Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Síða 36

Fréttatíminn - 07.09.2012, Síða 36
F ÍT O N / S ÍA F I0 4 3 2 5 9 568 8000 | borgarleikhus.is Mæð ginin Helg a Bry ndís og Ni lli 4 sýn ingar að eig in val i Áskri ftar- kortið okka r M elissa skiptir Grimmdarlífi í tvo hluta. Í fyrri hlutanum segir hún sögu Rögnu Estherar sem skáldsögu þar sem hún getur í eyðurnar sem vitaskuld eru margar þegar ömurlegt líf Rögnu Estherar með Larry Gavin er annars vegar. Í seinni hluta bókarinnar rekur Melissa sína eigin sögu og gengur að því sem vísu að Esther hljóti að hafa þolað eitthvað álíka og Melissa, móðir hennar og fjögur systkini bjuggu við með hinum grimma föður. „Fyrri hlutinn fjallar um Esther en ég byggi á minni eigin upplifun með föður mínum,“ segir Melissa sem er 57 ára gömul og hefur allt sitt líf þjáðst í skugga ofbeld- isverka föður síns. „Ég veit að hún hlýtur að hafa þolað eitthvað svipað og við vegna þess að hlébarði breytir ekki blettum sínum,“ segir Melissa og bætir við að óeðli föðurins hafi verið slíkt að hún hafi aldrei heyrt um annað eins, hvorki fyrr né síðar. „Eftir að hann hafði lokið sér af með Esther hélt hann áfram með mína fjölskyldu og síðan aðra fjölskyldu á eftir okkur.“ Pyntingar og kynferðisleg brenglun Larry Gavin fékk útrás fyrir sjúklegan kynferðislegan kvalalosta sinn á Melissu, móður hennar og systrum og í bókinni lýsir Melissa barsmíðum, pyntingum, nauðgunum og fullkomnu siðleysi. Larry var 27 ára þegar Esther hvarf og aðeins mánuði eftir að skilnaður þeirra gekk í gegn var hann búinn að læsa klónum í móður Melissu, Patsy Huson. Þau eignuðust fimm börn sem öll máttu þola vítisvist á heimili fjölskyldunn- ar árum saman. Melissa var nítján ára og gekk með sitt fyrsta barn þegar hún sleit öllum samskiptum við föður sinn. Í bók- inni segir hún frá því þegar hún notaði þetta tækifæri til þess að spyrja föður sinn hreint út hvers vegna hann hefði verið svona vondur við börnin sín. „Þið urðuð að læra að halda fjölskylduhefð- unum við. Mér bar skilda til að kenna ykkur lexíu lífsins.“ Engar afsakanir og engin tár, ekkert. Sið- blindur maðurinn iðraðist einskis. Lífslexíurnar gengu út á að vígja dæturnar í full- orðinna manna tölu með því að nauðga þeim en Larry virðist fyrst og fremst hafa litið á dætur sínar sem kyn- lífsþræla sína og hafði lítinn áhuga á því að eignast syni þar sem hann hafði ekkert gagn af þeim. Melissa var sjö ára þegar faðir hennar neyddi móður hennar til þess að hafa við sig samfarir að barninu aðsjáandi. „Hann beitti hana fantabrögðum, hún veinaði af sársauka og þannig lærði ég við hverju mætti búast af kynlífi.“ Melissa var átta ára þegar faðir hennar byrjaði að mis- nota hana og eldri systir hennar var á sama aldri þegar hann byrjaði að svívirða hana. Faðir þeirra skipaði eldri dótturinni að kenna litlu systur sinni það sem hann ætlaðist til þess af þeim og hvaða „leikföng“ þær ættu að nota til þess að hann gæti fengið kynferðislega full- nægingu. „Ég er með alls konar heimildir og skjalfest gögn. Meðal annars um áverkana á okkur systkinunum. Brunasár eftir sígarettur, ummerki um endaþarms- mök, allan þennan kynferðislega sadisma og það sem fjölskyldan þurfti að ganga í gegnum. Auk þess sem ég upplifði þetta allt saman sjálf. Hann misnotaði eldri systur mína, sjálfa mig og hann byrjaði á yngri systur minni. Hann barði bræður mína og misþyrmdi þeim. Móðir mín gekk með tvíbura og hann barði hana svo illa að hún missti fóstrin. Þeir fæddust andvana þegar hún var gengin sjö mánuði. Ofbeldið í honum og illskan voru slík að ég veit að Esther hefur gengið í gegnum þennan sama hrylling á undan okkur. Seinni hluti bókarinnar er sannleikurinn en þótt ég skrifi sögu Estherar sem skáldskap þá veit ég að reynsla mín og Estherar hefur verið jafn hryllileg.“ Fær um að drepa Eftir að ættingjar Rögnu Estherar á Íslandi komust í samband við Melissu ákvað hún að gera allt sem hún gæti til þess að komast að því hvað varð um þessa fyrstu eiginkonu föður síns sem hún hafði ekki haft hugmynd um að hefði verið til. „Fjölskylda Estherar á Íslandi sendi mér síðan papp- íra og þegar ég fékk skilnaðargögnin og skýrslur í hendurnar hryllti mig við að vita að einhver annar hefði gengið í gegnum það sama og við. Ég sagði þeim að ég vissi ekkert um Esther og hefði aldrei heyrt á hana minnst en ég myndi spyrjast fyrir hjá móðursystrum mínum. Þær sögðu mér að þær hefðu heyrt Esther nefnda á nafn fyrir mörgum, mörgum árum. Að pabbi hefði sagst hafa verið kvæntur áður og að sú eiginkona hans hefði verið vændiskona.“ Og í ljósi biturrar reynslu Melissu og hennar nán- ustu af Larry töldu hún og frænkur hennar líklegt að hann hefði myrt Esther. „Við öll sem vissum hvað pabbi var fær um að beita miklu og grófu ofbeldi töldum okk- ur vita hvað Esther hefði þurft að þola í hjónabandinu og við drógum þá ályktun að hann hefði banað henni. Grimmdarlíf Rögnu Estherar Ragna Esther Sigurðardóttir var nítján ára gömul þegar hún flutti frá Reykjavík, nýgift dátanum Emerson Lawrence Gavin. Nokkrum árum síðar hvarf hún sporlaust. Gögn sem staðfestu að Gavin beitti hana grófu ofbeldi renndu stoðum undir grun ættingja Est- herar á Íslandi um að hann hefði myrt hana. Þegar Melissa Gavin, dóttir Lawrence af seinna hjónabandi, kom að leitinni að Rögnu Esther kom í ljós að líklega hefur Ragna Esther upplifað meiri viðbjóð en nokkurn hafði órað fyrir en Melissa lýsir föður sínum sem djöfli í mannsmynd. Hún segir sögu sína og Estherar í bókinni Grimmdarlíf og dregur hvergi undan þegar kemur að kynferðislegum sadisma og tryllingi föður síns. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Vongóð stríðsbrúðurin, Ragna Esther, við komuna til Portland í Oregon 16. febrúar 1946. Eiginmaðurinn Larry átti fljótlega eftir að sýna á sér aðra og skelfilegri hlið en hann gerði í Reykja- vík. Með þeim á myndinni er móðir Larrys sem Melissa telur að hafi tekið virkan þátt í ofbeldinu gegn Esther. Börn Estherar og Larrys, Raymond og Donita, á heimili fósturforeldra þeirra nokkrum árum eftir að Esther hvarf sporlaust. Ragna með Raymond litla. Framhald á næstu opnu 36 úttekt Helgin 7.-9. september 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.