú halda Bretar aftur af
Frökkum eftir mætti. Utanríkis-
ráðuneytið hafði skrifstofur opnar
í alla nótt, til þess að vita um á-
hrifin í París og London, og allir
voru í sólskinsskapi. Er það furða?
Kaxlsrulte, 13. œarz.
Hitler hélt fyrstu kosningaræðu
sína hér í skotfæri við Maginot-
36
línuna. Aukalestir streymdu að
allan daginn frá borgum í grennd-
inni, flytjandi hina rétttrúuðu og
eins þá. sem skipað var að koma.
Fundurinn var haldinn í geysi-
stóru tjaldi, og loftið var svo kæf-
andi, að ég fór, áður en Hitler kom.
Eg hvarf heim í gistihús mitt, sett-
ist þar að góðum mat og Rínar-
víni með öðrum fréttamönnum og
hlýddi á ræðu Hitlers í útvarpinu.
Ekkert var nýtt í hcnni. annað en
hjartnæmt hjal um þrá hans eftir
vináttu Frakka. Vissulega langar
Rínlendinga ekki í aðra styrjöld
við Frakka, en þeir hafa sýkst af
nazistaóþrifunum við tilkomu hers-
ins. Þeir eru allt eins sefasjúkir og
aðrir Þjóðverja. Fór seinna inn á
knæpu með bílstjóra, sem hafði
ekið niér allan daginn og við feng-
um okkur nokkra snapsa. Hann
reyndist vera kommúnisti inn við
beinir, nazistahatrið kom upp í
honum og hann spáði veldi Hitlers
skjótu hruni. Það var hressandi
að finna þó einn Þjóðverja hér.
sem er andvígur stjórninni. Hann
sagði, að margir væru sama sinnis
og hann, en stundum dreg ég það
í efa.
Framhald í næsta hefti.
—★____
Sá nvgifti: — Heyrðu elskan. Siipan er
al)t of sölt.
Konan: — Já, hvað gerir það til? Saltið
er svo ódýrt að mér fannst ekkert gera
bil þó að það væri haft ríflegt.
HEIMILISRITH)