Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.1996, Side 23

Læknablaðið - 15.01.1996, Side 23
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 11 fundust hjá 128 berum (17). í framhaldi af því var gerð rannsókn á sex sjúkrahúsum í Jóhann- esarborg og reyndust 56% af 315 pneumókokk- um í berum vera fjölónæmir (18). Á næstu árum fannst fjölónæmur stofn í Bretlandi (19) og há tíðni fjölónæmra stofna á Spáni (15,16). Pneumókokkar alveg ónæmir fyrir penicill- íni svo og fjölónæmir stofnar hafa nú náð al- heimsútbreiðslu (20). Cefótaxím/ceftríaxón ónæmi Pneumókokkar hafa fimm penicillín bindi- prótín, sem eiga þátt í verkun 6- laktamlyfja. Þegar pneumókokkar verða ónæmir fyrir pen- icillíni er það vegna breytinga á penicillín bindiprótínum og breytingarnar valda minni sækni penicillíns í bindiprótínin og um leið minni sækni annarra B-laktamlyfja (21,22). Til þess að pneumókokkar verði alveg ónæmir fyrir penicillíni þurfa að koma til breytingar á að minnsta kosti þremur penicillín bindiprótín- um, en aðeins er þörf á breytingum tveggja til að pneumókokkar fái algert ónæmi fyrir cefó- taxími og ceftríaxóni. Hægt hefur verið að nota cefótaxím og cef- tríaxón til að meðhöndla sýkingar af völdum penicillín ónæmra pneumókokka vegna mis- munandi sækni þ-laktamlyfja í mismunandi penicillín bindiprótín, og er það meðal annars kjörmeðferð við heilahimnubólgu af völdum þessara stofna þar sem ónæmi gegn cefótaxími/ ceftríaxóni er ekki þekkt (23). Með tilkomu alveg penicillín ónæmra og fjölónæmra pneu- mókokka hafa þessi lyf orðið mikilvægari. Það er því áhyggjuefni að nú hefur ónæmi fyrir þessum lyfjum komið fram á Spáni (24-27) og í Bandaríkjunum (28-33), þar sem lýst hefur verið tilfellum heilahimnubólgu sem ekki svör- uðu meðferð. Slíkum stofnum hefur einnig verið lýst í Suður Afríku, en ekki í sýkingum (34). Nýlega hafa fundist cefótaxím ónæmir pneumókokkar í Bretlandi (36). Það að ónæmi gegn þeim geti myndast með breytingu á einu til tveimur penicillín bindiprótínum og að hægt sé að flytja háskammtaónæmi milli stofna með einni ummyndun (transformation) bendir til þess að cefótaxím og ceftríaxón ónæmi kunni að breiðast hraðar út en penicillín ónæmið gerði (22,35). Þegar það er orðið útbreitt má reikna með því að margir stofnar verði penicill- ín ónæmir, cefótaxím og ceftríaxón ónæmir og fjölónæmir, og því engin virk lyf eftir nema glýkópeptíð (vankómýsín og teichóplanín) sem komast illa yfir blóðheilaþröskuldinn. Hjúpgerðir Sá þáttur sem talinn er ráða mestu um mein- virkni pneumókokka er hjúpurinn. Þótt þekkt- ar hjúpgerðir séu nú 90 (37), þá valda aðeins fáar þeirra yfir 90% sýkinganna. í börnum eru þessar hjúpgerðir 3, 4, 6,14,18,19 og 23 (38), en í fullorðnum 1, 3, 4, 6, 7, 8, 9, 12, 14 og 23 (39). Til þess að fram komi minnkað næmi fyrir pneumókokkum þarf aðeins breytingu á einu til tveimur penicillín bindiprótínum, en til þess að gera pneumókokka alveg ónæma þarf breytingar í að minnsta kosti þremur. Það kemur því ekki á óvart að hjúpgerðir með fullt ónæmi eru mun færri en hjúpgerðir með lélegt næmi. Lélegu næmi fyrir penicillíni hefur verið lýst í næstum öllum algengari hjúpgerðanna, það er 1, 2, 3, 4, 6, 7, 8, 9,10,11,13,14,15,16, 17,18,19, 21, 22, 23, 24, 33, 34 og 35, en alveg ónæmir stofnar hafa aðeins verið af hjúpgerð- um 6 (A og B), 14, 19 (A og F) og 23 (10). Hjúpgerðir 6, 14, 19 og 23 eru einmitt þær hjúpgerðir sem eru algengastar í börnum, þær eru lélegir ónæmisvakar og börnin bera stofn- ana því oft lengi, sem gerir þá mun útsettari fyrir sýklalyfjum en aðra stofna (40,41). Eru fyrirsjáanleg takmörk á frekari útbreiðslu? í töflu I má ljóslega sjá hversu fljótt penicil- Table I. Overview of penicillin resistance, multiresistance and resistance to the third generation cephalosporins (cefotaxime and ceftriaxone) in the world. Penicillin resistance High level penicillin resist. Multiresistance Resistance to 3rd gen. ceph. 1966-70 Australia, Poland 1971-75 USA, UK, Japan 1976-80 S. Africa, Spain S. Africa, USA S. Africa 1981-85 Israel, France Spain, Israel Spain, USA 1986-90 Hungary, Chile, Hungary, France, Hungary, lceland Spain lceland lceland 1991-95 Global Global Global USA, S. Africa
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.