Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 87
VITA er lífið
Dublin
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
25. - 29. okt. 4 nætur
Verð frá 79.850 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í tvíbýli.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með morgunverði
og íslensk fararstjórn.
* Verð án Vildarpunkta 89.850 kr.
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
V
IT
6
08
68
0
8/
12
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Við bjóðum
2000 kr. afslátt af
áskriftarkortum
Nýtt leikár Borgarleikhússins er stútfullt af spennandi
leiksýningum. Þeir sem kaupa áskriftarkort tryggja sér
fjórar töfrandi kvöldstundir í leikhúsinu, á sýningar
að eigin vali. Hægt er að kynna sér sýningarnar á
www.borgarleikhus.is. Íslandsbanka og Valitor er sönn
ánægja að bjóða viðskiptavinum Íslandsbanka afslátt
af áskriftarkortum Borgarleikhússins.
Áskriftarkortið gildir á fjórar sýningar að
eigin vali.
Almennt verð áskriftarkorta er 12.900
kr. en viðskiptavinir Íslandsbanka borga
aðeins 10.900 kr. fyrir kortið.
Almennt verð áskriftarkorta fyrir 25 ára
og yngri er 8.900 kr. en viðskiptavinir
Íslandsbanka borga aðeins 6.900 kr. fyrir
kortið.
Ganga þarf frá kaupum fyrir 15. september 2012 í
miðasölu Borgarleikhússins. Greiða skal með VISA eða
MasterCard greiðslukorti frá Íslandsbanka eða Byr.
Hver viðskiptavinur getur keypt eitt áskriftarkort.
Íslandsbanki og Valitor eru
máttarstólpar Borgarleikhússins.
Sálgæslan og
Björn Jör-
undur
Jazztónleikaröð veitingastaðar-
ins Munnhörpunnar í tónlistar-
húsinu Hörpu heldur áfram á
laugardaginn þegar
Sálgæslutríó saxófón-
leikarans Sigurðar
Flosasonar treður
upp á sjöttu tónleik-
unum í röðinni.
Sérstakur gestur
tríósins í nokkrum
lögum verður söngvarinn Björn
Jörundur Friðbjörnsson en
auk Sigurðar skipa þeir Þórir
Baldursson, á Hammond-orgel,
og Einar Scheving, á trommur,
tríóið.
Tónleikarnir hefjast klukkan
15 og standa í tvær klukkustund-
ir.
Aðgangur er ókeypis.
Klassík í
Vatnsmýri
Þriðju tónleikarnir á þessu
starfsári Klassík í Vatnsmýrinni,
tónleikaröð Félags íslenskra
tónlistarmanna í samvinnu við
Norræna húsið, fara fram á
laugardagskvöld klukkan 20.
Á tónleikunum flytja færeysku
fiðluleikararnir og bræðurnir
Rúni og Øssur Bæk fjölbreytta
efnisskrá með verkum eftir
Béla Bartók, Georg Friedrich
Telemann, Sergei Prokofíev,
Trónd Bogason og frænda þeirra
bræðra, Kára Bæk.
Tónleikarnir eru hluti af Vest-
norrænu hátíðinni „Nýjar slóðir“
sem haldin verður í Norræna
húsinu dagana 7.-9. septem-
ber. Tónleikarnir eru
haldnir fyrir til-
stuðlan samstarfs
Félags íslenskra
tónlistarmanna við
Einleikarafélag
Føroyja og
Norðurlanda-
húsið í Tors-
havn.