Fréttatíminn - 19.11.2010, Blaðsíða 10
Þ að má heita djarft að fyrir-tæki sem stofnað var á hrun-árinu fræga einbeiti sér að
því selja ráðuneyti heilbrigðismála
hugbúnað í miðjum blóðugum nið-
urskurði í þeim málaflokki, en svo
er nú samt. Risk Medical Solution,
RMS, er tveggja ára sprotafyrir-
tæki sem sérhæfir sig í hugbúnað-
arlausnum fyrir læknisvísindalegar
rannsóknir. Forsvarsmenn félagsins
skrifuðu undir samstarfssamning
við heilbrgiðisráðuneytið í septem-
berbyrjun sem hefur það að mark-
miði að gera heilbrigðisþjónustu
markvissari og ódýrari.
Um síðustu mánaðamót hófst
svo formleg vinna að innleiðingu
upplýsingatæknihugbúnaðarins
inn í íslenska Sögu-kerfið en Saga
er rafrænt sjúkraskrárkerfi Land-
spítalans – háskólasjúkrahúss.
Samstarfið er þríþætt, milli RMS,
ráðuneytisins og EMR, forritunar-
fyrirtækis í eigu Nýherja sem sér
um Sögu-kerfið.
„Varan okkar er í formi reiknivél-
ar en RMS framleiðir upplýsinga-
tæknibúnað fyrir heilbrigðiskerfi
út um allan heim,“ segir Ólafur Páls-
son framkvæmdastjóri. „Þessi hag-
ræðing byggist á einstaklingsbund-
inni greiningu fyrir sjúklinga sem
lágmarkar læknisskoðanir, eykur
öryggi og leiðir til gífurlegs sparn-
aðar fyrir einstaklinginn og samfé-
lagið,“ segir Ólafur.
Verkefnið byggist á smíði upp-
lýsingatæknihugbúnaðar í formi
áhættureiknivélar sem metur sjálf-
virkt áhættu sykursjúks einstak-
lings á augnsjúkdómum og sjón-
skerðingu vegna sykursýki. Tæknin
forgangsraðar sjúklingum en talið
er að áhættureiknirinn geti skilað
allt að 50% sparnaði þegar kemur
að augnsjúkdómum tengdum sykur-
sýki en um leið aukið öryggi sjúk-
linga um allt að 35%.
„Með þessu geta læknar, annað
heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingarn-
ir sjálfir séð hvar þeir standa gagn-
vart áhættu varðandi þróun sykur-
sýkiaugnsjúkdóma,“ segir Ólafur
og bendir á kosti þess í heilbrigðis-
kerfi þar sem hvorki séu fyrir hendi
miklir peningar né mannafli. „Vélin
okkar getur sagt nákvæmlega til
um hvenær sjúklingurinn á að koma
aftur til skoðunar.“
Ólafur segir að unnið sé með
Sjúkratryggingum Íslands og
heilbrigðisráðuneytinu að næstu
verkefnum en það eru fleiri fylgi-
kvillar sykursýki, hár blóðþrýst-
ingur, mæðraskoðun, gigt og tann-
skemmdir. Allt byggist þetta á
faraldsfræðilegri þekkingu sem er
til staðar en með því að einangra
stærstu áhættuþættina innan hvers
sjúkdóms er hægt að búa til slíkar
áhættureiknivélar.
RMS er í samstarfi við Digital
Health Care sem er stórt hugbún-
aðarhús í Bretlandi sem sérhæfir
sig í lausnum fyrir sykursýkisjúk-
linga. Þá er fyrirtækið einnig í sam-
starfi við aðila í Hong Kong og loks
rannsóknarhóp í Vín um að innleiða
sykursýkikerfi í samstarfi við yfir-
völd í Sádi-Arabíu. Það verði eitt af
stærri verkefnum komandi árs.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Sparað í heilbrigðiskerf-
inu með áhættureiknivél
Tveggja ára íslenskt sprotafyrirtæki, RMS, sérhæfir sig í lausnum fyrir læknisvísindalegar rann-
sóknir til sparnaðar fyrir heilbrigðiskerfið hér á landi og víða annars staðar.
Hugbúnaður Hagræðing í blóðugum niðurskurði
Ólafur Pálsson, framkvæmdastjóri RMS framleiðir upplýsingatæknibúnað fyrir
heilbrigðiskerfi út um allan heim.
