Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Síða 94

Fréttatíminn - 07.09.2012, Síða 94
„Ég held að þetta sé nú ekkert rosalega sjokkerandi en það eru smá kínkí kaflar þarna,“ segir Ásdís Guðnadóttir. Ásdís þýðir hina umtöluðu bók Fifty Shades of Grey sem kom út hér á landi í vikunni og kallast Fimmtíu gráir skuggar. Þetta er fyrsta bókin í þríleik en bækurnar hafa selst í um fjörutíu milljónum eintaka um allan heim. Bækurnar fjalla um háskólastúdínu sem kynnist ungum viðskiptajöfur og sogast inn í heim hans. Þær hafa sér- staklega verið umtalaðar fyrir opinskáar kynlífslýsingar, meðal annars á BDSM-kynlífi. Önnur bókin kemur út á ís- lensku í nóvember og sú þriðja í janúar á næsta ári. „Textinn er nú að mestu auðþýddur en þetta eru svolítið ögrandi bækur. Það er alltaf erfitt að þýða kynlífssenur. Enskan er svo rík af alls konar lýsingarorðum og upp- hrópunum sem erfitt er að koma yfir á íslensku. Það voru þarna hugtök sem voru mér mjög framandi, ýmis tæki, tól og fjötrar sem ekki voru í mínum orðaforða.“ Forlagið hefur gefið út ógrynnin öll af kynlífsefni, bæði bækur og spilastokka. Það kemur því nokkuð á óvart að Ásdís skuli ekki hafa getað leitað aðstoðar við þýðinguna þar á bæ. „Ég skrifaði BDSM-félaginu á Íslandi bréf en fékk ekki svar. Heimasíða félagsins var aftur á móti hjálpleg. Ég fann flest á heimasíðum hér og þar, til dæmis hjá leiktækjabúðum. Ég held að það sé gott að það komst enginn í gúgglið mitt á meðan þessu stóð.“ Ásdís er búsett í Kaupmannahöfn og kann því vel, þó staða krónunnar sé ekki heppileg. Hún er dóttir hins kunna þýðanda Guðna Kolbeinssonar svo val á starfsferli lá nokkuð beint við. „Ég bý að því að eiga góðan kennara. Þetta var alltaf til umræðu á heimilinu.“  Ásdís Guðnadóttir þýddi hina umtöluðu bók Fimmtíu GrÁir skuGGar Þurfti að gúggla öll BDSM-hugtökin Ásdís Guðnadóttir skemmti sér ágætlega við að þýða hina vinsælu bók E L James, Fimmtíu gráir skuggar. Höskuldur Daði Magnússon hdm@ frettatiminn.is Reykjavíkurglæpir Jóns Atla Jón Atli Jónasson, leikskáld með meiru, situr ekki auðum höndum frekar en fyrri daginn. Spennu- tryllirinn Frost, sem gerður er eftir hand- riti Jóns Atla, er frumsýnd- ur í dag, föstudag, og ætla má að skammt verði stórra högga á milli hjá rithöfundinum sem situr nú sveittur við að klára glæpasögu sem hann vonast til þess að geta komið út fyrir jólin. Vinnu- titill sögunnar er Sponsor og Jón Atli lýsir henni sem Reykjavíkursögu fyrir fólk sem hefur hlustað á Aphex Twin. Catalina á heimaslóðum Catalina Mikue Ncogo skók íslenskt samfélag fyrir nokkrum árum þegar hún var dregin fyrir dóm ákærð fyrir umfangsmikla vændisstarfsemi. Hún hefur látið lítið fyrir sér fara eftir að hún lauk afplánun fangelsisdóms sem hún fékk fyrir fyrrgreind brot auk ýmissa annarra eins og til dæmis líkamsárásir á lögreglumenn. Catalina fékk viðurnefnið Miðbaugsmaddaman í fjölmiðlum með vísan til þess að hún ólst upp í Miðbaugs- Gíneu áður en hún kom til Íslands með ævintýralegum hætti og gerðist íslenskur ríkisborgari. Catalina nýtur nú lífsins og frelsisins á æskuslóðunum í Afríku. Hún ber sterkar taugar til fósturjarðarinnar sem hún segir vera fallegasta land í heimi. Hún hefur þó ekki snúið endanlega baki við Íslandi og ætlar að snúa aftur. En stefnir þó að því að búa í báðum löndum til skiptis. Segðu það með Þórunni kippt inn Fyrr í vikunni virtist sem söng- og leikkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir væri ekki lengur hluti af Týndu kynslóðinni á Stöð 2. Hana var hvergi að finna í kynn- ingarefni stöðvarinnar og sjálf sagðist hún ekki vita hvort hún væri í vinnu á Stöð 2 lengur. Hinsvegar breyttist það skömmu áður en blaðið fór í prentun því þá höfðu yfirmenn Stöðvar 2 kippt henni inn aftur í tilraun