Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1996, Síða 89

Læknablaðið - 15.01.1996, Síða 89
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 69 Table II. Sensitivity (S=full sensitivity, l=decreased sensitivity, R=resistance) of E. coli to different antimicrobial drugs*. Antimicrobial S (%) i (%) R (%) Ampicillin 59.6 (62.3) 2.6 (1.8) 37.8 (35.9) Sulphafurasol 61.5 (62.4) 7.9 (8.3) 30.6 (29.3) Cephalothin 55.9 (56.6) 21.9 (21.8) 22.2 (21.6) Trimethoprim 82.0 (86.2) 0.9 (0.9) 16.5 (12.9) Mecillinam 84.7 (84.5) 4.2 (4.6) 11.1 (10.9) Nitrofurantoin 97.5 (96.6) 0.9 (2.3) 1.6 (1.1) * Numbers in parentheses show sensitivity to antimicrobial drugs when only uncomplicated infections are counted. Table III. Sensitivity (S=full sensitivity, /= decreased sensi- tivity, R=resistance) of E. coli to ampicillin during three years. Year N s (%) l (%) R (%) 1992 360 (59.3) (3.2) (37.5) 1993 346 (58.2) (2.8) (39.0) 1994 260 (61.4) (2.3) (36.3) leg sýking. í íslenskri rannsókn var sýnt fram á að einungis um helmingur jákvæðra sýna úr pokaþvagi reyndist einnig jákvæður við nánari rannsókn á ástunguþvagi (6). Efniviður þessi ætti engu að síður að gefa góða mynd af helstu sýklategundum á svæðinu, einkum hjá ein- staklingum með einfaldar þvagfærasýkingar og næmi sýkla fyrir algengum sýklalyfjum. Einfaldar þvagfærasýkingar eru oftast af völdum E. coli og eru þessar niðurstöður því í samræmi við sambærilegar erlendar rannsókn- ir (7-11). Athygli vekur að hlutfall S. sapro- phyticus er minna en í öðrum rannsóknum er- lendis frá (9-12). Þessi rannsókn sýnir eins og aðrar að S. saphrophyticus kemur einkanlega fyrir hjá ungum konum (9-12). í sænskum rannsóknum hefur verið sýnt fram á árstíða- sveiflur í tíðni þvagfærasýkinga af völdum S. saphrophyticus hjá konum (10,11). Þessar sveiflur eru mest áberandi í mið- og suðurhluta landsins þar sem tíðni þeirra getur orðið allt að 30% þvagfærasýkinga í ágúst og september. Rannsóknir frá norðurhluta Svíþjóðar sýna ekki svo miklar sveiflur (9). í okkar rannsókn virðist tilhneiging til árstíðasveiflna, enda þótt efniviðurinn sé of lítill til að draga einhlítar ályktanir í þá veru. Hins vegar líkist mynstrið á norður íslandi meira þeim rannsóknarniður- stöðum sem birtar hafa verið um sama efni frá norður Svíþjóð (9). Þýðingarmestu niðurstöður þessarar rann- sóknar er þó hið mikla ónæmi fyrir sýklalyfjum hjá E. coli. Algeng lyf eins og ampicillín og súlfafúrasól hafa fullt næmi í aðeins sex tilvik- um af hverjum 10. Þá er fullt næmi fyrir trímetóprín verulega skert. Þetta á við um allar E. coli sýkingar en næmi breytist lítilsháttar til batnaðar að frátöldum erfiðum og tíðum sýk- ingum. Það er einungis nítrófúrantóín sem heldur nokkuð háu næmi. Það getur haft þýð- ingu við val á sýklalyfjum þegar meðferðar er þörf, áður en ræktunarniðurstöður liggja fyrir. Þetta er þó að vissu marki óheppilegt með tilliti til aukaverkana af þessu lyfi. Þegar árið 1983 sýndu Lacey og félagar (2) fram á að amoxicillín meðferð í eina viku hjá gömlu fólki leiddi til meira ónæmis hjá E. coli stofnum en meðferð með öðrum lyfjum. Það er því líklegt að mikil notkun beta-laktam lyfja sem og annarra sýklalyfja hér á landi (13) geti skýrt hið mikla ónæmi sem orðið er utan sjúkrahúsa. í heild virðist ónæmið hér vera heldur meira en í erlendum rannsóknum enda þótt rannsóknirnar séu ekki alltaf sambærileg- ar. Hollensk rannsókn frá árinu 1992 (14) er athyglisverð í þessu samhengi. Þar voru athug- uð áhrif ampicillíns við öndunarfærasýkingu á næmisþróun E. coli í meltingarvegi. Ónæmir sýklar reyndust 15% fyrir sýklalyfjagjöf og 23% eftir sýklalyfjagjöf. í annarri hollenskri rannsókn frá 1994 var athuguð þróun lyfja- ónæmis á 10 ára tímabili frá 1982 til 1992, meðal annars með sérstöku tilliti til þvagfærasýkinga. A því tímabili var næmisþróun fyrir cótrímoxa- sól þannig að ónæmir sýklar voru 14% árið 1982 og 28% árið 1992. Varðandi amoxicillín voru sambærilegar tölur fyrir ónæmi 24% árið 1982 og 34% árið 1992 (15). Rannsókn frá Ont- aríó í Kanada frá 1990 sýnir skert næmi fyrir helstu þvagfærasýklalyfjum í 10% tilvika (16). Blöðrubólga veldur oft miklum óþægindum og því hefur verið talið rétt að hefja meðferð áður en niðurstöður ræktana liggja fyrir og að meðhöndla þvagfærasýkingar af þessu tagi án þess að taka þvag til ræktunar. Enda þótt nið- urstöður næmisprófa frá rannsóknarstofum gefi ekki alltaf rétta mynd af virkni lyfjanna í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.