Fréttatíminn - 19.11.2010, Blaðsíða 50
Hinn 25. septem-
ber 2009 fór fram
söfnunarátakið „Á
rás fyrir Grensás“
á vegum Hollvina
Grensásdeildar. Til-
gangur átaksins var
að koma af stað lang-
þráðum áformum
um bættan aðbúnað
á endurhæfingar-
deildinni á Grensási
með viðbyggingu og
endurbótum á hús-
næði og umhverfi.
Yfir 100 milljónir
söfnuðust í reiðufé.
Á því ári sem nú
er liðið hefur verið unnið að end-
urskoðun þarfagreiningar vegna
nýs þjálfunarhúss og bættrar að-
stöðu sjúklinga og aðstandenda á
sólarhringsdeild. Unnar hafa ver-
ið fyrstu tillögur að viðbyggingu
og breytingum á húsnæði, meðal
annars í samstarfi við heilbrigðis-
ráðuneytið og Reykjavíkurborg.
Samhliða því hefur farið fram
endurhönnun á lóð, aðkeyrslu og
bílastæðum framan við húsið, s.s.
með yfirbyggðum bílastæðum fyr-
ir fatlaða.
Nýlega var opnuð þjálfunaríbúð
á 3. hæð en hún var fyrsti áþreifan-
legi árangur söfn-
unarátaksins. Til-
laga að stærð og
skipulagi nýbygg-
ingar liggur fyrir
en rekstraráætlun
er til skoðunar hjá
heilbrigðisráðu-
neytinu. Næstu
skref eru lóða-
framkvæmdir
framan við húsið
með nýjum bíla-
stæðum og bættu
aðgengi, meðal
annars verður
lóðin f latari en
áður og hitalögn
undir öllu framkvæmdasvæðinu.
Framkvæmdir hefjast síðla vetrar
og verður lokið í vor.
Opið hús verður á Grensásdeild
laugardaginn 20. nóvember kl. 13
til 16. Með því vilja starfsmenn
þakka fyrir frábærar undirtektir
og stuðning og gefa almenningi
kost á að skoða húsnæðið, kynna
sér starfsemina og fyrirliggjandi
tillögur um breytingar og nýbygg-
ingu. Hollvinir Grensásdeildar
verða á staðnum ásamt ýmsum
aðilum sem tengjast starfseminni.
Boðið verður upp á fjölbreytta tón-
list og vöfflukaffi gegn vægu gjaldi.
50 viðhorf Helgin 19.-21. nóvember 2010
N ýlega var árleg vímuvarnavika haldin í sjöunda sinn. Að baki standa fjölmörg félagasamtök
sem hafa það að markmiði að efla for-
varnir. Minnt var á nauðsyn samstöðu
ólíkra hópa um að uppræta markaðs-
setningu vímuefna og athygli vakin
á vaxandi áróðri fyrir því að lögleiða
neyslu kannabisefna.
Rannsóknir sýna að dregið hefur úr
vímuefnaneyslu unglinga í efstu bekkj-
um grunnskóla síðastliðinn áratug og
er ánægjulegt að sjá þann árangur.
En þótt mikið hafi dregið úr áfengis-
drykkju og tóbaksreykingum unglinga
virðist neysla ólöglegra vímuefna, aðal-
lega marijúana, hafa aukist. Mikilvægt
er að halda áfram öflugum forvörnum
þegar grunnskólanum sleppir því
rannsóknir sýna að áfengisneysla eykst mikið meðal
ungmenna þegar þau koma í framhaldsskóla.
Hættulegur áróður
Þær raddir heyrast nú að neysla kannabisefna, einkum
marijúana, sé skaðlaus og réttast að lögleiða efnin. Að
baki slíku tali standa örugglega ekki einstaklingar
sem hafa heilbrigði ungmenna að leiðarljósi, heldur
er líklegra að þar liggi aðrar hvatir að baki. Hvað
sem því líður virðast raddir þeirra vera farnar að ná
til unglinga. Starfsmenn Foreldrahúss segjast nú sjá
annan hóp unglinga sem notar kannabisefni en áður.
