Fréttatíminn - 19.11.2010, Síða 48

Fréttatíminn - 19.11.2010, Síða 48
ígilt ráð feðra sem eiga dætur á tánings- aldri er að segja þeim að fylgjast með því sem vonbiðlarnir í kringum þær gera, frekar en að hlusta á það sem þeir segja. Þetta góða heilræði á auðvitað við um fleiri en stúlkur og unglingspilta með ólgandi hormóna í blóðinu. Það á til dæmis sérstak- lega vel við um sambandið milli kjósenda og stjórnmálamanna. Því miður á fókusinn á stjórnmálafólkið of oft til að beinast að því sem þeir segja fremur en því sem þeir gera, eða kjósa að láta ógert. Aðgerðaleysi getur nefnilega líka verið sögn. Raðir hjá Fjölskylduhjálpinni og Mæðra- styrksnefnd eru ekki nýjar af nálinni. Rað- irnar þar eru ekki afleiðing af áföllum í efnahagslífi landsins. Allan góðæris- tímann, þegar smjör draup hér af hverju strái, Norður- landamet voru sett í sölu á dýrustu útgáfunni af Range Rover lúxusjeppum og stjórnvöld hreyktu sér af því að ríkissjóður væri orðinn skuldlaus, beið fólk eftir mat hjá hjálparstofnunum. Það var pólitísk ákvörðun að haga málum á þá leið, rétt eins og það var póli- tísk ákvörðun að hafa viðvarandi biðlista á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Síðarnefnda stofnunin þjónar fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra. Þar var bið- tíminn orðinn allt að þrjú ár og það á mestu uppgangstímum Íslandssögunnar. Það er hin pólitíska kúnst að koma hjálpinni þangað sem hennar er mest þörf. Enginn getur deilt um að bágstödd börn hljóti að vera þar allra efst á listanum. Þá- verandi stjórnvöld kusu að forgangsraða á annan hátt. Tilhögun matargjafa til þurfandi kann að vera krítískari. Þar er jafnvægislistin flóknari, rétt eins og þegar kemur að því hver upphæð atvinnuleysisbóta á að vera. Sú umræða er til dæmis nú þegar hafin að atvinnuleysisbætur verði að vera nokkru lægri en lágmarkslaun. Eins miskunnar- laust og það hljómar, má það ekki verða áreynslulaust að vera upp á aðra kominn. Á ólgutímum í stjórnmálum er skynsam- legt fyrir kjósendur að vaka yfir saman- burði á orðum, gerðum og athafnaleysi stjórnmálamanna, og skoða hvort vera þeirra innan eða utan stjórnar skipti máli í því samhengi. Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, hefur verið legið á hálsi fyrir meinta flónsku á ýmsum sviðum undanfarnar vikur. Hann þykir svara út í hött í viðtölum, kann ekki að skipta um dekk á bíl og talar of mikið um sjálfan sig, húðflúr og reyk- bindindi. Hitt sem skiptir raunverulegu máli – hvernig hann stendur sig í vinnunni – hefur horfið í skuggann. Í tíð hans er til dæmis búið að slá af glórulausa samgöngu- miðstöð í Vatnsmýrinni, við fögnuð flugrek- enda og fleiri, og hafin er löngu tímabær tiltekt hjá Orkuveitunni. Berið þetta saman við verk annarra stjórnmálaflokka í borg- inni, sem meðal annars létu borgina kaupa gjörónýta hjalla við Laugaveg til að komast í valdastóla og neyddu Orkuveituna, sem þá þegar var á hausnum, til að greiða arð í borgarsjóð. Grínistinn rúllar samkeppninni upp. Þegar upp er staðið eru stjórnmálamenn sem láta eins og fífl í fjölmiðlum en haga verkum sínum af ábyrgð í vinnunni mun betri kostur en stjórnmálamenn sem tala af ábyrgð í fjölmiðlum en hegða sér eins og fífl í vinnunni. 48 viðhorf Helgin 19.