Heimilisritið - 01.02.1944, Page 43
skilja í honum, að fá sig til þess,
að láta hana bíða eftir sér milli
vonar og ótta — og það út af
svona ómerkilegu hálsbindi.
Næsta kvöld var klukkan rúm-
lega átta, þegar André birtist í
dyrunum. ísabella heilsaði honum
kuldalega.
„Nú, ég er þó ekki of seinn i
því?“ sagði hann hissa. „Já, ísa-
bella, veiztu það, að þegar maður
kemst að slíkum kjarakaupum og
ég átti kost á núna, getur maður
blátt áfram ekki verið þekktur fyr-
ir að láta þau ganga sér úr greip-
um. Geturðu ímyndað þér hvað ég
hef keypt? Fernar nærbuxur fyrir
— hvað mikið gizkarðu á? Sjötíu
franka! Það verð ég að segja að
eru reyfarakaup, ha?“
„O, það finnst mér nú ekki“,
svaraði hún hryssingslega.
Og þetta var það eina sem hún
sagði það kvöldið.
A hverju kvöldi í hálfan mánuð
komst André að kjarakaupum í
ótrúlegustu verzlunum og borgar-
hverfum Avallt kom hann heim
með eitthvað, sem hann hafði feng-
ið með „tækifærisverði“ — skó,
sem að vísu voru tveimur númer-
um of stórir, en samt .... fyrir
þetta verð .... regnkápu, sem
hann hafði keypt beint frá verk-
smiðjunni í Auberville .... tylft
af sokkum, sem maðurinn hafði
selt honum hvíslandi .... það
skyldi þó aldrei vera að þeim hefði
verið smyglað? .... hatt, göngu-
staf og svo framvegis.
Og þar sem André var langt frá
því slæmur eiginmaður, kom hann
eitt kvöldið með blússu handa.
konunni sinni, blússu sem hann
hafði fengið fyrir sama sem ekkert
í búðarholu í Rue .... bíðum við
.... já, Rue Monceau .... fjöru-
tíu franka!
„Það er langt frá því að hún sé
meira virði — ef hún er þá þess
virði!“ sagði ísabella fyrirlitlega,
þegar hún tók við gjöfinni. „Já,
misskildu mig nú ekki, ég er nátt-
úrlega þakklát þér fyrir blússuna,.
en ef öll þín kaup hafa verið jafn
..hagfelld“ og þessi, þá .... “
Hún þagnaði móðguð. Henni
fannst það í fyllsta máta lítilsvirð-
ing, að André skyldi svo mikið sem
koma til hugar, að hún gengi í ó-
dýrum og fátæklegum blússum ...
En nú fannst ‘André nóg komið
af svo góðu.
„Þakka þér fyrir, vina mín. Alit
þitt í kvöld og reyndar öll hin
kvöldin líka, hefur sannfært mig
um það, að þú hefur ekki minnstu
hugmynd um hluti, sem þú þykist
vera dómbær um. Til dæmis keypti
ég þessa blússu fyrir þrjú hundruð
og fjörutíu franka, og svipaða
sögu er að segja um allt hitt, sem
ég hef keypt undanfarin kvöld, og
sem þú hefur talað niðrandi um!
Þú hefur alveg látið mig ljúga þig
blindfulla. Þetta hafa allt verið
HEIMILISRITIÐ
41