Fréttatíminn - 13.12.2013, Qupperneq 56
E ftirvænting og gleði skín einatt úr augum íslenskra barna þegar jólasveinar birtast hver af öðrum í
borg og bæ í desember. Oft á tíðum
eru þó skelfing og grátur viðbrögð
þeirra yngstu, sem grúfa sig þá
ofan í hálsakot og skjól hinna full
orðnu, því þessir karlar eru ekki
alltaf góðsemdin uppmáluð og
ásýnd þeirra ófrýnileg. Kannski
skynja þau börn hið rétta eðli þess
ara íslensku hulduvera, því þannig
eru þeir Grýlusynir gerðir – aldir
á tröllamjólk, þjófóttir og stríðnir
óknyttadrengir sem ekki hika við að
ræna mat frá fátækum heimilum eða
hrifsa kerti úr höndum lítilla barna.
Framhald á næstu opnu
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P I S
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P
I S
H E L G A R B L A Ð
H E L G A R B L A Ð
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
ÓKEYPIS
ÓKEYPI
S
Heilsan á nýju ári
Fréttatíminn gefur út sérblað um HEILSU
föstudaginn 3.janúar 2014.
Ef þú hefur áhuga á að kynna
starfsemi þína eða kaupa
auglýsingu í þessu spennandi
blaði hafðu þá samband við
auglýsingadeild Fréttatímans
auglysingar@frettatiminn.is
eða í síma 531-3310.
Þessir sveinar,
hverjir eru þeir?
Jólin koma hefur í áratugi verið ein vinsælasta ljóðabók
þjóðarinnar og endurprentuð 27 sinnum. Ekki er úr vegi núna
í desember að glugga aðeins í vinsælasta efni bókarinnar,
jólasveinana sjálfa, og velta fyrir sér eðli þeirra og uppruna.
Kannski
skynja þau
börn þá hið
rétta eðli
þessara
íslensku
hulduvera,
því þannig
eru þeir
Grýlusynir
gerðir – aldir
á tröllamjólk,
þjófóttir
og stríðnir
óknytta-
drengir.
Þótt þeir virðist „óhræddir við að
hrekkja fólk og trufla þess heimilisfrið“
vilja þeir helst fela sig fyrir okkur, undir
rúmi eða uppi í rjáfri og laumast síðan
þegar enginn sér til, skella hurðum,
gægjast á glugga eða krækja sér í æti
legan bita.
Uppruni jólasveina
Ómögulegt er að segja til um hvenær
jólasveinar stungu fyrst upp kollinum á
Íslandi en fyrst er getið um þá í rituðum
heimildum í Grýlukvæði séra Stefáns
Ólafssonar í Vallanesi frá 17. öld. Þar er
þeim lýst sem jötnum á hæð, illa innrætt
um og ungbörnum skæðir.
Jólasveinar hafa fundist í öllum lands
fjórðungum, bera mismunandi nöfn en
hafa flestir ef ekki allir sama hlutverk; að
hræða lítil börn. Þótti dönskum stjórn
völdum þetta ganga svo langt á miðri
átjándu öld að í tilskipun um húsaga til
handa Íslendingum er bannað að hræða
börn með „den såkaldte julesvend eller
spögelser“ en í íslenska textanum er
bannað að hræða börn með jólasveinum
eður vofum. Lítið var þó hlustað á Dani
og jólasveinar áfram notaðir til að hræða
börn til hlýðni á íslenskum heimilum.
Þegar leið fram á nítjándu öldina fer
loks að komast skipan á hinn mikla
fjölda jólasveina sem finnst um landið.
Í þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1864
koma fram tvær hugmyndir, önnur styðst
við þuluna Jólasveinar einn og átta og
vísuna Jólasveinar ganga um gólf en í
henni segir að níu nóttum fyrir jól fari
jólasveinar að koma til manna. Hin hug
myndin um að þeir séu þrettán byggist á
því að sá síðasti fari á þrettándanum. Jón
Árnason lætur fylgja með þrettán nöfn
sem eru Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur,
Þvörusleikir, Pottasleikir, Askasleikir,
Faldafeykir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir,
Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur og
Kertasníkir.
Jólin koma
Þessi síðari hugmynd festir sig síðan
varanlega í sessi meðal þjóðarinnar þeg
ar Jóhannes úr Kötlum gefur út bókina
Jólin koma, árið 1932, með teikningum
Tryggva Magnússonar listmálara. Jó
hannes og Tryggvi komu báðir vestan úr
Dölum þar sem rík jólasveinahefð hafði
ríkt um aldir. Hér eru notuð nánast sömu
nöfn og birtust í þjóðsögunum 70 árum
áður. Jóhannes skiptir þó út Faldafeyki
fyrir Hurðaskelli og notar afbrigðin
Pottaskefil og Skyrjarm fyrir Pottasleiki
og Skyrgám.
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur
Matgoggar
Askasleikir
Bjúgnakrækir
Flautaþyrill
Flotgleypir
Flotnös
Flotsleikir
Flotsokka
Flórsleikir
Froðusleikir
Kertasleikir
Kertasníkir
Ketkrókur
Kleinusníkir
Lummusníkir
Pottaskefill
Pottasleikir
Pottskerfi.
Pönnusleikir
Reykjasvelgur
Rjómasleikir
Skefill
Skófnasleikir
Skyrgámur
Skyrjarmur
Smjörhákur
Syrjusleikir
Þvörusleikir
HrEkkjalóMar
Bandaleysir
Faldafeykir
Gangagægir
Gáttaþefur
Gluggagægir
Hurðaskellir
Lunguslettir
Stigaflækir
Þambarskelfir
Þvengjaleysir
UMHvErfis-
fyrirbæri
Bitahængir
Fannafeykir
Giljagaur
Hlöðustrangi
Klettaskora
Lampaskuggi
Lækjaræsir
Moðbingur
Móamangi
Pönnuskuggi
Stekkjarstaur
Stúfur?
Svartiljótur
Svellabrjótur
strandaþUla
Tífill/Tífall/
Tígull
Tútur
Baggi/
Baggalútur
Lútur/Hnútur
Rauður/ Refur
Redda
Sledda
Bjálminn/
Bjálfinn sjálfur
Bjálmans/
Bjálfans barnið
LitliPungur
Örvadrumbur
LitliDrumbur
EfriDrumbur/
StóriDrumbur
Drumbur fyrir
alla.
Utan flokka
Kattarvali
Stúfur?
Mannanöfn
Guttormur
Steingrímur
Þorlákur
Nöfn
jólasveina
Fram kemur í Sögu
daganna eftir Árna
Björnsson þjóðhátta-
fræðing að allt að 80
jólasveinanöfn eða
afbrigði þeirra hafi
fundist á Íslandi. Eyja-
fjarðarsvæðið og Dalir
skera sig þó úr fyrir
ríka jólasveinahefð og
nöfn þeirra jólasveina
sem við þekkjum í dag
eru flest ættuð þaðan.
Í erindi sem flutt var
á fundi í Nafnfræði-
félaginu í Norræna
húsinu 6. desember
2003 flokkar Árni
jólasveinana niður
eftir hlutverkum.
56 jólasveinar Helgin 13.-15. desember 2013