Fréttatíminn - 19.11.2010, Síða 62

Fréttatíminn - 19.11.2010, Síða 62
62 matur Helgin 19.-21. nóvember 2010 Gleðilegan jólabjór Félagar í Fágun, félagi áhugamanna um gerjun, dæma jólabjórinn í ár F águn er félag áhugamanna um gerjun á mat­vöru og drykkjum. Þar eru saman komnir nokkrir helstu áhugamenn landsins um bjór, heimabruggun, heimagerða osta og fleira góðgæti. Félagið heldur úti heimasíðunni www.fagun.is og þar eru skráðir meðlimir um 300 talsins auk þess sem félagið stendur fyrir uppákomum af ýmsu tagi eins og kútapartíi á Menningarnótt, heimsóknum í brugg­ hús og hefur það markmið að stuðla að betra aðgengi að hráefni fyrir bjórgerð á Íslandi. Fréttatíminn fékk fjóra útvalda meðlimi Fágunar til að smakka og meta jólabjórinn í ár. Hver bjórtegund var metin út frá lykt, útliti, bragði og heildarstemningu og voru gefin stig á skalanum frá 1 upp í 100. DómnefnDin Arnar Baldursson er formaður Fágunar. Mikill bjóráhugamaður og með yfirgripsmikla þekkingu á bjórgerð. Úlfar Linnet er í stjórn Fágunar. Hann hefur haldið námskeið um bjórgerð og bruggað bjór til fjölda ára. Velkunnugur bjórgerð í sinni víðustu mynd. Egils Jólabjór 4,8% 33 cl: 299 kr. Ummæli dómnefndar: Þetta er jólabjór til að þamba á barnum. Hann er léttur og ljós, eiginlega jólabjór fyrir byrjendur. Lítið frá- brugðinn venjulegum bjór en örlítið meiri beiskja. Viking Jólabjór 5% 33 cl: 289 kr. Ummæli dómnefndar: Mild og sæt jóla- stemning í þessum. Líkist Viking gylltum en sætari með meira malti og með ágætri fyllingu. Lítil beiskja. Egils maltbjór 5,6% 33 cl: 319 kr. Ummæli dómnefndar: Hér er íslenska maltið gert að ágætum bjór en vantar þó lykt, svolítið sætur og bragð af lakkrís á tungu. Dá- lítill hvorki né bjór. Jólakaldi 5,4% 33 cl: 349 kr. Ummæli dómnefndar: Það er heil veröld sem kemur upp úr þessu glasi. Góður og ferskur bjór í háum klassa með miklum karakter. Nær ekki alveg dökkum Kalda að gæðum en er nálægt því. Tuborg Christmas brew 5,6% 33 cl: 319 kr. Ummæli dómnefndar: Lyktar vel og gott jafnvægi. Rennur flott í gegn með góðri fyll- ingu. Gott humlabragð og maltbragð og notalegt eftirbragð. Góður bjór. Viking Jóla Bock 6,2% 33 cl: 399 kr. Ummæli dómnefndar: Það eru mikil jól í þess- um. Hann er fallegur að sjá og lyktar vel. Fullur munnur af bragði, sætur karamellukeimur og aðeins ristaður með góðu löngu eftirbragði. Þetta er matarbjór sem passar heiftarlega vel með reykta kjötinu, jólasteikinni og góðum ostum en það þarf að passa að drekka hann ekki of kaldan. Föroya Jóla Bryggj 5,8% 33 cl: 361 kr. Ummæli dómnefndar: Ágætur bjór með góðu jafnvægi. Það er eitthvað í gangi þarna. Betri á bragðið en hann lyktar. Það vantar pínu malt en þetta er sætur og góður jólastrumpur. Jólajökull 6% 33 cl: 333 kr. Ummæli dómnefndar: Flottur jólalegur miði á flöskunni. Góður maltilmur, sætur og lítil beiskja en áfengis- bragðið kemur full- sterkt inn í lokin. Alveg ágætisbjór sem kallar þó ekki alveg á að opna næstu flösku strax. Albani Julebryg 7% 33 cl: 299 kr. Ummæli dómnefndar: Lítil lykt, örlítið eins og að bíða eftir einhverju sem kemur ekki. Aðeins of sætur en finnst ekki mikið fyrir alkóhóli í bragðinu þó svo að hann sé 7%. Hann reynir að vera jóla en tekst það eiginlega bara í áfengismagni. Harboe Jule Bryg 5,7% 33 cl: 238 kr. Ummæli dómnefndar: Það er svona Eyjastemning í þessum. Gott jafnvægi á milli beiskju og sætu. Góður bjór sem ætti að vera í sölu allt árið en það eru lítil jól í honum. Hann er meira eins og sterkur bragðgóður lager. Royal X-mas blár 5,8% 33 cl: 249 kr. Ummæli dómnefndar: Pínu vatnskenndur og flatur en gott maltbragð og fallegur í glasi. Betri en hvíti X-mas bjórinn. Royal X-mas hvítur 5,6% 33 cl: 249 kr. Ummæli dómnefndar: Næstum því eins og hvítvín á litinn. Pínu væminn og vantar malt. Þarf að vera svellkaldur þegar hann er drukkinn. Það vantar eiginlega jólin í hann. 65% DómnEFnD 70% DómnEFnD 60% DómnEFnD 80% DómnEFnD 85% DómnEFnD 90% DómnEFnD 65% DómnEFnD 65% DómnEFnD Gunnar Óli Sölvason er meðlimur í Fágun. Bjór- áhugamaður með reynslu af heimabruggun og mikla þekkingu á hinum ýmsu bjórstílum. Kristján Finnsson er meðlimur í Fágun. Hefur áralanga þekkingu á heimabruggun, bjórgerð og annarri gerjun. Bruggar jöfnum höndum bjór, mjöð, cider og býr til osta. 50% DómnEFnD 50% DómnEFnD 70% DómnEFnD 55% DómnEFnD Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson matur@frettatiminn.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.