Fréttatíminn - 19.11.2010, Blaðsíða 8
BRUNCH HLAÐBORÐ
Á SUNNUDÖGUM
FRÁ KL. 11.00–15.00
UPPLIFÐU NAUTHÓLSVÍKINA
HJÁ OKKUR Í EINSTÖKU UMHVERFI
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
Verð aðeins 17.950 krónur
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
• Shiatsu nudd
• Infrarauður hiti
• Titringur
• Fjarstýring
Fjölnota
nuddpúði
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til persónulega gjöf.
Vegleg innbundin myndabók með þínum myndum.
Hannaðu þína
eigin myndabók
á oddi.is
VERÐ FRÁ
6.990 kR.
EINTAkIÐ
Milda Culinesse inniheldur Omega 3 og Omega 6
og er sneisafullt af vítamínum. Milda Culinesse er
tilvalið í alla matargerð fyrir jólin og frábært í
gömlu góðu smákökuuppskriftirnar!
Þ orvarður Davíð Ólafsson situr nú í tveggja vikna gæsluvarðhaldi og hefur verið gert að sæta geð-
rannsókn eftir að hann réðst með óvenju
hrottafengnum hætti á föður sinn, tón-
listarmanninn Ólaf Þórðarson, á heimili
þess síðarnefnda á sunnudag. Ólafur, sem
ættleiddi Þorvarð Davíð og tvíburabróður
hans þegar þeir voru fjögurra ára, liggur
nú milli heims og helju á gjörgæsludeild
þar sem honum hefur verið haldið sofandi
í öndunarvél frá því á sunnudaginn. Líðan
hans var óbreytt þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöld.
Árás Þorvaldar var, eins
og áður sagði, óvenju
hrottafengin. Að því
er heimildir Frétta-
tímans herma barði
Þorvarður Davíð
föður sinn ítrekað
með hnúajárni í
höfuðið og reyndi
að klippa af honum
fingur. Þorvarður
Davíð var handtekinn á sunnudagskvöld-
ið og virðist hafa verið út úr heiminum af
margra vikna kókaínneyslu. Hann játaði
verknaðinn við yfirheyrslur.
DV greindi frá því á miðvikudaginn að
ástæða heimsóknar Þorvarðar Davíðs til
föður síns hefði verið að fá greiddan móð-
urarf sinn en móðir hans lést fyrir sextán
árum eftir baráttu við krabbamein.
Þorvarður Davíð, sem er 31 árs, á að baki
nokkurn glæpaferil sem nær allt aftur til
ársins 1998. Snemma á síðasta ári var hann
dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir lík-
amsárásir og dópsölu og lauk stúdents-
prófi í fangelsinu. Hann hafði skráð sig í
Háskólann en einhver bið verður á því að
hann setjist á skólabekk. Með árásinni rauf
hann skilorð. Auk Þorvarðar Davíðs var
Anna Nicole Grayson handtekin í tengslum
við árásina. Anna Nicole, sem er þekktust
fyrir þátttöku sína í Hawaian Tropic-keppni
fyrir mörgum árum þar sem hún kom fram
á bikiníi í íslensku fánalitunum, var sleppt
strax á mánudag. Hún hefur einnig komið
við sögu lögreglunnar.
lögreglumál lífshættuleg líkamsárás í Þing-
Reyndi að klippa af fingur
í margra vikna kókaínæði
Tónlistarmaðurinn ástsæli, Ólafur Þórðarson, varð fyrir hrottafenginni árás af hendi sonar síns, Þor-
varðar Davíðs, á sunnudaginn var. Ólafur liggur á milli heims og helju á gjörgæsludeild og er honum
haldið sofandi í öndunarvél.
Ástsæll tónlistarmaður
Ólafur Þórðarson er sennilega þekktastur sem einn af með-
limum Ríó Tríós. Hann hefur, ásamt þeim Helga Péturssyni
og Ágústi Atlasyni, skemmt landsmönnum í áratugi með
gítarleik og söng. Auk þess er hann ein af driffjöðr-
unum í hljómsveitinni South River Band sem var
stofnuð fyrir átta árum. Ólafur hefur rekið umboðs-
skrifstofuna Þúsund þjalir og haft á sínum snærum
marga af þekktustu listamönnum þjóðarinnar.
Árásin átti sér stað á heimili Ólafs í Þingholtunum. Ljósmynd/Hari
Íbúðaverð þokast
upp á við
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði
í októbermánuði um 0,9% samkvæmt
mælingum Þjóðskrár Íslands. Íbúðir í
sérbýli hækkuðu um 2,2% í verði í október
frá fyrri mánuði. Íbúðir í fjölbýli hækkuðu
heldur minna eða um 0,5%. Þetta er þriðji
mánuðurinn í röð sem íbúðaverð á höfuð-
borgarsvæðinu hefur hækkað eða haldist
óbreytt frá fyrri mánuði, en undanfarna þrjá
mánuði hefur íbúðaverð á höfuðborgar-
svæðinu hækkað um 1,2%. Greining Íslands-
banka segir að af þessari þróun megi sjá að
verulega sé farið að hægja á verðlækkunum
á íbúðamarkaði en of snemmt sé að útiloka
að til frekari lækkunar komi. -jh
Birtingu talna
um fjárhagsstöðu
heimila flýtt
Útgáfu Hagtíðinda, um fjárhags-
stöðu heimilanna 2004-2010, hefur
verið flýtt. Hagstofa Íslands birtir
þessar tölur í dag, föstudag, sem
er viku fyrr en áætlað var. Tölurnar
eru mikilvægar enda breyttist
fjárhagsstaða fjölda heimila í
kjölfar hrunsins, vegna gengisfalls
krónunnar, aukins atvinnuleysis
og fleira. Stjórnvöld hafa boðað
aðgerðir í þágu þeirra sem verst
eru settir. -jh
Músafaraldur
Haustin eru tími músa, segir Guðmundur Björns-
son, meindýraeyðir Reykjavíkurborgar. Töluvert
hefur verið kvartað undan músagangi á höfuð-
borgarsvæðinu en Guðmundur segir þó kvartanir
í ár ekki fleiri en þau síðustu. Sumrin hafi verið
góð og því sé stofninn stór um þessar mundir:
„Búast má við töluverðum músagangi fram undir
áramót, svo dettur það niður þegar þær hafa
komið sér í skjól fyrir veturinn eða eitthvað fallið
af stofninum.“ Hann segir engin vandræði stafa
af músum fyrr en þær séu komnar í hús og bendir
á að þær séu jú hluti af náttúrunni. „Algengast er
að þær komist á milli veggja og
klæðningar húsa. Þá geta þær
birst á hæstu hæðum fjölbýlis-
húsa ef þannig ber við.“ - gag
8 fréttir Helgin 19.-21. nóvember 2010