Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1996, Page 102

Læknablaðið - 15.01.1996, Page 102
80 íðorðasafn lækna 73 Röntgenfræði í síðasta pistli var rætt nokk- uð um stefnu Orðanefndar læknafélaganna varðandi nafn- heiti (eponym), fræðiheiti dreg- in af nafni, oftast nafni þess manns sem fyrstur lýsti fyrir- bærinu. Gert er ráð fyrir að er- lenda nafnið verði ritað með stórum staf og sínum upphaf- lega rithætti og að oftast fylgi eignarfalls-„s“. Stundum gerist það þó að nafnheiti er algjör- lega innlimað í fræðimálið og tapar bæði stóra stafnum og eignarfallinu. Meðal nafnheita, sem náð hafa slíkri fótfestu í ís- lensku máli, eru þau sem dregin eru af nafni þýska eðlisfræð- ingsins Wilhelm Röntgen, svo sem í orðunum röntgengeisli, og röntgenmynd. Enskar og amer- ískar læknisfræðiorðabækur vísa þó gjarnan í heiti sem hefj- ast á radio- í stað roentgen- og telja þau heppilegri. Nefna má radiology, radiologist og ra- diography. Radius er latneskt orð sem merkir stafur, stika, teinn eða geisli. íðorðasafn lækna hefur að nokkru farið bil beggja og birtir til dæmis öll uppflettiorðin roentgenogram, radiogram, roentgenograph og radiograph, en vísar í radio- graph sem heppilegasta heitið og gefur þar íslensku þýðinguna röntgenmynd. Ljóst er þó að orðhlutarnir radio- og roent- gen- eru ekki sömu merkingar, sá fyrri er víðtækari og getur vís- að til fleiri geisla en röntgen- geisla. Vera má því að tímabært sé orðið að endurskoða og sam- ræma ýmis heiti í röntgenfræði. Geislafræði Vekja má athygli á því að fræðgreinin radiology er í íð- orðasafninu einungis nefnd geislalæknisfræði. Margar er- lendar læknisfræðiorðabækur gera hins vegar grein fyrir því að heitið radiology megi annars vegar nota um þá grein eðlis- fræði sem nefna má geislaeðlis- fræði og hins vegar um þá grein læknisfræði sem nefnd er á ís- lensku geislalæknisfræði eða röntgenlæknisfræði. Bein orð- hlutaþýðing á radiology er þó geislafræði, sem ef til vill ber þá að nota sem yfirheiti, þannig að geislafræði megi skipta í geisla- eðlisfræði, geislalæknisfræði og fleiri undirgreinar. Rétt er einn- ig að vekja athygli á þýðingum íðorðasafnsins á heitunum radiologist, geislalæknir, og radiographer, röntgentæknir. Petta er gert í samræmi við skil- greiningar erlendra læknis- fræðiorðabóka. Radiologist er lœknir, sem hlotið hefur þjálfun í notkun geisla við greiningu og meðferð sjúkdóma, en ra- diographer er tœknifrœðingur, sem hefur hlotið þjálfun í að- ferðum geislagreiningar, sér- staklega röntgenmyndatöku. Heitið röntgenlæknir kemur hins vegar ekki fyrir í Iðorða- safninu, enda er ljóst að orð- hlutinn röntgen- er ekki lengur fullnægjandi samheiti á verk- sviðum geislalæknisfræðinnar, því að sumar greiningaraðferðir hennar byggja ekki á notkun röntgengeisla. Nefna má óm- skoðun (sonographia, echogra- phia) og segulskoðun (magnetic resonance imaging). Wilhelm K. Röntgen Ekki er úr vegi að rifja upp nokkur söguleg atriði vegna 100 ára afmælis röntgenfræðinnar. Wilhelm Konrad Röntgen LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 (1845-1923) var þýskur eðlis- fræðingur og prófessor við eðlisfræðideild háskólans í Wiirzburg þegar hann fann geislana sem eftir honum eru nefndir. Hann hafði unnið að tilraunum á rafleiðslu í loft- tæmdu rými og af tilviljun kom- ið auga á að tækið, sem hann notaði, varpaði frá sér ósýnileg- um geislum sem þó höfðu áhrif á ljósmyndaplötu eins og sýni- legt ljós og framkölluðu flúr- skímu (fluoresence) eins og út- fjólublátt ljós. Þessi uppgötvun varð til þess að hann gerði skipulegar og ítarlegar tilraunir á hegðun geislanna. Pær sýndu að geislarnir hegðuðu sér öðru vísi en ljósgeislar, meðal annars brotnuðu þeir ekki í prisma og gengu auðveldlega í gegnum flest ljósþétt efni. Þessar til- raunir prófessors Röntgens urðu til þess að hann kom auga á það að geislana var hægt að nota til að gera skuggamyndir af misþéttum hlutum, svo sem af mjúkvefjum og beinum í útlim- um manna. Sjálfur nefndi hann geislana X-Strahlen (X-rays), en þegar hann hafði kynnt nið- urstöður sínar á fundi í vísinda- félaginu í Wúrzburg þann 28. desember 1895, ákvað félagið með atkvæðagreiðslu að þessir nýfundnu geislar skyldu kallað- ir Röntgen-geislar. Wilhelm K. Röntgen fékk Nóbelsverðlaun í eðlisfræði fyrir uppgötvun sína, þegar þau voru veitt í fyrsta sinn árið 1901. Allt fram til ársins 1975 var mælieiningin röntgen notuð til að gefa til kynna magn geislunar. Jóhann Heiðar Jóhannsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.