Fréttatíminn - 19.11.2010, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 19.11.2010, Qupperneq 34
Guarulhos-flugvöllurinn Ég varð fljótt leiður á að bíða eftir kall- inu hvenær ég ætti að fara í flugið og eyddi mestum tíma á hótelherbergjum. Við skiptum þrisvar um hótel og færð- um okkur nær flugvellinum. Ég var all- an tímann með nóg af kókaíni og notaði mikið af því. Mórallinn vegna nætur- ævintýrisins helltist reglulega yfir mig og ég vildi fara að komast heim. Þar kom að ég og félaginn fórum að ræða hvenær ég ætti að fara. Það var alltaf talað um að ég myndi taka eitt og hálft kíló af mjög hreinu kókaíni. Félaginn hafði aðrar hugmyndir. „Viltu ekki bara taka fimmtán kíló fyrst þú ert kominn hingað?“ spurði hann brosandi. „Ertu eitthvað ruglaður? Nei!“ sagði ég við hann. „Ég er ekki að fara að taka fimmtán kíló með mér. Það hefur alltaf verið tal- að um að ég tæki eitt og hálft kíló og það ætla ég mér að gera,“ sagði ég við hann. Hann fór þá og hringdi einhver símtöl og ræddi við einhverja menn sem ég vissi ekkert hverjir voru. „Þeir vita ekkert meira en við,“ sagði hann og vísaði í samtalið sem hann átti í símann. Ég var orðinn reiður og nennti þessu rugli ekki og sagðist ætla með fluginu heim án þess að taka neitt með mér. „Jú, viltu ekki taka eitthvað með þér?“ spurði hann mig. „Ég er kominn hingað til að taka eitt og hálft kíló með mér til Lissabon. That’s it,“ sagði ég og var orðinn veru- lega pirraður. „Förum þá milliveginn,“ sagði hann, „hvað segirðu um að taka sex kíló?“ „Nei, ég fer ekki að taka svo mikið,“ sagði ég en fór strax að hugsa um meiri peninga. Hvað fengi ég greitt fyrir að taka sex kíló? Það skipti svo sem ekki máli upp á töskuna að gera. Það er mjög algengt að burðardýr með töskur séu með sex kíló. „Ég skal taka sex kíló fyrir fimm milljónir,“ sagði ég og bætti við: „Og ef ég verð tekinn þá fæ ég líka fimm milljónir.“ „Þú þarft ekkert að hafa áhyggjur af því – þú verður ekkert tekinn,“ sagði félaginn. Ég var alveg harður á því að fá sömu upphæðina hvort sem ég kæmist með efnin til Portúgals eða yrði tekinn. Ég sagði við félagann að fimm milljón- ir væri ekki neitt í stóra samhenginu. Ef það tækist að koma sex kílóum af hreinu kókaíni til Portúgals þar sem magnið yrði þrefaldað með blöndun þá væru fimm milljónir bara smáaurar. Hann samþykkti upphæðina og ég var ánægður. Þetta yrði ekkert mál. Brass- arnir kynnu vel til verka og myndu fela efnið vel í töskunni. Það yrði alltof mik- ið að tapa sex kílóum. Ég átti bókað flug tveimur dögum síðar og ákvað að taka því rólega í neyslunni. Fékk mér samt aðeins í nefið bara til að slaka á. Kvöldið áður en ég átti að fljúga til Portúgals kom félaginn með þau skila- boð að ég ætti að hitta menn morg- uninn eftir sem myndu láta mig fá töskuna. Eini farangurinn minn var bakpoki með nokkrum fatalörfum í, rakveski og psp-tölvunni sem ég ætlaði að hafa í handfarangri. Ég átti að hitta mennina við götu sem var í göngufæri frá hótelinu í Guarul- hos-hverfinu, nálægt flugvellinum. Ég kvaddi félagann fyrir framan hótelið og hann ætlaði að hringja í mennina sem ég átti að hitta og segja þeim að ég væri að ganga á afhendingarstaðinn. Þetta var kannski fimm mínútna gangur og ég rölti í rólegheitum eftir götunni sem ég átti að vera á. Allt í einu renndi græn Opel Zafira-bifreið upp að mér og bíl- stjórinn heilsaði mér. Hafði greinilega fengið lýsingu hjá félaganum. Þeir keyrðu aðeins lengra eftir götunni og beygðu inn á bílastæði sem var nánast fullt og stoppuðu innst á stæðinu. Ég rölti í rólegheitum til þeirra og heils- aði þeim með handabandi þegar þeir voru komnir út úr bílnum. Þeir töluðu enga ensku. Þetta voru menn á fer- tugsaldri, dökkir yfirlitum og snyrti- lega klæddir. Þeir virkuðu almennileg- ir og bentu mér á að koma aftur fyrir bílinn, að