Nú séu það ekki fyrst og fremst unglingar sem „lent
hafa út af sporinu“, heldur séu það hinir „venjulegu“
unglingar sem standa vel að vígi, gengur vel í skóla,
eru í íþróttum og félagslega vel staddir, sem séu farnir
að taka meðvitaða ákvörðun um að nota vímuefni. Í
þeirra augum er kannabis, og þá einkum marijúana,
ekki vímuefni. Á netinu má víða finna síður þar sem
því er haldið fram að kannabis sé ekki skaðlegt og
að rannsóknir sem sýni fram á annað séu ekki mark-
tækar. Staðreyndin er sú að hér á landi hefur ungum
kannabis-neytendum sem leita sér meðferðar fjölgað
um helming síðustu ár.
Frá árinu 2008 hefur magn marijúana í framleiðslu
sem lögreglan hefur lagt hald á aukist gríðarlega. Á
sama tíma og aðgangur að gjaldeyri verður erfiðari
og gróði af innflutningi stórminnkar eykst heimafram-
leiðslan. Efninu þarf að koma í verð og því er þeim
skilaboðum beint til ungmenna að það
sé skaðlaust og réttast að lögleiða það.
Skýr skilaboð
Neysla marijúana er ekki hættulaus.
Rannsóknir sýna að það skilur eftir sig
meiri tjöru og inniheldur meira magn
krabbameinsvaldandi efna en sígarettur.
Marijúana er ávanabindandi og þeir sem
neyta þess til lengri tíma eru líklegri en
aðrir til að lenda í félagslegum erfið-
leikum. Vísbendingar eru um að lang-
varandi neysla geti orsakað alvarlega
geðsjúkdóma. Sinnuleysi og framtaks-
leysi einkenna gjarnan kannabis-neyt-
endur. Líkaminn er mun lengur að skila
út kannabisefnum en áfengi og fráhvörf
geta varað í margar vikur. Brýnt er að
koma þessum upplýsingum til ung-
menna skýrt og afdráttarlaust.
Forvarnir að loknum grunnskóla
Forvörnum verður að sinna meðal ungmenna eftir
að grunnskóla lýkur. Brottfall nemenda í framhalds-
skólum á Íslandi er mikið. Atvinnuleysi er hlutfallslega
mest meðal þeirra sem hafa skamma skólagöngu að
baki. Líðan þeirra sem eru utan skóla á aldrinum 16-
20 ára er almennt verri en hinna og hlutfall ungmenna
sem neytir ólöglegra vímuefna er hærra meðal þeirra
sem ekki stunda nám. Skuldbinding ungmenna við
nám hefur jákvæð áhrif á líðan þeirra og það hefur
mikilvægt forvarnargildi. Því eru fjölmargar góðar
ástæður fyrir því að styðja vel við ungmenni sem kom-
in eru á framhaldsskólaaldur og leita allra leiða til að
minnka brottfall úr framhaldsskólum.
Heimilin eru grunnur samfélagsins og þar fer fram
mikilvægasta forvarnarstarfið. Tengsl barna og ung-
menna við fjölskyldur sínar skipta mestu fyrir sjálfs-
mynd þeirra og líðan. Aðhald og stuðningur nánustu
aðstandenda stuðlar að jákvæðu viðhorfi til náms.
Nú þegar skórinn kreppir er mikilvægara en nokkru
sinni að samfélagið allt leggi baráttunni gegn vímu-
efnum lið. Heimili, skólar og yfirvöld verða að taka
höndum saman.
Ég þakka þeim fjölmörgu félagasamtökum sem
stóðu að vímuvarnavikunni 2010 þeirra þátt í eflingu
vímuvarna og óska þeim velfarnaðar í starfi í fram-
tíðinni.
Guðbjartur Hannesson
heilbrigðisráðherra
Neysla marijúana er ekki hættulaus. Rannsóknir sýna að
það skilur eftir sig meiri tjöru og inniheldur meira magn
krabbameinsvaldandi efna en sígarettur.
