Fréttatíminn - 19.11.2010, Blaðsíða 76
76 tíska Helgin 19.-21. nóvember 2010
Mánudagur
Buxur: H&M
Skó: Búð í Cannes
bolur: Zara, men
Jakki: Fatamarkaður
Peysa: H&M
Þriðjudagur
Skyrta: H&M
Slaufa: Spúútnik
Jakki: H&M
Skór: Monki
leggings: H&M
Miðvikudagur
Kjóll: H&M
Jakki: H&M
Belti: Rokk og rósir
Skór: Berska
Klæði mig eftir því hvernig mér líður
Margrét Björnsdóttir er 19 ára Verslunarskólamær sem hefur gaman af
tónlist, tísku, leiklist og skemmtilegum hlutum yfirhöfuð. „Stíllinn minn er
mjög margbreytilegur og mér finnst alltaf gaman að vera öðruvísi. Klæði ég
mig helst eftir því hvernig mér líður þann daginn. Einn daginn er ég rokk-
uð og annan í stuði fyrir að klæðast kjól frá sjöunda áratugnum,“ segir
Margrét. „Ég kaupi mest fötin mín í útlöndum. Ekkert er jafn gaman
og að detta í flottar vintage-verslanir. Búðirnar H&M, Urban Outfitters
og American Apperal eru í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Innblásturinn fær
Margrét alls staðar að. Frá umhverfinu og fólkinu í kring. „Mér hefur alltaf
fundist Björk stórkostleg í fatavali og öðru. Hún er ein af mínum uppáhalds
listamönnum og ég lít mikið upp til hennar.“
5
dagar
dress
Föstudagur
Kjóll: Rokk & rósir
Skór: Búð í Frakklandi
Sokkabuxur: Heildsala
Fimmtudagur
Kjóll: Fatamarkaður
Samfestingur: American
Apperal
Skór: Monki
Hattur: H&M
Ávextir okkar
bestu húðvörur
Kíví, epli og vínber bragðast
frábærlega en þar með er ekki öll
sagan sögð. Ávextir geta öðlast nýja
merkingu því þeir innihalda efni
sem henta jafn vel og okkar bestu
húðvörur. Til dæmis granatepli sem
innihalda mikið af ómett-
uðum fitusýrum sem
stuðla að endurnýjun
húðarinnar. Safi
ávaxtarins inni-
heldur einnig
mikið magn
af andoxunar-
efnum sem koma
í veg fyrir ótímabæra
öldrun húðarinnar.
Hentar öllum
Sólin skaðar húð okkar allra og leiðir
til ótímabærrar öldrunar. Það er þess
vegna sem sólarvörn skiptir okkur
miklu máli. Rakakremið
frá Body Shop inniheldur
mikið af C- vítamíni sem
ver húðina gegn
skaðlegum útfjólubláum
geislum.
Þetta krem hentar fyrir alla
og ef húðin þarfnast örv-
unar er það tilvalið. Kremið
mýkir einnig húðina, bætir
teygjanleika hennar og styrkir
náttúrulegt varnarkerfi.
Varan fæst í Body Shop í
Kringlunni og Smáralind og
kostar aðeins 2.790 krónur.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Þreifum okkur
áfram í blindni
Ég er þeirrar skoðunar að heimurinn sé að
drukkna í útlitsdýrkun. Hún hefur kannski
alltaf verið til staðar og breytist í takt við
tímann. En upplýsingaöldin minnkar sjón-
deildarhringinn hjá okkur og í kjölfarið
heiminn.
Samfélögin breytast og fólkið með og kröf-
urnar enn meira. Við keppumst við að lifa í
samræmi við þær kröfur sem eru settar fyrir
samfélögin. Þreifum okkur áfram í blindni
og reynum að standast þau markmið sem við
setjum okkur.
Heiladauð sitjum við fyrir framan tölvuna,
flettum yfir slúður, tísku og annað yfirborðs-
kennt efni.
Kvenmaðurinn hefur þó lengi haft þá ímynd
sem ríkir í dag. Við sjáum konur prýða for-
síður tímarita og annarra auglýsinga hálf-
naktar og glennulegar. Það er það sem talið
er að selji. Kvenlíkaminn. Við þurfum þó
ekki að spóla nema örfá ár aftur í tímann til
að upplifa glennuskap á annan hátt. Þokka-
gyðjan Marilyn Monroe hefur verið helsta
stöðutákn kvenna allra tíma. Fyrir fimmtíu
árum hneyksluðust konur út um allan heim
yfir glennuskap hennar. En á sama tíma dáð-
ust þær að hugrekki hennar og sjálfsöryggi.
Þá varð mikil bylting. Í dag er Manroe enn
talin dásamleg gyðja og ekki þessi týpiska
glenna sem sést á forsíðum tímarita í dag.
Hvert stefnir þetta? Þetta er svo gríðarlega
stór partur af samfélagi okkar og menn-
ingu. Útlitsdýrkun. Hún hefur alltaf verið
mikil, og verður líklega alltaf. Fatnaður og
holdafar. Skiptir ekki máli. Það er eðli okkar
að vilja líta vel út og þóknast öðrum.
Sérstæð bæði í
söng og útliti
Alltaf ríður yfir æði, sama hvað
það er og hvar það er í heiminum.
Nú hefur ungstirnið Cher Lloyd,
17 ára, slegið heldur betur í gegn í
breska söngþættinum X-Factor og
er orðin helsta stöðutákn þáttar-
ins í ár. Hún er kannski ekki talin
vera besti söngvari keppninnar
en hefur þó öðlast mesta frægð
af þátttakendunum í ár. Hún er
gríðarlega hæfileikarík og sér-
stæð bæði í söng og klæðaburði
og margar milljónir manna hafa
veitt henni athygli á tónlistar-
vefnum youtube. Hún kemur
stöðugt meira á óvart
með flutningi sínum og
enn meira með útlitinu.
Hún mun svo sannar-
lega verða stórstjarna í
framtíðinni.
Jólavörurnar eru komnar
Lín Design Laugavegi 176 sími 5332220 www.lindesign.is