til að laga kynja- hlutfallið. Enda var stöðin gagnrýnd harðlega í net- heimum í þessari viku fyrir auglýsingar eins og þessa sem sést hér til hliðar. Á þessari auglýsingu er engin kona, íslensk. Sigurpáll með Þórunni Clausen, ekkju vinar hans Sjonna en Þórunn semur texta við lag Pálma Sigurhjartarsonar á nýrri plötu Sigurpáls. Mynd/Hari  siGurpÁll Jóhannesson GeFur út kÁntrýtónlist Sjonni alltaf með mér Æskuvinur Sjonna Brink, Sigurpáll Jó- hannesson, fékk nýtt lag Pálma Sigur- hjartarsonar í fangið eftir að Sjonni birtist vini sínum í draumi og spurði hvort Sigurpáll væri ekki rétti söngvarinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lag fæðist í huga Pálma, þótt þarna hafi vinur hans vitjað hans í fyrsta sinn í draumi. Lagið prýðir væntanlega kántrýplötu Sigurpáls sem lét húðflúra nafn vinar síns á hand- legginn. Æ skuvinur Sjonna Brink, Sigurpáll Jóhann-esson, hefur ákveðið að bíða ekki boðanna heldur láta langþráðan draum um hljóm- plötuútgáfu rætast. Líklegast hefur það auðveldað honum ákvörðunina að helsti hvatamaðurinn er Guð- mundur Jónsson, gítarleikari Sálarinnar. Þeir eru góðir vinir, kynntust í World Class og semur Gummi titillag plötunnar; Heimleið. Þeir Sigurpáll og Sjonni gerðu ófá strákapör saman í Seljahverfinu og voru í stöðugu sambandi. Sigurpáll sér eftir vini sínum, sem sér um sinn vin að handan! „Einn daginn hringdi Pálmi Sigurhjartar í mig og bauð mér lag á plötuna. Þegar við vorum að æfa lagið sagði hann mér að Sjonni hefði birst sér í draumi og spurt hann hvort ég mætti ekki syngja lagið,“ segir Sigurpáll og hlær. „Og Pálmi er mest á jörðinni af þeim sem ég þekki.“ Pálmi staðfestir söguna: „Ég var kominn með hugmyndina að laginu tveimur dögum áður, án þess að vita hvert það stefndi. Svo einn morgun- inn heima dottaði ég í sófanum. Þá dreymdi mig hvernig lagið ætti að hljóma og sameiginlegur vinur okkar birtist í draumnum og sagði mér að þetta lag væri fyrir Sigurpál. Ég hringdi í hann klukkustund síðar.“ Sigurpáll segir að Pálmi hafi ekki sagt sér frá aðkomu Sjonna fyrr en um tveimur vikum seinna. „Ég held að hann hafi ekki viljað skella öllu á mig í einu,“ segir hann og að hann hafi orðið hissa og ánægður að fá að syngja lagið, enda úrval góðra ís- lenskra söngvara. Þeir félagar leituðu til Þórunnar Clausen, ekkju Sjonna, og semur hún textann við lagið. „Hann er í smíðum núna og verður um almennan vinskap.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Pálmi semur í draumi. „Lagið Love is you – mig dreymdi það lag, bæði lag og texta frá upphafi til enda. Við Sjonni og vinir úr Rokk tókum það upp haustið 2010. Það var gefið út í tilefni af sjötugsafmæli John Lennon.“ Hann segir lagið hafa birst nokkrum dögum fyrir afmælið og verið í anda bítilsins. „Ég hef aldrei upplifað svona sterkt fyrr. Maður er kannski að opnast fyrir nýjum víddum svona með aldrinum. Það er svolítið merkilegt að textinn er á ensku og ég hafði ekki samið áður á ensku. Þar segir: Put your hands in the air. Feel the heat come into you. Feel the beat coming to you. Það má leggja draumana út frá þessum texta.“ Hin nýja plata Sigurpáls er kántrýskotin, bæði með tökulögum og frumsömdum og rödd hans er djúp. Pálma líst vel á útkomuna. „Röddin hans passar einstaklega vel við kántrýheiminn.“ Sigurpáll skilur Sjonna ekki við sig. Hann hefur húðflúrað nafnið hans á handlegg sinn. „Elsku kallinn á það skilið. Sjonni fylgir mér alltaf og mun alltaf gera.“ En er plötuframleiðslan ekki dýr? „Jú, þetta er dýrt. Það er bara svoleiðis. En þetta verður alltaf platan mín og ef fólk hefur áhuga á að kaupa hana væri það bara frábært.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is 78 dægurmál Helgin 7.-9. september 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.