Fréttatíminn - 19.11.2010, Síða 2

Fréttatíminn - 19.11.2010, Síða 2
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is 315 milljóna króna sekt Haga staðfest í Hæstarétti Hæstiréttur hefur úrskurðað að 315 milljóna króna stjórnvaldssekt á hendur Haga hafi verið hæfileg viðurlög. Þetta er hæsta sekt sem lögð hefur verið á hér á landi vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu í desember 2008 að Hagar, sem reka m.a. verslunarkeðjuna Bónus, hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með að- gerðum sem beindust gegn keppinautum félags- ins á matvörumarkaði á árunum 2005 og 2006. -jh 315 milljóna króna sekt Haga Hæstiréttur M enn á vegum sérstaks sak-sóknara fóru í sextán húsleitir á þriðjudag, bæði í Reykjavík og á Akureyri, í tengslum við rannsókn á fimm málum tengdum Glitni. Leitað var í fyrirtækjum og heimahúsum. Rætt hef- ur verið um hvort þessar húsleitir komi ekki of seint – rúmum tveimur árum eft- ir hrun – og búið sé að eyða öllum gögn- um. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, hefur ekki áhyggjur af því en Friðrik Skúlason, tölvunarfræðingur og sérfræðingur í netöryggi, segir menn geta eytt gögnum – ef vilji og þekking er fyrir hendi. „Auðvitað hefðu menn viljað fara strax af stað um leið og hrunið varð en það er ekki eins og þá hafi hlutirnir legið ljósir fyrir; hverja ætti að rannsaka og hvar ætti að leita. Þetta tekur allt sinn tíma. Við höfum hingað til fundið það sem við höfum verið að leita að í okkar húsleitum og óttumst ekki að þau gögn, pappírs- eða tölvugögn, sem við leitum að séu horfin,“ segir Ólafur Þór, spurður um þá gagnrýni að menn séu helst til seinir í húsleitum rúmum tveimur árum eftir hrun. Friðrik Skúlason segir í samtali við Fréttatímann að allt velti á þekkingu og vilja þeirra sem eiga gögnin. „Ef menn ætla sér að eyða gögnum og hafa nægi- lega tæknilega þekkingu til þess þá geta þeir það. Ég veit ekki hvort þessir menn, sem verið er að leita hjá, hafa verið fær- ir um það en miðað við hegðun þeirra sumra hafa þeir varla greindarvísitölu til að eyða gögnum almennilega,“ segir Friðrik. Og það er hvorki einfalt að eyða gögn- um endanlega né ná þeim aftur. Friðrik segir að til þess að eyða gögnum end- anlega þurfi að skrifa yfir gögnin í það minnsta fimm sinnum með sérstökum forritum sem hafa meðal annars verið unnin í samstarfi við bandaríska her- inn. Oft nægi að skrifa einu sinni yfir gögnin. „Og til að eiga möguleika á að ná slíkum gögnum aftur þarf sérhæfðan vélbúnað sem nokkur fyrirtæki í heim- inum eru með. Það er hægt undir vissum kringumstæðum en er flókið og kostn- aðarsamt. Þó verður alltaf að skoða til- ganginn. Að eyða fúlgum fjár í slíkt er kannski réttlætanlegt ef milljarðar eru í húfi,“ segir Friðrik. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is  Húsleitir sérstaks saksóknara Hversu auðvelt er að eyða gögnuM? Við höfum hingað til fundið það sem við höfum verið að leita að í okkar hús- leitum og óttumst ekki að þau gögn, pappírs- eða tölvugögn, sem við leitum að séu horfin. embætti sérstaks saksóknara fór í sextán húsleitir á þriðjudag og hafa yfirheyrt fjölda manns í vikunni. „Hafa varla greindar- vísitölu til að eyða gögnum almennilega“ Friðrik Skúlason tölvunarfræðingur segir að hægt sé að eyða tölvugögnum endanlega ef menn hafa nægilega þekkingu til. Sérstakur saksóknari óttast ekki að gögn sem leitað er að séu horfin þrátt fyrir að langur tími sé liðinn frá hruni. Mál 2 kaup glitnis á bréfum í trygg- ingamið- stöðinni haustið 2007. Mál 1 kaup fagfjár- festasjóðs glB FX, sem var í vörslu glitnis, á skuldabréfi af saga Capital sem var útgefið af stími ehf. haustið 