Heimilisritið - 01.11.1955, Page 27
inn, gekk beint að umræddum
póstkassa, lagði nokkur bréf í
hann — og flýtti sér heim aftur
og inn um bakdyrnar.
Needham yfirlögregluþjónn,
sem stjórnaði rannsókn málsins,
opnaði póstkassann þegar í stað
og efst í honum fann hann tvö
frímerkt bréf, og frímerkin á
þeim voru merkt.
Það var gerður samanburður
á rithöndinni á þessum bréfum
og rógsbréfunum, sem þegar
voru í höndum lögreglunnar.
Þau virtust öll vera skrifuð með
sömu hendi. Rithandarsérfræð-
ingurinn vildi þó ekki taka af
‘skarið, en lét í það skína, að
hið innra með sér væri hann þess
alveg fullviss, að frú Hewitt
hefði skrifað öll nafnlausu bréf-
in.
— Það þýðir með öðrum orð-
um, að við höfum gripið afbrota-
manninn glóðvolgan, sagði yfir-
lögregluþjónninn. Nú getum við
látið til skarar skríða.
Hann hélt til fundar við frú
Hewitt í fylgd með sóknarprest-
inum og dr. Moberley. Þeir
sögðu henni eins og var og bættu
við, að hún gæti alveg einS vel
játað þegar í stað.
Auðvitað neitaði hún. Hún
sagðist ekki hafa skrifað þessi
tvö bréf, sem þeir lögðu á borðið
hjá henni.
— Nú, einmitt það, þeir höfðu
þó sjálfir séð hana leggja bréfin
í póstkassann. Þorði hún að neita
því, að hafa lagt tvö bréf í póst-
kassann?
— Nei, svaraði hún, en það
voru ekki þessi bréf. Annað var
til uppeldissonar hennar 1 Lond-
on og hitt til giftrar dóttur henn-
ar í Wigan.
Þessi staðhæfing var einskis
virði því að þau bréf fundust
alls ekki í póstkassanum.
Þetta var á laugardegi og
næsta mánudag fannst frú He-
witt dauð í setustofu sinni. Hún
hafði verið myrt með mörgum
höggum í höfuðið með þungum
skörungi. Læknirinn úrskurðaði
að morðið hefði verið framið síð-
degis á sunnudag eða aðfaranótt
mánudags.
Francis Quarles var í sumar-
leyfi hjá góðvini sínum í Roke-
well. Hann fékk hringingu frá
lögreglustjóranum í bænum, sem
spurði hann hvort hann vildi
ekki kynna sér málið og tala við
Abel lögregluforingja, sem hafði
rannsakað morðmálið. . . .
— Það er ekkert nýtt undir
sólinni, sagði litli lögregluforing-
inn og yppti öxlum þegar Quar-
les hafði lesið skýrsluna. — Ég
hef áður fengið svona mál til
meðferðar og það er ekki erfitt
að reikna út, hvernig þetta hef-
NÓVEMBER, 1955
25