Fréttatíminn - 19.11.2010, Page 86

Fréttatíminn - 19.11.2010, Page 86
86 dægurmál Helgin 19.-21. nóvember 2010 VILT ÞÚ VITA HVERS VIRÐI EIGNIN ÞÍN ER Í DAG? PANTAÐU FRÍTT SÖLUVERÐMAT ÁN SKULDBINDINGA! HRINGDU NÚNA Bær820 8081 Sylvia Walthers // best@remax.is Brynjólfur Þorkelsson // 820 8080 Rúnar S. Gíslason Lögg. fasteignasali. Þ að er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Maður veit aldrei hvort maður getur gert hlutina nema maður reyni,“ segir fyrirsætan Ósk Norðfjörð sem frumflutti sitt fyrsta lag, Keep on Waiting, í út- varpsstöðinni Kananum í gærmorgun. Tónlistarmað- urinn Cosmo er höfundur lagsins. Ósk hefur getið sér gott orð sem fyrirsæta á undanförnum árum en hygg- ur nú á tónlistarferil. Hún fetar þar í fótspor annarrar fyrirsætu, Ásdísar Ránar, sem gaf út lag fyrr á þessu ári við misjafnar undirtektir. Hvernig byrjaði þetta? „Vinur minn sagði mér frá vini sínum Cosmo sem ætti helling af frumsömdum lögum. Við Cosmo hitt- umst á kaffihúsi og ákváðum í kjölfarið að taka upp lag. Þannig varð þetta til,“ segir Ósk, spurð um tilurð þess að hún ákvað að feta tónlistarbrautina. Ósk segir þetta vera skemmtilega tilbreytingu frá hversdagsleikanum. Hún á enga sérstaka fyrirmynd í tónlistinni en segist vera alæta á tónlist. „Það er enda- laust til af snjöllu tónlistarfólki og ég á mér ekkert uppáhald,“ segir Ósk. Og hún stoppar ekki við eitt lag. Nú er hún með annað lag í undirbúningi og koma ekki ómerk- ari menn en Krummi í Mínus og Haffi Haff að út- sendingu lagsins. „Ég er mjög spennt fyrir því lagi. Það er verið að leggja lokahönd á það og síðan sjáum við til,“ segir Ósk um framtíðina. oskar@frettatiminn.is  ósk Norðfjörð reyNir fyrir sér í tóNlistarbraNsaNum  umsagNir um keep oN WaitiNg  ísleNska óperaN rigoletto hættir á toppNum Sendir frá sér nýtt lag Ósk Norðfjörð hefur gefið út lagið Keep on Waiting sem flokka má sem „aggressívt“ danspopp. Þetta er frumraun hennar á tónlistarsviðinu. í slenska óperan hefur undanfarið sýnt Rigoletto eftir Verdi fyrir fullu húsi. Nú þegar hafa um 4.000 manns séð þessa sígildu óperu og þar sem almennt miðaverð er 5.900 krónur má ætla að Rigoletto skili vel yfir 25 milljónum í miðasölu þegar yfir lýkur. Uppfærsla Íslensku óperunnar er mjög glæsileg og kostar sitt þannig að óperan stendur ekki undir sér þótt uppselt verði á allar sýningar. Vinsæld- irnar hafa hins vegar orðið til þess að sáralítið vantar upp á að endar nái saman. Sýningum á Rigoletto lýkur um helgina þegar boðið verður upp á tvær aukasýningar á föstudagskvöld og sunnudagskvöld klukkan 20. Enn eru örfá sæti laus á sýningarnar þannig að áhugasamir geta náð í skottið á hinum harmræna trúði Verdis. Ólafur Kjartan Sigurðarson fer mikinn í titilhlutverkinu og Þóra Einarsdóttir og Jóhann Friðgeir Valdimarsson sýna einnig mikil til- þrif í hlutverkum Gildu og hertogans af Mantúa. Verdi skilar rúmum 20 milljónum í kassann Tónlistarmaðurinn Ívar Helgason, sem hefur gefið út sína fyrstu plötu, Jólaljós, ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur leggur allt undir. Hann auglýsir diskinn í strætóskýlum og heldur útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi nú í kvöld, föstudag, ásamt fjölda færra hljómlistar- manna; strengjasveitar, Sigurðar Flosasonar og kórs Flensborgarskólans. „Tónleikarnir verða í anda plötunnar, glæsi- legir og einlægir,“ segir hann hresslega. Á plöt- unni eru bæði klassískar jólaperlur og ný jólalög. Ívar hefur lengst af starfað sem söngleikari í hinum þýskumælandi heimi en hefur