-21. nóvember 2010 Orð, gerðir og hin pólitíska kúnst Fifl og fífl Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga- stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Miðopnu ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is U ndirritaður er f y rst i flutnings- maður þingsálykt- unar t i l lögu um að samkomulag um ef lingu kvik- myndagerðar verði endurnýjað. Það var haustið 2006 að fulltrúar ríkisins og kvikmyndagerðar- manna gerðu sam- komulag til fjögurra ára um eflingu kvik- myndagerðar. Átti framlag ríkissjóðs að vera stigvaxandi og enda í 750 millj- ónum króna 2010. Núverandi stjórnarflokkar ákváðu í nafni niðurskurðar að skerða þetta framlag um 350 milljónir króna árið 2010. Samtök kvikmyndagerðar- manna mótmæltu þessu og kynntu í mars 2010 könnun sem gerð var meðal þeirra um umfang kvik- myndagerðar og efnahagslegan ávinning. Margt afar forvitnilegt kom fram í könnuninni sem tók til áranna 2006-2009. Meðal þess sem kom fram var að opinbert fjármagn til 112 verka var rúmlega 22% á með- an erlent fjármagn nam 44% og innlent (annað en opinbert) 33%. Opinbera fjár- magnið var rúmir 2,6 milljarðar á með- an það erlenda var rúmir 5,2 milljarðar. Helsti kostnaðarlið- urinn við kvikmynda- gerð er launakostn- aður og var hann rúm 72% skv. könn- uninni. Áætlað er að hvert starf í kvik- myndagerð leiði af sér önnur þrjú og er því augljóst að ávinn- ingurinn er mikill. Kvikmyndagerð er því mikilvæg atvinnugrein sem er gjaldeyrisskapandi og þá er ekki tekið tillit til mikilvægis kvikmynda fyrir menningu og ferðaþjónustu. Til samanburðar áætla Írar að 18% ferðamanna á Írlandi komi vegna kvikmynda. Af þeim upplýsingum sem fram komu og kvikmyndagerð- armenn kynntu má ætla að sam- drátturinn kosti um hundrað störf í greininni. Niðurskurður á fjármagni þýðir að færri verk verða unnin og áætla kvikmyndagerðarmenn að á árunum 2010-2014 geti þetta num- ið um fimm milljarða króna sam- drætti í greininni. Af könnuninni má draga þá ályktun að það sé afar óskynsamlegt að skerða framlög til kvikmyndagerðar þótt kreppi að. Sé tekið mark á niðurstöðunum væri nær að tryggja áframhaldandi við- gang og vöxt greinarinnar. Þannig er opinbert fjármagn gríðarlega mikilvægt því um leið og það er við- urkenning á verkinu er það forsenda frekari fjármögnunar og þátttöku erlendra kvikmyndasjóða. Áðurnefnd þingsályktunartillaga er lögð fram með það að markmiði að hvetja til þess að nýtt samkomu- lag verði gert svo þessi mikilvæga og merka atvinnugrein geti gert áætlanir til framtíðar. Skv. könnun- inni er augljóst að ávinningur sam- félagsins er mikill og mikilvægt að sammælast um að kasta ekki krón- unni og hirða aurinn. Færa má fyrir því rök að íslensk kvikmyndagerð hafi sjaldan verið mikilvægari sem atvinnuveitandi og gjaldeyrisöflun en síðast en ekki síst sem mikilvæg auglýsing fyrir ört vaxandi ferða- þjónustu og íslenska menningu. Ég vona að þingsályktunin fái jákvæða afgreiðslu nú á haustþingi. Afar óskynsamlegur niðurskurður Íslensk kvikmyndagerð – aldrei mikilvægari Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður framsóknar- flokksins Fært til bókar Fullfljótir á sér Húsleit var m.a. gerð í höfuðstöðvum Sögu fjárfestingarbanka fyrr í vikunni í tengslum við rannsókn á lánveitingum hins fallna Glitnisbanka. Saga fjárfest- ingarbanki breytti nafni sínu nýverið en bankinn hét áður Saga Capital. Varlega orðað er húsleit sérstaks saksóknara ekki sú kynning sem fyrirtæki óska eftir. Eftir á að hyggja má segja að forráða- menn fjárfestingarbankans hafi verið fullfljótir á sér með