2008. Mál 3 lánveitingar til félagsins stíms vegna kaupa á bréfum glitnis í Fl group og glitni haustið 2007. Mál 4 lánveitingar glitnis til félags- ins Fs 38 til að kaupa aurum Holding af Fons. Fs 38 var í eigu Fons á þessum tíma. Mál 5 lánveitingar til stoða hf. (síðar landic Pro- perty), Baugs og 101 Capital í tengslum við kaup á danska fasteignafélag- inu keops. Upp- hæðin nam um 80 milljörðum. Þau fimm mál sem lágu til grundvallar húsleita aérstaks saksóknara á þriðjudag Ritfanga- og bókaverslunin Office 1 keypti í vikunni þrjú hundruð eintök af bókinni Jónínu Ben á bensínstöðvum N1. Verslunin hyggst bjóða bókina á hálfvirði frá og með deginum í dag og með skilarétti þar til birgðir endast. N1 keypti dreifingarréttinn á bókinni um Jónínu af Senu og hefur auglýst grimmt að hún sé aðeins til sölu á bensínstöðvum félagsins. Allt þar til nú þegar Office 1 skerst í leikinn. „Við höfum tryggt Jónínu pláss í hillunum hjá okkur ásamt úrvali jólabóka sem við mun- um sprikla með verðið á. Það er mikil sam- keppni í bóksölu á þessum tíma og við höfum ætíð sótt fram af krafti fyrir jólin,“ segir Erling Valur Ingason, markaðsstjóri Office 1, í sam- tali við Fréttatímann. Verslunin hyggst selja bókina á helmingi lægra verði en N1 gerir og með skilarétti, ólíkt því sem N1 býður. „Við leggjum áherslu á að skiptimiðinn skipti ekki máli enda geta landsmenn skipt bókum í Office 1 eftir jólin hvar svo sem þær hafa verið keyptar. En það verður aðeins hægt að kaupa eina bók í einu þannig að Hermann Guðmundsson [innsk. blm. forstjóri N1] komi ekki og kaupi upp allar bækurnar,“ segir Erling og hlær. ragnhildur ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins ragnhildur Hjaltadóttir verður ráðu- neytisstjóri nýs innanríkis- ráðuneytis sem tekur formlega til starfa um næstu áramót við sameiningu dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytis. Þrettán umsóknir bárust en ragna Árnadóttir, fyrrverandi ráðherra, dró umsókn sína til baka. síðustu sjö ár hefur ragnhildur verið ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins, sem varð sam- göngu- og sveitarstjórnarráðuneyti 1. október 2009. Ögmundur jónasson verður innanríkisráðherra um áramót. -jh anna lilja ráðu neytisstjóri velferðarráðuneytisins anna lilja gunnarsdóttir verður ráðuneyt- isstjóri nýs velferðarráðuneytis sem verður til við sameiningu félags- og trygginga- málaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis 1. janúar 2011. anna lilja gunnarsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri fjármálasviðs landspítala frá árinu 2000. auk Önnu lilju mat hæfnisnefnd Bolla Þór Bollason, sigurbjörgu sigurgeirsdóttur og rögnu Árnadóttur hæfa en ragna dró umsókn sína til baka. guðbjartur Hannesson verður velferðarráðherra um áramót. -jh Helmingur landsmanna jákvæður í garð álvera rúm 54 prósent eru frekar, mjög eða að öllu leyti jákvæð gagnvart íslenskum ál- iðnaði en tæp 23 prósent neikvæð. Helmingur telur íslensk álfyrir- tæki sinna um- hverfismálum frekar eða mjög vel en tæp tólf prósent frekar eða mjög illa. Það er niðurstaða netkönnunar sem Capacent gallup vann fyrir álfyrirtækin. rúm 65% úr handahófsvöldu 1.185 manna úrtaki svöruðu. niðurstaðan var kynnt á blaða- mannafundi þar sem álfyrirtækin kynntu ný hagsmunasamtök sín, samál. rannveig rist, forstjóri álversins í straumsvík, er stjórnarformaður samtakanna og Þor- steinn Víglundsson framkvæmdastjóri. - gag  saMkeppni BókaMarkaðurinn Office 1 keypti 300 Jónínubækur og selur á hálfvirði Aðeins leyfilegt að kaupa eitt eintak í einu en með skilarétti 2 fréttir Helgin 19.-21. nóvember 2010
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.