Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 88
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Svar við bréfi Helgu – aftur á svið í kvöld kl 20
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 7/9 kl. 20:00 1.k Lau 15/9 kl. 20:00 4.k Lau 22/9 kl. 20:00 7.k
Lau 8/9 kl. 20:00 2.k Fim 20/9 kl. 20:00 5.k Sun 23/9 kl. 20:00 8.k
Fös 14/9 kl. 20:00 3.k Fös 21/9 kl. 20:00 6.k Fim 27/9 kl. 20:00 9.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Fös 14/9 kl. 19:00 frum Lau 22/9 kl. 14:00 4.k Lau 29/9 kl. 14:00 6.k
Lau 15/9 kl. 19:00 2.k Sun 23/9 kl. 16:00 5.k Sun 30/9 kl. 16:00 7.k
Sun 16/9 kl. 16:00 3.k Sun 23/9 kl. 19:00 aukas Sun 30/9 kl. 19:00 8.k
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:00 frums Lau 6/10 kl. 22:00 4.k Lau 13/10 kl. 19:00 7.k
Lau 29/9 kl. 20:00 2.k Sun 7/10 kl. 20:00 5.k Lau 20/10 kl. 19:00 8.k
Lau 6/10 kl. 19:00 3.k Fös 12/10 kl. 19:00 6.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur
Rautt (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 frums Mið 26/9 kl. 20:00 4.k Lau 29/9 kl. 20:00 7.k
Lau 22/9 kl. 20:00 2.k Fim 27/9 kl. 20:00 5.k Sun 30/9 kl. 20:00 8.k
Sun 23/9 kl. 20:00 3.k Fös 28/9 kl. 20:00 6.k Mið 3/10 kl. 20:00 9.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 SÝNINGAR Á 11.900 KR.
MEÐ LEIKHÚSKORTI
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Fös 7/9 kl. 16:00 Aðalæf. Sun 23/9 kl. 14:00 5.sýn Sun 14/10 kl. 14:00 11. sýn
Lau 8/9 kl. 14:00 Frums Sun 23/9 kl. 17:00 6.sýn Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn
Lau 8/9 kl. 17:00 2.sýn Sun 30/9 kl. 14:00 7.sýn Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn
Sun 16/9 kl. 14:00 3.sýn Sun 7/10 kl. 14:00 9.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn
Sun 16/9 kl. 17:00 4.sýn Sun 7/10 kl. 17:00 10.sýn
Frumsýning 8.september!
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 7/9 kl. 19:30 Lau 15/9 kl. 19:30 Fös 21/9 kl. 19:30
Fös 14/9 kl. 19:30 Sun 16/9 kl. 19:30 Lau 22/9 kl. 19:30
Þrenn Grímuverðlaun! Sýningum lýkur í september!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Lau 15/9 kl. 20:30 Frums Lau 22/9 kl. 20:30 5.sýn Fim 4/10 kl. 20:30 9.sýn
Fim 20/9 kl. 20:30 2.sýn Fim 27/9 kl. 20:30 6.sýn Fös 5/10 kl. 20:30 10.sýn
Fös 21/9 kl. 20:30 3.sýn Fös 28/9 kl. 20:30 7.sýn
Lau 22/9 kl. 17:00 4.sýn Sun 30/9 kl. 20:30 8.sýn
Ein vinsælasta sýning Þjóðleikhússins á síðari árum aftur á svið.
Kameljón (Kúlan)
Lau 8/9 kl. 19:30 Sun 9/9 kl. 19:30
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Hávar Sigurjónsson hefur skrifað þrjú ný leikrit
sem öll verða frumsýnd í vetur.
Leikrit Hávar SigurjónSSon verður tíður frumSýningargeStur á nýju Leikári
Þrjár frumsýningar í vetur
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
„Þetta er vissulega ánægjulegt,“ segir Hávar
Sigurjónsson leikskáld um þá staðreynd að í
vetur verða frumsýnd eftir hann þrjú ný leikrit
á Íslandi. Fyrsta verkið er Jónsmessunótt sem
frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu 6. október og
svo frumsýnir Útvarpsleikhús Ríkisútvarpsins
verkið Í gömlu húsi eftir Hávar í nóvember og
loks ætlar leikhópurinn Geirfugl að frumsýna
Segðu mér satt í Þjóðleikhúsinu í febrúar.
„Svona eru hlutirnir á stundum, það er ann-
að hvort í ökkla eða eyra,“ segir Hávar sem er
að vonum kátur með nýtt leikár en Hávar hefur
einnig verið virkur innan Leikskáldafélagsins
þar sem hann hefur gegnt formennsku síðan
2004.
