Fréttatíminn - 19.11.2010, Blaðsíða 58
Bókadómur doris deyr kristín eiríksdóttir
H undrað sextíu og sjö síðna smá-sagnasafn með undarlegum titli, Doris deyr, sviplausum húsum,
ljósmynd eftir höfundinn, Kristínu Eiríks-
dóttur ljóðskáld – vekur það einhverja at-
hygli í bókaofflæðinu? Líkas til enga, flýtur
bara hjá. Ekki hamast auglýsingadeildin
á vitum kaupenda, ekki strílar Stína sig
upp og mætir í Smáralind og áritar með
hárfínum eiturgrænum pensli eða tússar
nafnið sitt með hárrauðum varalit á saur-
blaðið svo það límist við kápuna. Ekki hún
Kristín, ónei.
Menn skyldu aftur vara sig á henni Krist-
ínu Ég hef sagt það áður og segi það enn:
Vilji menn á annað borð fylgjast með fram-
vindu skáldskaparins er eins gott að hafa
auga á henni Kristínu. Og hinar stelpurnar
allar, frá fertugu og aftur úr, skulu líta til
hennar og hvetja hana áfram því Kristín
er framtíðarkona, nútímakona, sú besta á
svæðinu þessi misserin, einn þessara tinda
sem stingast upp úr logndrífunni. Tindur
sem maður er reyndar dauðhræddur um að
brotni í einum skjálftanum svo sem hendir
örmjóa tinda sem skaga upp í hvelfinguna.
Doris deyr er safn af sögum af okkar dög-
um, ungu fólki á okkar viðsjárverðu tímum,
sumum eldri reyndar en Kristín kemur sög-
um sínum fyrir á mörgum stöðum jarðar-
innar. Þær eru ýmist sagðar af höfundi,
sögumanni, og þá um þriðja manninn, eða
rekja hvað ber fyrir sögumann, mig – egó
getur þá bæði verið karlkyns og kvenkyns.
Kristín er næmur höfundur í skynjun sinni
á söguefnin og flytur þá næmni áfram yfir
í textann að því er virðist áreynslulaust.
Sögurnar eru yfirlætislausar í frásögninni,
lausar við alla stæla, söguefnin rekja sig
áfram látlítið og hversdagslega í tóni sem
Farið með veggjum
Doris deyr er eitthvert merkilegasta skáldskaparrit þessa árs eftir ungan og frábæran höfund.
Lítil saga um latan
unga
Guðrún Helgadóttir
Vaka-Helgafell
Dæmisaga
fyrir letingja
Guðrún Helgadóttir
heldur áfram að semja
sögur fyrir börn. Harð-
spjaldadrama um latan
þrastarunga kann að
fitta á þessum tímum
dekurs og aðdáunar á
hinum ungu og reynslu-
litlu sem vaða uppi
hráir. Sagan er til
lesturs og hofmóður
sögukonu leynir sér
ekki. Myndir Önnu
Leplar eru miðlungi
heppnaðar. Það þýðir
lítið að bjóða myndir
af þröstum sem eru af
öðru kyni. -pbb
svívirða
Lotte og Sören Hammer
340 bls. Bjartur
Svínahundar
Nýr danskur krimmi
kallast Svívirða í
þýðingu Ásdísar
Guðnadóttur. Höfundar
eru systkinin Lotte og
Sören Hammer. Þetta
er þéttbrotin bók á 340
síðum og lýsir skelfilegu
fjöldamorði í íþróttasal
skóla, rannsókn á
óþekkjanlegum líkum,
stórum rannsóknarhóp,
grunsamlegum vitnum
og loks fórnarlömbum
í tvennum skilningi.
Áhrifamikil saga en í
grunninn hefðbundin og
á kunnuglegum miðum.
Ekki beint til neyslu
eftir jólamatinn en vel
þess virði að njóta, ef
svo má að orði komast,
í rökkrinu, varla þó
fyrir svefn. -pbb
dávaldurinn
Lars Kepler
536 bls. JPV
Í dáleiðslu
Kepler er höfundar-
heiti sænskra hjóna,
Ahndoril, og er saga
þeirra Dávaldurinn
ekki minni í sniðum
en danska Svívirðan,
536 síður. Aftur þarf
lögguteymi að rannsaka
blóðbað og er sál-
fræðingur, sem notað
hefur dáleiðslu á fyrri
tíð, kallaður til. Hann
verður síðan skotspónn
miskunnarlausra afla
og fortíð hans opnast
lesendum. Þetta er ekki
síður njörvaður krimmi
en sá danski, en sagan
heimtar lengri lestrar-
tíma sem skilar fínni
afþreyingu þolinmóðum
lesanda. Jón Daníelsson
þýðir. -pbb
doris deyr
Kristín Eiríksdóttir
167 bls. JPV
Viltu selja handverk
á Garðatorgi?
