Fréttatíminn - 19.11.2010, Side 81

Fréttatíminn - 19.11.2010, Side 81
Íslenska kokkalandsliðið hélt í gær til Lúxemborgar þar sem það keppir á heimsmeistaramóti í matreiðslu, svokallaðri Espog- ast-Culinary World Cup. Alls eru fimmtán manns í liði auk þriggja fylgdarmanna. Keppt er í tveimur borðum, heitu og köldu. Keppnin í kalda borðinu fer fram sunnudag- inn 21. nóvember og heita borðinu tveimur dögum seinna. Landsliðið hefur lagt nótt við dag í undirbúningi sínum fyrir mótið og segir Karl Viggó Vigfús- son, framkvæmdastjóri liðsins, að lítið hafi verið um svefn síðustu vikur enda allir meðlimirnir í fullri vinnu annars staðar. „Það má í raun segja að þetta sé blóð, sviti og tár,“ segir Karl Viggó. Hafliði Halldórsson, forseti Klúbbs matreiðslumanna, segir að það sé mikilvægt fyrir matreiðslu- menn að taka þátt í slíkri keppni. „Við berum saman bækur okkar og fáum samanburð við þá bestu í heiminum hverju sinni,“ segir Hafliði.  matreiðsla Heimsmeistaramót Kokkalands- liðið stillti sér upp á Grillinu eftir æfingu á mánudaginn. Ljósmynd/Guðjón Steinsson Kokkalandsliðið til Lúxemborgar Rödd Jacksons fölsuð? Randy Jackson, bróðir Michaels heit- ins, fullyrti á Twitter í vikunni að einhver af lögum Michaels á væntanlegri plötu poppgoðsins væru fölsuð. Hann segir greinilegt að bróðir hans syngi einhver laganna en ekki önnur og að hann sé tilbúinn að leggja líf sitt að veði fyrir þeirri fullyrðingu sinni. Flestir sérfræðingar sem hlýtt hafa á lögin eru sammála um að rödd Michaels heyrist á plötunni en Randy lætur ekki segjast. Hann fer síðan út í samsæriskenningar og segir nöturlegt að bróðir hans sé ekki lengur á meðal vor og að fjöldi fólks hugsi ekki um annað en að hagnast á dauða hans. „Þeim er alveg sama um hvers vegna og hvernig hann dó, eða kannski vita þau það nú þegar.“ Pink staðfestir óléttu Söngkonan Pink hefur staðfest fregnir þess efnis að hún sé með barni. Sá kvittur komst á kreik þegar af henni birtust myndir með, að því er virtist, barnabumbu. Barnið sem hún gengur með er fyrsta barn Pink og eiginmanns hennar, Careys Hart, og læknar telja að um stúlkubarn sé að ræða. „Mamma hefur alltaf óskað þess að ég eignaðist dóttur eins og mig. Ég er skíthrædd um að önnur hvor okkar endi í fangelsi,“ sagði Pink í spjallþætti Ellen De- Generes á miðvikudag. Þegar Ellen spurði Pink hvers vegna hún hefði ekki staðfest orðróminn fyrr, sagðist hún ekki hafa viljað tala um þetta fyrr. Hún hefði verið óörugg vegna þess að hún hefði áður misst fóstur. Þá bætti hún við að barnið væri ekkert slys og hún hefði haft fyrir getnaðinum. Framhjáhald ástæða skilnaðar Örvæntingarfulla eiginkonan Eva Lon- goria er sögð vera niðurbrotin eftir að hún sótti um skilnað frá eiginmanni sínum, körfuknattleiksmanninum Tony Parker. Parker er sagður hafa haldið fram hjá Evu með eiginkonu liðsfélaga síns hjá San Antonio Spurs. Eva gefur ósættanlegan ágreining upp sem skilnaðarástæðu og fer fram á meðlags- greiðslur. Vinur hennar hefur upplýst að hún hafi fundið textaskilaboð í hundraða tali frá eiginkonu liðsfélaga Tonys í farsímanum hans. Þá mun Tony hafa haldið Facebook-sam- bandi við konu sem hann hélt við á fyrri hluta hjónabandsins sem hélt í þrjú ár. Vö ru m er ki S he ll er u no tu ð af S ke lju ng i m eð le yf i S he ll Br an ds In te rn at io na l A G . E N N E M M / S ÍA / N M 4 4 3 9 9 Það sem við höfum lært af samstarfinu við Ferrari á keppnisbrautinni, höfum við nýtt okkur fyrir venjulega bíla. Ef Shell V-Power getur hjálpað til við að halda Ferrari í toppstandi, ímyndaðu þér þá hvað það getur gert fyrir bílinn þinn. Shell V-Power er þróað til að hreinsa vélina til þess að ná fram meiri afköstum og auka viðbragðið í hvaða bensínvél sem er. Fylltu tankinn með Shell V-Power og fáðu sem mest út úr hverjum dropa. www.skeljungur.is Þróað fyrir meiri afköst – hverju sem þú ekur dægurmál 81 Helgin 19.-21. nóvember 2010

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.