Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 43
MÁNUDAGUR:
12.05-12.55 AA-fundur (opinn)
19.00-20.00 OA-fundur
(fyrsta mánudag í mánuði)
19.30-20.30 AA-fundur (FÍH deild)
ÞRIÐJUDAGUR:
18.00-19.00 GA-fundur
20.00-21.00 AA-fundur
(kvennafundur)
20.00-21.00 Al-Anon-fundur
MIÐVIKUDAGUR:
12.05-12.55 AA-fundur
(kvennafundur)
17.05-18.00 LSR-fundur
20.00-21.00 Kjarnakonur SÁÁ
FIMMTUDAGUR:
12.05-12.55 AA-fundur
20.30-21.30 AA-fundur (víkingar)
20.30-21.30 AA-fundur
(pólskur fundur)
20.15-21.15 OA-fundur
FÖSTUDAGUR:
18.00-19.00 AA-fundur
(kvennafundur)
18.00-19.00 LSR-fundur
SUNNUDAGUR
10.30-11.30 AA-fundur (opinn)
16.30-18.00 AA-fundur
(sögufundur)
Við Sveinbjörn, „Terrordisco“, vorum bæði að spila á Edrúhá-tíðinni að Laugalandi um versl-
unarmannahelgina en upplifun mín á
þeirri samkomu var öðruvísi en maður
á að venjast og töluvert skemmtilegri,“
segir plötusnúðurinn Natalie G. Gunn-
arsdóttir, sem stendur að svokölluðum
Danz Eleganz kvöldum í Edrúhöllinni í
Von, Efstaleiti. Hún ríður á vaðið í kvöld
klukkan 22 og svo mánaðarlega.
Hugmyndin kviknaði sem sagt á
Edrúhátíðinni og segir Natalie að það
sé fáránlegt að það sé ekki valmögu-
leiki að fara á svona reif, eða hvað á að
kalla það, sem er þá sett upp sem alvöru
skemmtun án áfengis- og vímuefna.
Minnist Templarahallarinnar
„Ég man sjálf eftir Templarahöllinni
þar sem fólk kom saman og skemmti
sér án áfengis og þar steig ég mín
fyrstu skref í skemmtanabransanum
fimm ára gömul með afa mínum.
Þannig að mín fyrsta upplifun af dans-
skemmtun var án áfengis. Draumurinn
er að sjálfsögðu að endurvekja gömlu
Templarahöllina og það gerist kannski
síðar en núna ætlum við allavega að sjá
hvort fólk er til í þetta og tékka á eftir-
spurninni. Góðir hlutir gerast hægt og
mér finnst mikilvægt að svona skemmt-
un sé í boði. Þeir sem ég hef talað við
eru mjög spenntir fyrir þessu fram-
taki og finnst þetta góður valkostur.
Mér finnst líka áríðandi að efla félagslíf
innan SÁÁ fyrir ungt fólk og sýna fram
á og sanna að það er lang skemmtileg-
ast að skemmta sér á heilbrigðan máta
án vímuefna.“
Silkimjúk og smekkvís gleði
Natalie er að vonum mjög spennt fyrir
Danz Eleganz í kvöld og lofar góðri
skemmtun. „Danz Eleganz verður í
boði í hverjum mánuði en í kvöld verð-
um við fjögur saman: Ég, Shaft, Terror-
disco og DJ. Exos. Við munum brúa bil
danstónlistarstefnanna frá a til ö nema
trans. Ég held að trans verði skilinn
eftir heima. Ég verð með silkimjúka
blöndu af gamalli hústónlist og teknói.
Shaft spilar hústónlist, Exos er vel
þekktur teknókóngur Íslands og Ter-
rordisco býður upp á smekkvísa gleði
og almennt stuð með því sem hann kýs
að kalla raðhús,“ segir Natalie í góðum
gír fyrir kvöldið.
12 sporafundir í Edrúhöllinni
Reif í Edrúhöllinni í kvöld
Í Edrúhöllinni í Von verður brjálað stuð í hverjum mánuði en um er að ræða svokölluð Danz Eleganz kvöld þar sem ungt fólk kemur
saman, edrú, og dansar við dynjandi tóna færustu plötusnúða landsins.
Terror Disco og
Yamaho munu ríða á
vaðið á fyrsta Danz
Eleganz kvöldinu.
s HVAÐ: Danz Eleganz
P HVAR: Von Efstaleiti 7
æ HVENÆR: Í kvöld frá 22 – 3 og svo mánaðarlega
m FYRIR HVERN: Allir velkomnir
L NÁNAR: www.saa.is
Í Von ættu allir
að geta fundið sér
fund við hæfi.
LJ
Ó
SM
YN
D
: H
AR
I
3 2012 SEPTEMBER