Vímuvarnir
Samtaka nú!
30% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM RÚSSKINNSHÖNSKUM
Stendur í 1 viku frá laugardeginum 23. jan. til 30. jan.
Stefán Yngvason
yfirlæknir
VikaN sem Var
Nei, það var ekki ráðherrann
„Össur afskráður á Íslandi“
Hlutabréf Össurar hf. voru afskráð í
Kauphöll Íslands í vikunni, en þar hafa
þau verið skráð síðan 1999. Gjaldeyris-
höftin og krónan eru meðal ástæðna
þess að viðskipti með hlutabréf í Össuri
fara nú einungis fram í Danmörku.
Var búið að búa um?
„Húsleit hjá Jóni Ásgeiri“
Sérstakur saksóknari gerði allmargar
húsleitir í fyrradag og meðal þeirra
sem fengu heimsókn var Jón Ásgeir Jó-
hannesson. Farið var inn á herbergi hans
á 101 hóteli eiginkonu hans.
Formóðir Hvítu móður og
Bera höfuðs
„Fjölmargir Íslendingar komnir af
indíána“
Fyrsti Ameríkaninn sem kom til Evrópu
fyrir eitt þúsund árum var líklega kona
sem var rænt og flutt til Íslands. Þetta
sýnir ný rannsókn á vegum deCode þar
sem gen úr áttatíu Íslendingum voru
rannsökuð.
Hvað verður í jólapakkanum?
„Icesave-aðventan runnin upp“
Þingmenn ræddu um Icesave í upphafi
þingfundar í fyrradag. Hvatti Magnús
Orri Schram, þingmaður Samfylkingar-
innar, m.a. til þess að þingmenn stæðu
saman um að ljúka því máli. Þingmenn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
sögðu að Icesave-aðventan væri runnin
upp.
Hver er kóngurinn?
„Forsetahjónin hlupu í skarðið fyrir Jón
Gnarr“
André Bachmann beið árangurslaust í
fimm vikur eftir svari frá borgarstjóra
um hvort hann myndi mæta sem sér-
stakur gestur á jólahátíð fatlaðra barna.
Forsetahjónin svöruðu samdægurs og
mæta í staðinn.
Er skammstöfunin ekki NBI?
„Nábítar, böðlar & illir andar halda
járnabeygjuvélinni“
Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað
kröfu eignaleigunnar Lýsingar um að
járnabeygjuvél verði tekin úr vörslu
félagsins Nábíta, böðla & illra anda ehf.
með beinni aðfarargerð.
Daglegt líf á Skaganum
„Hraðfrystir ánamaðkar uggðu ekki
að sér“
Eftir rigningu og hlýindi á Vesturlandi
í gær frysti snögglega þegar leið á
kvöldið, segir Skessuhorn. Svo snögg-
lega frysti á Akranesi að ánamaðkarnir
sem skriðið höfðu upp á gangstíga í
Flatahverfinu náðu ekki að koma sér í
öruggt skjól í tæka tíð og frusu fastir við
malbikið.
Tveir mínusar gera plús
„Sósíalistar og stórkapítalistar ná
saman“
Formaður Framsóknarflokksins sagði á
Alþingi að sósíalistar og stórkapítalistar
hefðu nú náð saman um tvö verkefni: að
koma skuldum gjaldþrota banka yfir á
almenning og koma í veg fyrir almenna
skuldaleiðréttingu.
Siggi og Sigurjón í kaskó
„Háar bótakröfur vegna bankastjóra“
Lloyds-tryggingafélögin gætu þurft að
greiða allt að 100 milljörðum króna í
bætur, verði bankastjórar gömlu bank-
anna dæmdir skaðabótaskyldir vegna
starfa sinna. Gömlu bankarnir tryggðu
sig fyrir tjóni af völdum stjórnenda
sinna, til að mynda vegna ólögmætra
athafna þeirra eða athafnaleysis.
Opið hús á laugardag
Á rás fyrir Grensás
– hvernig gengur?
Til laugardagsins 20. nóvember
SENDUM FRÍTT UM ALL LAND
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt