Heimilisritið - 01.11.1955, Qupperneq 4

Heimilisritið - 01.11.1955, Qupperneq 4
Hér virtist eitthvað óvenju- legt hafa gerzt, það heyrði ég á mæli vinar míns og ég reyndi að herða gönguna heim til hans. Er þangað kom settumst við 1 notalega stóla og vinur minn tók til máls: ÞAÐ ER upphaf sögunnar, að ég fór í veiðiför út á land í á eina, sem Fossá heitir. Það er ekki mikill lax í henni, en hún er skemmtileg veiðiá með hylj- um og smáfossum. Lengst af rennur hún um há klettagljúfur, sem eru svo þröng sumstaðar, að manni virðist í fljótu bragði næsta auðvelt að stökkva yfir' djúpið. Ég kom að ánni síðla kvölds seint í ágústmánuði. Þegar ég hafði gengið spölkorn upp með henni sá ég lítið sumarhús, sem virtist vera mannlaust, eða svo áleit ég þá. Það var ekkert, sem benti til þess að þarna væri fólk — ekki svo mikið sem troðningur í grasinu. Hús þetta stóð svo sem hundrað metra frá klettagljúfr- unum. Ég gekk fram hjá því og tjaldaði skammt fyrir ofan það, þar sem ég hélt, að auðvelt yrði að komast ofan í árgljúfrin. Þeg- ar ég hafði hitað kaffi og fengið mér í svanginn var komið ná- lægt miðnætti. Ég fór þá út úr tjaldinu að gá til veðurs áður en ég skriði í svefnpokann. Það var logn og léttskýjað, en all- dimmt þar eð svo var áliðið sumars. Þegar ég hafði staðið þarna um stund og teygað kvöld- loftið þrungið sterkum ilmi síð- sumarsgróðurins, varð mér litið í áttina til sumarhússins. Það var ekki nema fimmtíu skref friá mér og gat því ekki verið um missýningu að ræða. — Fyr- ir utan dyrnar stóð kona. Hún var klædd næfurþunnum kjól svo fagur vöxtur hennar kom berlega í ljós, enda var kjóllinn hvítur og skar sig vel úr dökk- um bakgrunninum í kvöldhúm- inu. Hún stóð kyrr með hend- urnar stífar út frá mjöðmunum, og andlitinu hafði hún lyft til himins — líkt og í bæn — svo dauft aftanskinið féll á náfölt hörundið — augun voru lokuð. Ég fór að halda að hér væri um líkneskju að ræða, sem eig- andi hússins hefði sett framan við dyrnar, til að heilsa gestum, er að garði bæri. En þá sá ég, að konan tók að hreyfast. Hún gekk hadgt og gæjtile;ga í áttina til gljúfranna — stöðugt með á- sjónu mót himni og lokuð augu. Ég skildi á augabragði að kon- an gekk þarna í svefni. Hún virt- ist ekkert hikandi heldur gekk rakleitt fram á klettagnýpu, sem skagaði fram í hengiflugið. Mér 2 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.