„Þar er okkur jú um munað að efla íslenska
leikritun og höfum staðið fyrir ýmsu. Eins
og til dæmis höfundasmiðju í samstarfi við
Þjóðleikhúsið. Við vorum með átta verk í
þeirri smiðju í vor og byrjum aftur núna með
smiðjuna. Það eiga eftir að koma mörg góð ný
íslensk leikrit úr þeirri vinnu.“
Sjálfur skrifar Hávar mest um íslenskan
veruleika og bæði verkið í Þjóðleikhúsinu
og Útvarpsleikhúsinu fjallar um íslenskan
veruleika hér í Reykjavík en Segðu mér satt er
aðeins losaralegra í tíma og rúmi.
frumSýning ÞjóðLeikHúSið frumSýnir Dýrin í HáLSaSkógi
Gaf allan sýningarréttinn
Björn Egner, sonur Thorbjörns Egner, er kominn til Íslands til að vera viðstaddur frumsýningu
Þjóðleikhússins á Dýrunum í Hálsaskógi. Fimmtíu ár er síðan verkið var fyrst sett upp hér á
landi en Thorbjörn hefði orðið hundrað ára í desember.
É g fer aftur til Noregs á mánudag-inn,“ segir Björn Egner, sonur Thorbjörns Egner, höfundar
Dýranna í Hálsaskógi sem Þjóðleik-
húsið frumsýnir í dag. „Ég er auðvitað
þakklátur Þjóðleikhússtjóra að bjóða
mér hingað. Pabbi hefði orðið hundrað
ára í desember og svo skilst mér að þið
eigið 50 ára sýningarafmæli á verkinu,“
heldur Björn áfram en Dýrin í Hálsa-
skógi voru fyrst frumsýnd á Íslandi
1962:
„Þið rétt náðuð að vera á undan
Dönum að frumsýna verk eftir pabba,“
segir Björn og var Ísland því fyrst til að
uppgötva þennan farsæla
höfund sem ekki aðeins
hefur gefið okkur Dýrin í
Hálsaskógi heldur einnig
Kardimommubæinn og
Karíus og Baktus.
Egner-sjóðurinn
Samkvæmt Birni eru
verk Thorbjörns Norð-
mönnum jafn hugleikinn
og okkur Íslendingum.
Mikið verður um húll-
umhæ tengt 100 ára
afmæli Egners í Noregi.
„Pabbi var annars
ætíð mjög þakklátur
fyrir áhuga Íslendinga á
verkunum og allar tekjur
hans og okkar af sýningunum á Íslandi
renna í sjóð til styrktar leikritun á Ís-
landi,“ útskýrir Björn en margir ættu
að kannast við Egner-sjóðinn svokall-
aða sem stundum er úthlutað úr.
Hlakkar til að sjá Hörpuna
Björn Egner hefur áður verið á Ís-
landi og baðaði sig þá í Bláa lóninu og
sá Gullfoss og Geysi. Nú hefur hann
áhuga á að skoða borgina eilítið betur.
Hann er arkitekt og vill auðvitað sjá
Hörpu, en það er búið að skrifa um
hana í Noregi. Björn er spenntur að sjá
hvernig til tókst með tónlistarhús Ís-
lendinga.
„Svo ætla ég bara að njóta þess að sjá
Dýrin í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu á
morgun,“ segir Björn, fullur þakklætis
yfir heimboðinu.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Thorbjörn Egner hefði orðið hundrað ára í
desember.
Björn og Thorbjörn.
Þið rétt náðuð
að vera á
undan Dön-
um að frum-
sýna verk
eftir pabba.
Fyrstu tvö skiptin, 1962 og 1977, léku Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason Mikka ref og Lilla klifurmús. Síðan tóku Örn
Árnason og Sigurður Sigurjónsson við keflinu 1992. 2003 voru það Atli Rafn Sigurðarson og Þröstur Leó Gunnarsson en í ár
eru það Jóhannes Haukur Jóhannesson og Ævar Þór Benediktsson.
Svar við bréfi Helgu um helgina
Leikhúsin stóru eru að vakna til lífsins nú um helgina og sum
verkanna frá því í fyrra fá að halda áfram. Þannig hefur Þjóð-
leikhúsið aftur hafið sýningar á Afmælisveislu Pinters sem fékk
prýðisdóma í Fréttatímanum á síðasta leikári. Borgarleikhúsið
byrjar að sýna aftur leikritið Svar við bréfi Helgu um helgina.
Verkið er eftir Bergsvein Birgisson og skartar þeim Þresti Leó
Gunnarssyni og Ilmi Kristjánsdóttur í aðalhlutverkum.
Bergsvein Birgisson rithöfundur.
72 leikhús Helgin 7.-9. september 2012