Bjóðum handverksfólki og sölufólki
með nýjar vörur og matvæli velkomið
á Garðatorg í Garðabæ
Jólamarkaður verður
27. nóv ,4,11 og 18 des
Eigum enn nokkur pláss laus
Áhugasamir sendið fyrirspurn á
fataleiga@fataleiga.is
eða hringið í síma 5656680
(Lilja/Lovísa)
58 bækur Helgin 19.-21. nóvember 2010
Bókadómar
Vilji menn á
annað borð
fylgjast með
framvindu
skáldskapar-
ins er eins
gott að hafa
auga á henni
Kristínu.
VinsæLar
steLpur!
Stelpur! eftir Kristínu og
Þóru Tómasdætur er
mest seld barna- og ung-
lingabókin í verslunum
Eymundsson og í öðru
sæti á aðallistanum.
oft er hálfbernskur og hrár í skynjun
sinni á umhverfið, saklaus, leiksopps-
legur í afstöðu. Svo tekur lesandann að
gruna eitt og annað og fylgir með, oft inn
í djúpa sorg, stóran háska, sanna með-
líðan því Kristínu er ekki sama, henni
stendur ekki á sama þótt henni takist oft
að láta þannig.
Kennileitin eru nokkur: dvöl í Kanada
og söguefni þaðan, Elliheimilið Grund
jarðskjálftasumar í lífi unglingsstúlku,
tveir ólíkir heimar karlmanna, slitrótt
vináttu- eða ástarsamband? Stelpuprik á
fjarlægri strönd, faðir sem hverfur, eru
meðal söguefna sem segir ekki nema
hálfa söguna því heimur hverrar sögu
lýkst upp fyrir lesanda með furðum sín-
um, fegurð og ógnum.
Það er skartprýddur heimur og inni í
honum sálir á hrakningi. Ekki að þetta
séu dæmisögur um illsku, heldur miklu
fremur gæsku sem þrífst handan við ljót-
leika og ill örlög. Ég er ekkert viss um
að Kristín eigi að hlaupa í stærri form
en ljóð, texta og smásöguna. Það eru
form sem hún spennir upp af mikilli list,
næmni og fáguðum smekk sem henni
finnst örugglega væmið orð. Kann bara
engin betri. Sannarlega eitthvert merki-
legasta skáldskaparrit þessa árs eftir
ungan og frábæran höfund.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Óskar Magnússon, lögmaður,
útgefandi og stjórnarmaður með
meiru, skrifaði í laumi þar til hann
gaf frá sér skemmtilegt safn af
smásögum fyrir fáum árum. Það
var skrifað af lúmskri gamansemi,
næmu auga og fundvísi á sögu-
efni sem lágu allsber og augljós
við vegkantinn. Nú hefur Óskar
bætt við öðru safni sem ekki er
síðra. Framan á bókinni þakkar
Einar Kárason fyrir margra ára-
tuga vináttu með hrósi um þann
ljósa mann, Óskar.
Óskar hefur stílgáfu. Það hlýtur
að vera erfitt fyrir aðra spennta
smásagnahöfunda í Hádegismó-
um að útgefandi Moggans sé
svona lunkinn skríbent. Hann
hefur líkast til verið fullfljótur á
sér að henda í safnið langri sögu
um líf í blokk í Heimunum árla
á viðreisnartímanum (sýnilega
byggð á bernsku ÓM og bróður
hans ÞM). Þar leynist efni í stærri
sögu sem ég legg til að höfund-
urinn hefi betur og fletji út áður
en hann smyr á og kryddar og
rúllar söguefninu upp svo ógni
öðrum jafnöldrum hans sem eru
búnir að tæma bernskuminningar
sínar (svokallaðar strákabækur)
í metsöluskáldsögur. Hafa jafn-
vel laumast sumir í önnur hverfi
og rænt þar sér alls óskyldum
bernskuminningum.
Safn Óskars gæti leynst víða í
pökkum með pólitískum lit. Það
er ekki líklegt að hann njóti fyllsta
sannmælis. Þá er léttleikinn og
fyndnin honum líkalega fótakefli.
Merkilegt þegar það gerist: Hrók-
ar hoppa um í hafti af því það er
ekki inn að skrifa skemmtisögur.
Stolnar stundir útgefanda
Ég sé ekkert
svona gler-
augnalaus
Óskar Magnússon
159 bls. JPV
Bókadómur Ég sÉ ekkert sVona gLeraugnaLaus óskar magnússon
Kristín spennir formið af mikilli list, næmni og fáguðum smekk, segir í 5 stjarna dómi um smásagnasafn hennar.