Fréttatíminn - 13.12.2013, Qupperneq 74
74 bílar Helgin 13.-15. desember 2013
Škoda Nýr valkostur – rapid spaceback
GeNeral Motors saMeiNar chevrolet oG opel í evrópu uNdir Merki opel
Bíldshöfða 12 - 110 Rvík - 5771515 - www.skorri.is
Tilvalin jólagjöf
Hleður og vaktar rafgeyminn þinn í vetur.
15%
Jólaafsláttur af
þessum frábæru
hleðslutækjum
Bílaframleiðandinn General Mot-
ors hefur tilkynnt að hætt verði að
bjóða bíla undir vörumerki Chevr-
olet í Evrópu frá og með ársbyrjun
2016. GM hyggst sameina Chevr-
olet og Opel undir Opel vörumerk-
inu í Evrópu og einfalda þar með
markaðssókn sína í Evrópu, að því
er fram kemur á síðu Bílabúðar
Benna, umboðsaðila Chevrolet hér
á landi.
Bílabúð Benna hefur umboð
fyrir Chevrolet hér á landi. Nýir
Chevrolet bílar verða áfram til sölu
hjá fyrirtækinu næstu tvö ár, að
því er fram kemur á síðunni. „Þrátt
fyrir að sölu þeirra verði hætt 2016
helst fullur stuðningur í vara-
hlutum, þjónustu og ábyrgðum hjá
Bílabúð Benna næstu 20 ár. Mark-
mið GM og Bílabúðar Benna verð-
ur ekki síst að tryggja hámarks
endursöluverð Chevrolet bíla og
snurðulaust viðhald þeirra.
Chevrolet hefur notið mikilla
vinsælda hér á landi undanfarin
ár og er með um 9% markaðs-
hlutdeild. Þrátt fyrir að sala á
Chevrolet hætti í Evrópu eftir tvö
ár verður tegundin í boði á öllum
öðrum mörkuðum. Chevrolet er
stærsta vörumerki GM á heims-
vísu og mest selda vörumerki
þess í Bandaríkjunum,“ segir enn
fremur.
„Bílabúð Benna hefur undan-
farna mánuði átt í viðræðum við
bílaframleiðendur um að stækka
vörulínu sína og er spennandi
frétta að vænta af þeim viðræðum
fyrir jól. Þessi óvænta ákvörðun
General Motors mun því ekki hafa
teljandi áhrif á rekstur fyrirtækis-
ins,“ segir Benedikt Eyjólfsson,
forstjóri fyrirtækisins.
Chevrolet af Evrópumarkaði í ársbyrjun 2016
Chevrolet Spark
smábíllinn hefur
notið vinsælda á ís-
lenskum markaði.
bílar toyota JeppiNN viNsæli
Land Cruiser 150 kynntur
með andlitslyftingu
Toyota í Garðabæ kynnir nú Land Cruiser 150 jeppann með andlitslyftingu 2014
árgerðarinnar. Breytingin er mest á grilli og framljósum og einnig á afturhlera. Þá
eru nokkrar breytingar á innréttingu. Vélin er sú sama, 3.0 D-4D og fæst jeppinn
beinskiptur 6 gíra eða með 5 þrepa sjálfskiptingu. Land Cruiser er boðinn í þremur
útgáfum, LX, GX og VX. Verðið er frá tæpum 10 milljónum króna til um 14,7
milljóna króna. Þá fæst VX gerðin einnig með bensínvél.
Toyota Land Cruiser hefur lengi verið vinsælasti jeppinn hér á landi og þykir henta
íslenskum aðstæðum afar vel.
Breytingarnar eru mestar á grilli og framljósum, auk afturhlerans.
Sportlegur bíll í
millistærðarflokki
M eð Škoda Rapid Spaceback, sem Hekla kynnti á dögunum, kemur nýr valkostur fram á sjónarsviðið, mitt á milli Škoda Fabia
og Octavia. „Í fyrsta sinn býður Škoda upp á minni
bíl sem sameinar góða, hagnýta eiginleika Škoda og
hönnun hlaðbaks,“ segir á síðu umboðsins. Líkt og
aðrir bílar frá Škoda býður Spaceback upp á mikið
pláss, fjölmargar snjallar hugmyndir, hámarksöryggi,
litla eldsneytiseyðslu og hagstætt verð.
„Það fyrsta sem vekur athygli,“ segir enn fremur,
„eru hreinar útlitslínur Škoda Rapid Spaceback.
Útlitið er sportlegt og þessi bíll virkar bæði sportlegri
og lengri en hefðbundnar útgáfur hlaðbaks... Frá hlið
eru það hreinar línur, langt hjólhaf (2602 mm) og
stórar hliðarrúður sem vekja athygli. Gluggapóstar
eru grannir og þriðji glugginn aftast undirstrikar
hönnunina enn betur. Stórar hliðarrúðurnar undir-
strika léttleika og gott útsýni úr innanrými bílsins.
Rapid Spaceback er einnig hægt að fá með glerþaki
sem nær frá framrúðu aftur að afturglugganum.“
Rapid Spaceback er fáanlegur á Íslandi í tveimur
útgáfum: Ambition og Elegance. Til viðbótar eru þrjá
litasamsetningar í boði fyrir mælaborð og hurða-
spjöld: Svart/svart, svart/grátt og svart/drapplitað.
Líkt og í öðrum bílum frá Škoda er mikið lagt upp
úr öryggi í Rapid Spaceback. Umfangsmikill öryggis-
pakki verndar farþegana komi til óhapps.
Hinn nýi Škoda Rapid Spaceback er fáanlegur
með fjórum bensínvélum og tveimur dísilvélum. Afl
vélanna er frá 75 hestöflum (55kW) til 122 hestafla
(90 kW). „Grunngerðin er þriggja strokka, 1,2 lítra
og 75 hö, með eyðslu sem nemur 5,8 l/100 km með
handskiptum fimm gíra kassa. 1,2 lítra TSI vélin
er 86 hö og er einnig með fimm gíra handskiptum
gírkassa. Eyðslan í blönduðum akstri er 5,1 l/100
km. Endurbætt útgáfa af þessari 1,2 lítra TSI vél
er 105 hestöfl og þessi vél er fáanleg með hand-
skiptum sex gíra kassa. Aflmesta vélin í þessum
nýja Spaceback er 122 hestafla, 1,4 lítra TSI. Þessi
vél er eingöngu í boði með sjö gíra sjálfskiptum
gírkassa með tveimur kúplingum. Kaupendur
Rapid Spaceback geta valið á milli tveggja 1,6 lítra
dísilvéla með samrásarinnsprautun eldsneytis. Ný
1,6 lítra, 90 hestafla TDI. Þessa vél er hægt að fá
annað hvort með handskiptum fimm gíra gírkassa
eða sjö gíra sjálfskiptum gírkassa með tveimur
kúplingum. Eyðslan á þessari vél er aðeins 4,4
l/100 km. Aflmesta dísilvélin er síðan 1,6 TDI, 105
hestöfl.“
Sportlegt þriggja arma stýrishjól, sportlegar klæðningar og
ný sætaáklæði einkenna innanrýmið.
Stærð Škoda Rapid Spaceback er mitt á milli Fabia og Octavia.