Heimilisritið - 01.11.1955, Page 39

Heimilisritið - 01.11.1955, Page 39
ið hafði stigið upp 1 andlit hans, eins og á skólastrák. Maðurinn hennar var myndar- legur, nokkuð hæruskotinn, og hún hafði fremur litið út sem dóttir hans, en eiginkona — klædd í pels og með nýlagt hár. Lengi á eftir hafði hann forðazt miðbæinn, en svo las hann í blöðunum að þau hefðu siglt til meginlandsins, þar sem manni hennar hafði verið boðin staða. Og nú var hún komin aftur, ekkja. Maðurinn hennar hafði látizt af hjartabilun fyrir skömmu. Illugi hafði hugsað, að þó hún kæmi ekki, vildi hann fara og skoða staðinn, þar sem honum fannst hann hafa mætt örlög- um sínum. Hann vissi að það yrði alltaf Helga —. Hann leit aftur á úrið og ók af stað. Hugsanir Helgu voru rofnar af hljóði, sem gaf til kynna að bíll stöðvaðist handan við hól- inn. Hún leit hægt upp, og sá hann standa örfá skref frá sér. Hún stóð upp, og þegjandi horfð- ust þau í augu nokkur augna- blik; og svo var hún í fangi hans. „Illugi —, Illugi-------.“ Hún hvíslaði nafnið, er varir hans snurtu andlit hennar, augun, ennið og að lokum munninn. . . . Seinna, þegar hungri fyrstu kossanna var svalað, sátu þau við bálið og drukku kaffið, sem Helga hafði lagað, og hún hló að tilraunum hans til að halda bæði á bollanum og brauðsneiðinni í annarri hendi. „Notaðu báðar.“ Hann leit á hana og brosti. „Nei, ég verð að halda utan um þig til að sannfærast um, að þetta sé ekki draumur.11 Hún kyssti hann á kinnina. „Þú hefur ekkert breytzt, 111- ugi.“ „Jú það hef ég. í fyrra lét ég þig fara— og stal ári af lífi okk- ar, en núna — nú sleppi ég þér aldrei.“ Hún horfði á hann brúnum, alvarlegum augum og sagði svo: „Það var nú samt bezt að það var svona — og, Illugi, þú þarft ekki að sleppa mér aftur — ef þú vilt.“ Hann tók undir höku hennar og kyssti hana langan koss. Svo greip hann hana í fangið og bar hana inn í tjaldið, sem féll aft- ur að baki þeirra. Það húmaði smám saman, og fyrir þeim tveim, sem höfðu fundið hvort annað, var ekkert til lengur, nema mild sumarnótt- in, sem vafði ástir þeirra hlýjum feldi sínum. NÓVEMBER, 1955 37

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.