Heimilisritið - 01.11.1955, Blaðsíða 67
SPURNINGAR OG SVÖR
(Framhald af 2. kápustðu).
Sv.: Já, þessi samskattur á hjón kem-
ur vissulega illa niður á mörgum. Hann
veldur því, að margir lifa í „hneykslan-
legri sambúð", eins og kaliað var — gift-
ast ekki löglega — ef bæði maðurinn og
konan vinna utan heimilisins. Og auk
þess kemur þetta skattafyrirkomulag í
veg fyrir að margar giftar konur vinni
úti, þótt alls staðar sé eftirspum eftir
vinnukrafti þeirra. En nú mun vera í
undirbúningi löggjöf, sem væntanlega
ræður bót á þessu. — Ef þú hefur sanna
löngun til að taka að þér starfið skalm
gera það. Annars gætirðu reynt að vinna
hálfan daginn. Það hefur reynzt ágæt
lausn á vandamálinu fyrir margar giftar
konur.
HANN VILL EKKI KVÆNAST
Svar til „S. K.": — Ég get sagt þér
það í fullri alvöru, að þegar karlmaður
afsakar það við stúlku, að hann kvæn-
ist henni ekki, þá er sannleikurinn sá,
að hann elskar hana ekki, eða hann hef-
ur leynilega og afar mikilvæga ástæðu
til þess að ganga ekki að eiga hana. —
Þegar karlmaður elskar konu, biður hann
hennar, jafnvel þótt hann þurfi að fá
lán til að geta keypt hjúskaparvottorðið.
Ekkert skiptir máli nema að geta verið
með stúlkunni, sem hann þráir. — Sú
stúlka, sem neitar að hafa stefnumót
við aðra, ef pilturinn hennar stingur upp
á því, skilur ekki undirstöðuatriði til-
finningalífsins í það heila tekið. Ást-
fanginn maður er afbrýðisamur, hann
þolir ekki að hugsa sér stúlkuna, sem
hann elskar, í faðmi annars manns. —
Farðu fyrir alla muni að orðum þessa
manns og hafðu stefnumót við aðra pilta.
Þá verðurðu annað hvort hrifin af ein-
hverjum öðrum, sem er betur við þitt
hæfi, eða þessi maður áttar sig á því að
hann elskar þig og vill eiga þig þrátt
fyrir allt.
SKAPAÐU ÞÉR SJÁLSTÆÐAN
PERSÖNULEIKA
Svar til ,J. /.“: — I fyrsta lagi finnst
mér þú ættir ekki að þola líkamlegt of-
beldi af föður þínum. Tuttugu og
tveggja ára gömul stúlka er sjálfri sér
ráðandi og óháð foreldravaldi. Þú ættir
að flytja að heiman og fá þér atvinnu. —
Varðandi ástamál þín vil ég segja þetta:
Hinn maðurinn var sá fyrsti, sem þú
hafðir stefnumót við, og þessi maður er
annar í röðinni. Þar sem þér geðjaðist
ekki að þeim fyrri, var ekkert líklegra en
að þú yrðir ástfangin af næsta pilti, sem
sýndi þér umhyggju og eftirtekt. I þín-
um sporum myndi ég reyna að skapa
mér atvinnu, sem gerði þig öðrum ó-
háða, og kaupa mér smekkleg föt. Ef
þú einbeitir þér að því að skapa þér sjálf-
stæðan persónuleika, muntu síður verða
háð rómantískum tilfinningum þínum.
Þú finnur þá rétta svarið í hjarta þínu.
SVÖR TIL ÝMSRA
Til „Btnu— Það er fyrst og fremst
sjálfsagt fyrir þig að fara á fótsnyrt-
ingastofu, en líklega ættirðu öllu frem-
ur að leita til læknis því þetta getur
verið eitthvað alvarlegt.
Til „Ó. /. M.”: — Það er reynandi
fyrir þig að skrifa þeim sjálfum eða
fyrirtækjunum, sem gefa út plötur, sem
þau syngja á, þótt ég efist um að það
beri árangur.
Eva Adams
HEIMILISRITIÐ kemur út mánaðarlega. — Útgáfa og afgreiðsla: Helgafell,
Veghúsastíg 7, Reykjavík, sími 6837. ■— Ritstjóri: Geir Gunnarsson, Baldursgötu 9,
Reykjavík, sími 5314. — Prentsmiðja: Víkingsprent, Hverfisgötu 78, sími 2864. —
Verð hvers heftis er 10 krónur.