Fréttatíminn - 19.11.2010, Blaðsíða 66
66 matur Helgin 19.-21. nóvember 2010
C abernet Sauvignon þrúgan er 17. aldar afsprengi tveggja
vínþrúga, hinnar frönsku
cabernet franc og hinnar
ljósu sauvignon blanc. Þrátt
fyrir ungan aldur er þessi
þrúga ein sú útbreiddasta
í heimi enda afar harðgerð
og auðveld í ræktun en best
líður henni þó í mildu, ekki
of köldu og ekki of heitu
loftslagi eins og Bordaux,
norðlægri Kaliforníu og
Maipo-dalnum í Chile. Þrúg-
an er lítil og með þykka húð
sem gerir vín hennar jafnan
tannínrík. Fleiri bragðein-
kenni Cabernet eru jafnan
dökk ber, minta og tóbak.
Það einkennir einnig þessa
ágætu þrúgu að vín hennar
hafa betri eiginleika til
að eldast og þroskast
en vín flestra ann-
arra þrúgna. Hér
á eftir eru nokkur
ágæt cabernet vín
sem finna má í Vín-
búðunum okkar.
Cabernet Sauvignon
Litla þrúgan
sem þolir allt
Don Melchor
Cabernet Sauvignon 2004 , Chile
Framleiðandi: Concha y Toro
Innflytjandi: Mekka
Verð: 7.055 kr.
Fæst í Kringlunni, Skútuvogi,
Borgartúni og Heiðrúnu
Don Melchor er vín í háum gæða-
flokki frá chilenska stórfram-
leiðandanum Concha y Toro sem
einnig framleiðir hin ágætu vín
Sunrise og sér í lagi Casillero Del
Diablo. Þetta er þroskað vín með
dökkum berjum, mjúku tanníni,
góðu sýrustigi og ágætri fyllingu
og skilur eftir sig fínt og þurrt
eftirbragð en er eitlítið þungt, og
ófágað miðað við
verð. Það borgar
sig að umhella
víninu og láta það
anda í smá tíma
áður en það er
drukkið. Þetta
er sannkallað
matarvín
og ætti að
henta með
flestum
mat.
indian Wells
Cabernet Sauvignon 2007,
Washington-fylki, Bandaríkin
Framleiðandi: Chateau st.
Michelle
Innflytjandi: Bakkus
Verð: 3.498 kr.
Fæst í flestum Vínbúðunum
Chateau St. Michelle er einn
helsti vínframleiðandinn á þessu
framsækna og spennandi svæði,
Washington-fylki í Bandaríkj-
unum. Indian Wells-vínið þeirra
er gott og maður fær töluvert
fyrir peningana en það þarfnast
umhellingar og töluverðrar önd-
unar til að ná fram sínu besta og
leyfa tanníninu að
jafna sig. Líklega
myndi það batna
enn frekar ef það
fengi að þroskast
í 2-3 ár til við-
bótar í flöskunni.
Vínið er
dökkt með
dökkum
ávexti,
plómum
og jafnvel
sveskjum,
einnig jörð
og vanillu.
Góð fylling
og ágætt
þurrt og
ferskt
eftirbragð.
Eflaust mjög
gott með
pottréttum.
Delicato
Cabernet Sauvignon 2008, Kali-
fornía, Bandaríkin
Framleiðandi: Delicato
Innflytjandi: Vífilfell
Verð: 1.994 kr.
Fæst í flestum Vínbúðunum
Kaliforníski vínframleiðandinn
Delicato leggur áherslu á gæði
á góðu verði. Delicato framleiðir
vín undir sama vörumerki úr sex
mismunandi þrúgutegundum.
Cabernet sauvignon vínið þeirra
er milt og hátóna, ávaxtaríkt með
mikilli berjalykt og ber bragð af
sólberjum og kirsuberjum. Þetta
er vín á góðu verði fyrir þá sem
vilja létt vín sem
eru auðveld á
tunguna með
litlu tanníni
miðað við að vera
cabernet-vín.
Þetta er ekta vín
til að drekka
með kótil-
ettum og
hamborg-
urum.
gran Coronas
Cabernet Sauvignon reserva
2006, Penedés, Spánn
Framleiðandi: Torres
Innflytjandi: Karl K. Karlsson
Verð: 2.599 kr.
Fæst í flestum Vínbúðunum
Spænski vínframleiðandinn Tor-
res framleiðir vín í öllum helstu
vínhéruðum Spánar og í Chile og
Kaliforníu. Gran Coronas-vínið
þeirra er blanda af 85% af hinni
frönsku cabernet sauvignon-
þrúgu og 15% af hinni spænsku
tempranillo-þrúgu og kemur
frá Penedés-héraðinu á Spáni
og er eitt af þeirra vinsælustu
vínum. Það er eilítið
piprað og kryddað
og hefur gott
jafnvægi sýru
og tanníns, er
bragðmikið með
keim af vanillu
og jörð. Gott
er að leyfa
víninu að
anda til að
ná jafnvægi
áður en það
er drukkið.
Gott með
alls kyns
kjöti og
hrísgrjóna-
réttum.
gato negro
Cabernet Sauvignon 2010, Chile
Framleiðandi: San Pedro
Innflytjandi: Ölgerðin
Verð: 1.398 kr.
Fæst í flestum Vínbúðunum
Gato Negro Cabernet sauvignon
vínið frá framleiðandanum San
Pedro í Chile er svona vín sem
þarf ekkert tilefni til að opna.
Skella pitsu með pepperoni í
ofninn, opna eina Gato Negro og
meira þarf ekki. Verðið er gott og
vínið er ágætt. Það er sýruríkt,
milt og létt með berjakeim.
Fyllingin er létt og sýran gerir
það að verkum að Gato Negro
hentar ágætlega
með mjög feitum
ostum.
Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson
matur@frettatiminn.is