Læknablaðið - 15.01.1996, Blaðsíða 116
92
LÆKN ABLAÐIÐ 1996; 82
upphandleggsbrotið. Hann
fékk heimfararleyfi 19. ágúst, 80
dögum eftir hrapið, með hratt
batnandi hreyfingu í vinstri axl-
arlið, en gekk lítið eitt haltur.
Drengurinn var í skóla næsta
vetur á Hellissandi, en þar átti
hann heima og sumarið eftir
vann hann við skreiðarverkun
og gekk það allvel enda þótt dá-
lítið bæri á þreytuverk í vinstri
handlegg, eins og segir í sjúkra-
skrá frá janúar 1963, en þá var
hann lagður inn að nýju til lag-
færingar á hægri úlnlið vegna
vaxtartruflunar í hægra geisla-
beini. Varð því að stytta ölnina
um l'A sm. Eftir það varð hreyf-
ing í úlnliðnum eðlileg, en fram-
handleggurinn l'A sm styttri en
sá vinstri.
Mann þennan sá ég aldrei eft-
ir að við lyftum sjúkrabörunum
inn í flugvél Björns Pálssonar.
Það var svo ekki fyrr en ég fór
að rifja þennan atburð upp, að
ég leitaði eftir nafni hans í gögn-
um Landspítalans. Hafði ég
samband við hann í síma í júlí á
liðnu sumri (1995) til að fá sam-
þykki hans til þess að segja
þessa sögu. Það fyrsta sem hann
sagði var, að hann hefði lengi
langað til þess að hitta mig, en
aldrei mannað sig upp í það og
spurði, hvort við ættum ekki
bara að hittast, úr því ég væri
farinn að sýna honum slíkan
áhuga. Við hittumst svo á heim-
ili hans í Reykjavík. Hann býr í
fallegri íbúð ásamt fjölskyldu
sinni. Hefur lengi verið húsa-
smíðameistari, en er nýlega
hættur smíðum, orðinn nætur-
vörður við Skyggni, breytti til
eftir að vinna við smíðar minnk-
aði. Hann leyfði mér góðfúslega
að taka af sér myndir, en á hon-
um eru engin lýti að sjá, önnur
en ör efst á vinstri upphandlegg
og hægri framhandleggur er l'A
sm styttri en sá vinstri, en það
hefur aldrei háð honum og hann
hefur aldrei haft nein óþægindi,
sem rekja mætti til hrapsins í
Króksbjargi.
A einum veggnum í stofu
þeirra hjóna hangir stór litmynd
af Króksbjargi, þeim hluta
bjargsins sem hann hrapaði í.
Voru þau nýlega búin að fá
þessa mynd. Eftir nokkra leit
fundu þau hana hjá ljósmyndar-
anum Mats Vibe Lund. Ég fór
að dæmi þeirra og fékk glærur af
bjarginu hjá ljósmyndaranum.
Einnig sýndi hann mér Morg-
unblað, gulnað af elli. Það var
frá laugardegi 3. júní 1961. Á
baksíðu er sagt frá þessum at-
burði eftir fréttaritara blaðsins á
Skagaströnd. Ástæða þess að
hann átti þetta blað var sú, að
þegar eldri sonur þeirra hjóna
var í efsta bekk í barnaskóla
fékk bekkurinn það verkefni að
skrifa ritgerð um einhvern
minnisstæðan atburð varðandi
Króksbjarg. © Mats Wibe Lund.