Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 74
Helgin 7.-9. september 201258 tíska
Hjarðhegðun á
litla Íslandi
Upp á síðkastið hafa verið miklar deilur um sí-
vinsælu diskó-buxurnar sem hafa tröllriðið tísku
kvenna hér á landi. Buxurnar hafa verið ein
mest selda flíkin hjá bandarísku versluninni Am-
erican Apperal síðustu ár, en eru fyrst núna að
ná brjóta sér leið inn í hug og hjörtu kvenna, eft-
ir að hafa náð mestu vinsældunum fyrir tveimur
árum erlendis. Nú virðist þetta vera skylduflík í
fataskápinn og liggur við að hver einasta stelpa á
landinu eigi minnsta kosti eitt par.
Diskó-buxurnar kynþokkafullu eru þó bara
enn eitt dæmið um hjarðhegðun í okkar litla
samfélagi þegar kemur að tísku og trendum.
Lita skórnir frá Jeffrey Cambell, chocker háls-
menin og skyrtuskraut fylgja þar fast á eftir
og er þetta allt fatnaður sem við vitum að hittir
beint í mark ef við erum í óvissu hverju á að
klæðast.
Þessi vinsælu tískutrend sem við erum öll
svo örugg með að klæðast, koma oftast frá
nágrannalöndunum, sem að okkar mati eru
með puttann á púlsinum. Frumkvöðlarnir hér
á landi plokka út vinsælustu trendin, hjörðin
eltir og á endanum göngum við langt yfir eðlileg
mörk í ofnotkun á þessum nýju trendum. Það er
ástæðan fyrir því að trendin staldra styttra við
hér en annarsstaðar.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Fatauppboð Kim Kardashian stendur
fram á sunnudag. Lítill hluti ágóðans
fer til góðgerðarstarfsemi.
Ágóðinn fer mestur
í vasa Kim
Uppboð raunveruleikastjörnunnar Kim
Kardashian á gömlum flíkum er hafið á
söluvefnum eBay og mun það standa fram á
sunnudag. Fötin koma úr fataskáp stjörnunnar
sem nýlega var tekinn í gegn af kærastanum
hennar, Kanye West. Að mestu er þetta glamúr
fatnaður sem tilheyrir fortíðinni. Það er gríðar-
legt magn af fötum sem Kim hefur sett á eBay
en einnig má finna notaðan fatnað frá systur
hennar, Kourtney, og manninum hennar, Scott
Disick. Ágóði uppboðsins mun þó ekki allur
renna til hjálparsjóðs, eins og Kim lét hafa eftir
sér í vikunni á samskiptavefunum Twitter. Sjálf
mun hún hirða 90 prósent ágóðans og senda
tíu prósent til hjálparsjóðs kirkjunnar.
Louboutin vann málið um
rauða sólann
Síðastliðna sextán mánuði hefur skóhönnuðurinn Christian
Louboutin staðið í harðri deilu við tískuhúsið Yves Saint Laurent
um rauða sólann, en Louboutin kærði fyrirtækið fyrir að nota
sólann á sína hönnun. Baráttunni lauk
loksins á miðvikudaginn þar sem
dómur féll Louboutin í hag. Nú er
rauði sólinn löglega hans vöru-
merki, svo lengi sem skórinn
sjálfur er ekki rauður eins
og sólinn. Skóhönnuðurinn
segist þó ekki vera fylli-
lega ánægður með
þessa ákvörðun
dómarans en sé
orðinn þreyttur á
þessum deilum og
ætli að láta þennan
dóm duga.
Lana valin kona
ársins
Hin árlega verðlaunahátíð karla-
tímaritsins GQ var haldin hátíðleg
á þriðjudaginn þar sem breska
söngkonan Lana Del Rey var valin
kona ársins af lesendum blaðsins.
Lana tók þakklát við verðlaun-
unum í rjómalituðum kjól frá
ástralska hönnuðinum Wayne
Cooper sem hún paraði við hand-
tösku frá Salvatore Gerragamo.
Lana var eina konan sem hlaut
verðlaun þetta kvöldið en Robbie
Williams, Tom Jones og Sacha
Baron Cohen voru meðal þeirra
sem unnu til verðlauna.
Lana Del Rey var valin
kona ársins af lesendum
karlatímaritsins GQ.
Blake Lively þann
1. september.
Leikarinn Bradley
Cooper í einlitum
jakkafötum þann
27. ágúst.
Sala á vínrauða varalitnum frá
Mac hefur aukist með haustinu.
J arðlitirnir eru alltaf áberandi á hverju ári þegar haustið fer að láta á sér kræla, en einn litur
virðist þó meira áberandi en aðrir
þetta árið. Vínrauði liturinn er
ótrúlega vinsæll í ár, hvort sem
hann er notaður í fatnaði eða
snyrtivörum. Þetta er litur sem
passar vel við hvað sem er.
Vínrauður litur
vinsæll í haust
Jessica Alba
sparileg með
vínrauðan varalit.
Leighton
Meester í kjól
frá Salvatore
Ferragamo.
Tökum upp
nýjar
vörur í hver
ri viku
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt fyrir
flottar konur
st. 40 – 58