Óbreyttri jólaversl-
un spáð í ár
Gert er ráð fyrir að velta í smásöluverslun í
nóvember og desember verði rétt tæplega
60 milljarðar króna án virðisaukaskatts, að
því er fram kemur í spá Rannsóknarseturs
verslunarinnar. Þetta er í krónum talið
aukning um 4% frá sama tímabili í fyrra
en sú aukning er vegna hærra verðlags.
Að raunvirði er veltan óbreytt frá fyrra
ári. Ætla má að velta sem tengist jólunum
beint verði 12,5 milljarðar króna, en það
er sú upphæð sem er umfram meðaltal
annarra mánaða ársins. Af því leiðir að
hver Íslendingur ver að meðaltali 39.500
krónum til jólainnkaupa. -jh
Söluaukning í raf-
tækjum
Gengi íslensku krónunnar hefur smátt og
smátt þokast niður. Þess sér meðal annars
stað í verði raftækja. Gísli Þorsteinsson hjá
Nýherja segir að gengisþróunin og mikil
samkeppni á þessum markaði skili sér í
hagstæðu verði. Gísli segir að söluaukn-
ingar hafi orðið vart í sölu raftækja, sem
e.t.v. komi á óvart. Hjá Sensa, dótturfélagi
Nýherja sem er með umboð fyrir Canon
og Sony, hafi aukingin verið í stórum
sjónvarpstækjum og dýrum Canon-mynda-
vélum. Gísli nefnir sem dæmi að 40 tommu
Sony-sjónvarpstæki sé 20% ódýrara nú en
árið 2007. -jh
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Kröfur til skólamáltíða
Samtök iðnaðarins bjóða til málþings þriðjudaginn 23. nóvember
frá 15.00 til 17.00 á Grand Hóteli Reykjavík, Hvammi
Dagskrá:
15.00 Setning
Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð
15.15 Reynsla af skólamáltíðum á Norðurlöndum
Ragnheiður Héðinsdóttir, forstöðumaður matvælasviðs Samtaka iðnaðarins
15.30 Innkaupastefna Reykjavíkur og tilraunverkefni um
hverfainnkaup
Ingibjörg H. Halldórsdóttir, verkefnisstjóri um samræmda matseðla hjá Reykjavíkurborg
15.40 Útboð skólamáltíða og þjónustusamningar, kröfur til gæða
og eftirfylgni
Guðmundur Ragnar Ólafsson, innkaupastjóri Hafnararðarbæjar
15.50 Sjónarmið foreldra
Bryndís Haraldsdóttir, Heimili og skóli
16.00 Pallborðsumræður
Auk fyrirlesara:
Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar
Unnsteinn Ó. Hjörleifsson, matreiðslumaður, Árbæjarskóla
Guðrún Adolfsdóttir, ráðgja, Rannsóknarþjónustunni Sýni
Guðjón Þorkelsson, sviðsstjóri nýsköpunar og neytenda, Matís
Herdís Guðjónsdóttir, formaður Matvæla- og næringarfræðafélags
Íslands
17.00 Fundarlok
Fundarstjóri, Atli Rúnar Halldórsson, ráðgja
Aðgangur er ókeypis en tilkynna þarf þátttöku
í síma 591 0100 eða á netfangið mottaka@si.is
Vélin okkar getur
sagt nákvæmlega
til um hvenær
sjúklingurinn á
að koma aftur til
skoðunar.
Rafknúinn borgarjeppi
Borgarjeppinn Chevrolet Equinox býðst sem rafbíll og verður til afhend-
ingar í janúar næstkomandi. Bíllinn er einn af þeim sem í boði verða
í tengslum við Þjóðarátak um rafbílavæðingu Íslands, að því er fram
kemur í tilkynningu umboðsaðilans, Evan hf. Bíllinn er knúinn tveimur
rafmótorum sem skila honum allt að 240 km á hverri hleðslu. Engin gíra-
skipting er í bílnum, einungis einn gír áfram og annar aftur á bak. Það
tekur 4-5 klukkustundir að fullhlaða rafhlöðu og hægt er að hlaða með
venjulegri 220 volta innstungu. -jh
10 fréttir Helgin 19.-21. nóvember 2010