frá því að hann kom heim verið í Þjóðleikhúsinu. Leggur allt undir Stórfótur snýr aftur Hljótt hefur verið um plötusnúðinn og þúsundþjala- smiðinn Kristján Jónsson, eða Kidda Bigfoot, en hann ætlar nú að hasla sér völl á kunnuglegum slóðum. Hann hefur verið ráðinn plötusnúður og tónlistarstjóri á veitinga- og skemmtistaðnum New Square í Strætóhúsinu á Lækjartorgi. Kiddi er einn reyndasti plötu- snúður landsins og ætlar sér að endurvekja stemninguna sem ríkti á Skuggabarnum og Astró með blöndu af tónlist níunda og tíunda áratugarins og nýrri tónlist. Þá er Kiddi einnig kominn í út- varpið og mun standa vaktina á laugardags- kvöldum í vetur frá kl. átta til mið- nættis. Stjórnlaust tund- urskeyti Ögmundur Jónasson hefur vakið mikla furðu innan eigin flokks og utan fyrir hugmyndir sínar um að helst beri að ljúka ESB-viðræðunum fyrir hádegi á morgun og klára málið fyrir áramót. Árni Þór Sigurðsson, þingflokksfor- maður hans, hefur þegar snuprað hann og samráðherrar hans í báðum flokkum vita ekki sitt rjúkandi ráð. Hann hafði lofað að vera þægur gegn því að hann fengi að koma aftur inn í ríkisstjórnina og þykir Steingrími J. Sigfússyni, Jóhönnu Sigurðardóttur og flestum samherjum hans við ríkisstjórnarborðið að skammtímaminnið hafi brugðist ráð- herranum. Þetta fólk spyr sig nú hvort þetta sé forsmekkurinn að fríspilandi Ögmundi í hverju stórmálinu af öðru og nú virðist sem tvö stjórnlaus tundur- skeyti, Jón Bjarnason og Ögmundur, séu í stjórninni. Annað lag á leiðinni og það er unnið í sam- vinnu við Haff Haff og Krumma í Mínus Nú þegar hafa um 4.000 manns séð þessa sígildu óperu ... Ólafur Kjartan Sigurðarson hefur farið á kostum í hlut- verki Rigoletto fyrir fullu húsi í Íslensku óperunni. Fimm stjörnur – vel löðraðar Bíddu, bíddu, bíddu, var ekki Ósk vinkona okkar á fullu í Krossinum? Veit að Gunnar verður rosalega ánægður með þetta lag og myndband. 9.000 Maríubænir? Held að gæinn sem sá um stafina og grafíkina fái viku aukalega í hreinsunareldinum fyrir sína vinnu þarna. Þetta er náttúrlega rosalegt dæmi, ég vil bara fá dúett með henni og Ásdísi Rán strax, sko. Ósk er alveg „hot“. Mér finnst hún reyndar fullmikið klædd í þessu myndbandi, sko, en ég meina, hver segir að dr. Alban hafi ekki haft úrslitaáhrif á þróun tónlistar í mannkyns- sögunni? Þetta eru fimm stjörnur, vel löðraðar og góðar.“ Erpur Eyvindarson, „Blaz Roca“, tónlistar- maður Þarf að vinna töluvert betur „Laglínan er ágætlega grípandi en þetta er frekar svona eins og einn kafli úr lagi. Ég er svo sem enginn sérfræðingur í danstónlist en ég myndi vilja fá meira lag út úr þessu; einfalt er oft gott en þetta er einum of einfalt fyrir minn smekk. Klára að semja lagið, segi ég. Ágætis demó en fyrir mér eiginlega bara demó sem gefur forsmekk að fínu lagi hjá Ósk.“ Aðalheiður Ólafsdóttir, söng- og útvarpskona Skárra en hjá Ásdísi Rán „Þetta er skárra lag en Ásdís Rán sendi frá sér. Það má eiga það. Ég var hissa á því hvað Ósk Norðfjörð náði að púlla sönginn í þessu, það er flottur karakter í þessu hjá henni. En á móti kemur að sándin sem eru notuð í laginu hljóma mjög ódýr og draga það niður. Það vantar smá kjöt á beinin. Því miður. Ég gæti ekki fyllt nein dansgólf með þessu lagi eins og það hljómar núna. Ég myndi mixa það upp á nýtt, vinna betur í bítinu á því og ydda nokkur leiðandi sánd aðeins betur, því það leynist ágætur partí-hittari þarna undir. Leyfið öðru fólki að gera „remix“ af þessu og talið svo aftur við mig.“ Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.