skottinu sem annar þeirra hafði opnað. Við mér blasti svört ferða- taska. Þeir opnuðu töskuna og var hún full af nýjum fötum sem öll voru enn verðmerkt. Það fannst mér mjög skrýtið og ótraustvekjandi og hugsaði strax um röntgengræjurnar á flugvell- inum. Það væri mjög grunsamlegt ef ég yrði stoppaður með fulla tösku af nýjum verðmerktum fötum og í henni væru engin notuð föt. Ég ákvað að setja jakkann minn og fötin sem ég var með í bakpokanum í töskuna ásamt rak- veskinu. Annar mannanna lokaði töskunni og læsti með lykli sem hann rétti mér. Ég fékk líka símanúmer á miða hjá manni í Portúgal sem ég átti að hringja í þeg- ar ég væri lentur þar. Mér hafði verið sagt að skrá mig á hótel og þar átti ég að bíða eftir þeim sem myndi koma og taka töskuna þar. Kókaínkílóin blöstu við brasilíska lögreglumanninum þar sem hann rót- aði í töskunni á bakherberginu á flug- vellinum. Það var ekki erfitt fyrir hann að finna efnin og ég bölvaði þeim sem pökkuðu efnunum í hljóði. „Ég trúði þessu ekki. Andskotans fá- viti var ég að kíkja ekki í töskuna áður en ég lagði af stað! Gat þetta virkilega verið að gerast?“ hugsaði ég með mér. Ég hafði verið „böstaður“ og það eina sem mér datt í hug var að rétta fram hendurnar til merkis um að ég væri sekur. „Hvað varstu að hugsa?“ spurði lög- reglumaðurinn og ég bara hristi haus- inn – sagði ekki eitt einasta orð. Hugs- aði með mér að það væri best að hann lyki bara handtökunni af – ég vildi ekki standa þarna eins og hálfviti. Ég var handjárnaður með hendur fyrir aftan bak, leiddur fram úr skil- rúminu og látinn standa fyrir framan alla sem voru komnir í röðina við inn- ritunarborðið. Ég var mjög stressaður og hugsaði mikið um það sem fram- undan væri. Hvar ég væri staddur og hvað myndi nú gerast. Í sömu mund kom starfsstúlkan frá flugfélaginu til mín. „Ég finn mjög mikið til með þér,“ sagði hún og rétti mér bréf til að þurrka af mér svitann. Þessi orð hennar skiptu mig miklu máli á þessum tíma þótt ég vissi að þau hefðu enga þýðingu – ég væri á leið í fangelsi. Hún talaði ágæta ensku og ég bað hana að spyrja lög- reglumanninn hvort ég mætti fara úr skyrtunni. Hún gerði það en hann neit- aði. „Þú ferð ekkert að fara úr skyrt- unni núna,“ sagði lögreglumaðurinn þungur á brún. Ég hugsaði með mér: Ok, á þetta allt eftir að verða svona. Um leið og efnin höfðu fundist og myndir teknar því til sönnunar var ég leiddur út úr flugstöðinni í handjárn- um. Lögreglumaðurinn hélt á töskunni og gekk að grænni og gamalli Volks- wagen Jettu-bifreið. Ég stóð við hlið hans þegar hann opnaði bílinn og sagði mér að setjast í aftursætið. Lögreglumaðurinn keyrði bílinn en ungur strákur, starfsmaður frá flug- félaginu, var í framsætinu. Nokkrum mínútum eftir að við lögðum af stað frá flugstöðinni byrjaði ég að hlæja óstjórnlega af geðshræringu. „Hvað er í gangi eiginlega. Í hverju er ég lentur?“ sagði ég upphátt á ís- lensku og hló meira. Lögreglumaður- inn og starfsmaðurinn í framsætinu litu báðir á mig áhyggjufullir á svip og héldu örugglega að ég ætlaði mér að reyna að flýja eða jafnvel ráðast á þá í bílnum. Lögreglumaðurinn bað starfs- mann flugfélagsins að segja eitthvað við mig á ensku en ég skildi ekkert hvað hann var að segja og horfði bara út um gluggann. Hugurinn flögraði heim og erfiðar hugsanir tóku völd- in. Ég mun aldrei sjá fjölskyldu mína aftur hugsaði ég. Ég hallaði höfðinu að glugganum og upp í hugann komu myndir af fólkinu sem ég þekki. Þetta var ótrúlega skrýtið – þetta var svona eins og þegar gamalli átta millimetra kvikmynd er varpað á tjald og það eru skemmdir í filmunni. Þannig sá ég fólk- ið mitt hvað af öðru; mömmu, afa og ömmu, kærustuna, stjúpa og vini. Hvað ætli fólk haldi? Hvað finnst því um mig? Hvað segir það? Hvernig verður talað um mig? Fer þetta í blöðin? Eftir því sem