nýja nafnið. Svo reiður að hann gat varla talað NT-útgáfuævintýri Framsóknarflokksins á níunda áratug liðinnar aldar var skamm- vinnt en flokkurinn hafði allt frá árinu 1917 gefið út flokksmálgagn sitt, Tímann. Hákon Sigurgrímsson var stjórnarfor- maður Nútímans, útgáfufélags blaðsins, en hann rekur þetta mislukkaða útgáfu- ævintýri í nýrri ævisögu sinni, „Svo þú ert þessi Hákon“. Magnús Ólafsson hagfræðingur var ráðinn ritstjóri NT en blaðið átti m.a. að styðja meginstefnu Framsóknar- flokksins. Hákon segir að hins vegar hafi fljótlega farið að bera á tilhneigingu NT til að þvo af sér fram- sóknarstimpilinn, sýnast frjálst og óháð. Ólafur Jó- hannesson, fyrrum formaður Framsókn- arflokksins og forsætisráðherra, lést á meðan NT kom út, 20. maí 1984. Hákon segist hafa skynjað að þarna væri hætta á ferðum, miklu máli skipti hvernig tekið yrði á andlátsfregninni í NT. Hann gekk því á fund ritstjórans og lagði áherslu á að henni yrðu gerð verðug skil í blaðinu. Morguninn eftir var andlátsfrétt og um- fjöllun um hinn látna framsóknarleiðtoga á forsíðu Morgunblaðsins ásamt stórri mynd en í NT var birt lítil mynd af Ólafi til hliðar á forsíðu, greint frá láti hans í einni setningu. Þegar Hákon stóð með blöðin í höndunum þann sama morgun hringdi Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, brjálaður, svo ekki sé meira sagt. „Hann var svo reiður að hann gat varla talað,“ segir Hákon. Hvað kostar hver rjúpa? Umhverfisráðherra, Svandís Svavars- dóttir, heimilar rjúpnaveiðar sex helgar fyrir jól enda hænsnfugl þessi vinsæll til átu á hinni helgu hátíð. Áhugamenn um fugladráp halda til heiða, hundruðum ef ekki þúsundum saman. Ráðuneytið og Skotvís, með Sigmar B. Hauksson í broddi fylkingar, biðja veiðimenn að gæta hófs við veiðarnar og við gefum okkur að flestir verði við þeirri frómu ósk. Það er bannað að selja rjúpu en þeir sem gerst þekkja til markaðarins telja sig engu að síður vita til þess að rjúpur gangi kaupum og sölum, gjarna á 3.000-4.000 krónur stykkið. Rjúpur eru því dýr jólamatur enda þarf sæmilega stór fjölskylda, með afa og ömmu, 10-15 rjúpur. Verðið er þó afstætt og kannski er rjúpa á borði veiðimanns enn dýrari en hjá þeim sem kaupir hana á svörtum markaði. Veiðimaðurinn þarf að fara á námskeið, kaupa byssu og skot og halda til fjalla á sínum jeppa. Óvarlegt er að reikna með minna en einum eldsneytistanki í hverri ferð og ef við gefum okkur að veiðimaðurinn veiði fjórar rjúpur í hverri ferð þarf hann að fara þrjár ferðir eftir tólf fuglum. Það kostar því tugi þúsunda að sækja hina gómsætu bráð. Til viðbót- ar er kostnaður skattgreiðenda en fram kom í vikunni að þyrla Landhelgisgæslunnar er notuð til eftirlits með rjúpnaskyttum. Þá er ótalinn kostn- aður björgunarsveita sem þurfa að leita að hluta veiðimannanna á hverju tímabili. Hvað ber hæst hjá þjóð í kreppu? Stærstu vefmiðlarnir, mbl.is og Vísir.is, leggja aukna áherslu á myndbönd á síðum sínum. Fróðlegt er að fylgjast með fyrir- sögnum á því sem þar stendur til boða en eftirfarandi fyrirsagnir ber hæst hjá þeirri þjóð sem keppir við kreppu og óáran. Byrjum á Vísi: Fitusog hjá Þórdísi, Rassa- æfingin er leyndarmál Ásdísar Ránar, Auddi og Sveppi með dvergaþema, Tobba Marínós alsæl allsber, Tekur hart á kúkalöbbum. Víkjum þá að mbl.: Haffi Haff afhommaður og Vala Grand: Ét og ét en er samt sexí . S
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.