bílferðin varð lengri fór ég að velta því fyrir mér hvort húsin og göturnar sem ég sá þjóta framhjá yrðu það síðasta sem ég sæi af umheiminum í langan tíma. Ég var í rauninni ekkert hræddur við það en ég hafði mestar áhyggjur af því hvað mamma myndi segja og hvaða álit hún hefði á mér núna. Ég sem hafði alltaf verið fyrir- myndarunglingur. Mamma segir að ég hafi aldrei lent í vandræðum á ung- lingsárunum. Ég man ekki eftir neinu sérstöku því líf mitt á þessum árum snerist um íþróttir. Ég prófaði að vísu að reykja sígarettur tólf ára gamall en það var ekki fyrr en fimm árum síðar sem ég byrjaði að reykja fyrir alvöru og þá var ég farinn að drekka áfengi. Ég held ég hafi aldrei náð að halda einbeitingu í því sem ég tók mér fyr- ir hendur. Ég byrjaði oft vel á ýmsum verkefnum en þegar á leið dvínaði áhuginn hratt. Ég var átján ára þeg- ar ég prófaði fyrst hass og mér fannst það ekki gott. Stuttu síðar prófaði ég að reykja maríjúana og ég fékk sömu tilfinningu – mér fannst þetta ekki gott og ég lét þetta því alveg eiga sig á þess- um tíma. Lífið á þessum árum snerist um íþróttir og ekki neitt annað. Nú hafði ég verið handtekinn og sat í bíldruslu á leið í fangelsi. „Hvað hef ég gert við líf mitt?“ hugsaði ég með mér og starði út um bílgluggann. Ég hafði ekki notað kókaín þennan dag en mikið rosalega langaði mig í eina línu á þessari stundu – til að reyna að hverfa frá þessu öllu. Úr bókinni Brasilíufanginn eftir Jóhannes Kr. Kristjánsson Karl Magnús Grönvold var handtekinn með sex kíló af kóka- íni á Guarulhos- flugvellinum í Sao Paulo árið 2007 og dæmd- ur í fjögurra ára fangelsi í kjölfar- ið. Fréttatíminn birtir hér kafla úr nýútkominni bók, Brasilíu- fanganum, þar sem Jóhannes Kr. Kristjánsson skrifar um dvöl Karls í fangels- inu í Brasilíu. Í kaflanum segir frá því þegar Karl var hand- tekinn á flugvell- inum og klukku- stundunum þar á undan og eftir. „Hvað hef ég gert við líf mitt?“ Brasilíufanginn Kalli tekinn á vellinum: Karl Magnús á flugvellinum daginn sem hann var handtekinn. Lögreglumaðurinn heldur á tösku með sex kílóum af kókaíni sem Karl ætlaði að smygla úr landinu. Við hlið hans er starfsmaður flugvallarins. Kílóin sex: Kalkípappír var vafinn utan um kókaínið sem var á botni töskunnar. Brasiliufanginn myndir.indd 10 10/27/10 2:20 PM Fangaskilríkin: Þetta voru einu skilríkin sem Karl Magnús hafði eftir að hann losnaði úr fangelsinu og fór á skilorð. Fanganúmer hans var 480.573. Brasilíufanginn Umfjöllun Fréttablaðsins um dóminn 25. júní 2007: Brasiliufanginn myndir.indd 12 10/27/10 2:21 PM Brasilíufanginn Karl Magnús við skreytingu sem fangarnir gerðu fyrir Barnadaginn. Karl er þarna í brúnu fangabuxunum. Karl Magnús með trúði sem lék fyrir börn fanganna á Barnadeginum í Itaí fangelsinu. Brasiliufanginn myndir.indd 15 10/27/10 2:21 PM Brasilíufanginn Kalli í íbúðinni: Karl Magnús leigði íbúð í hafnarborginni Santos í Brasilíu eftir að hann varð laus úr fangelsinu. Hér er hann að fara yfir dómsskjölin. Í tölvuleik: Karl Magnús mátti ekki vinna þegar hann afplánaði skilorðsbundna dóminn í Brasilíu. Hann segir að tölvuleikirnir hafi oft bjargað sér. Brasiliufanginn myndir.indd 16 10/27/10 2:22 PM „Hvað varstu að hugsa?“ spurði lög- reglumaður- inn og ég bara hristi hausinn – sagði ekki eitt einasta orð. Hugs- aði með mér að það væri best að hann lyki bara handtökunni af – ég vildi ekki standa þarna eins og hálfviti. Á flugvellinum þegar lögreglan tók Karl eð sex kíló af kókaíni. Til vinstri á sjá Karl í fangelsinu en á myndinn fyrir ofan eru fangaskilríki hans sem voru einu skilríkin sem hann hafði þegar hann losnaði úr fangelsinu. Tölvuspil björguðu geðheilsu Karls eftir að hann losnaði úr fangelsinu. 34 bókarkafli Helgin 19.-21. nóvember 2010
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.