Læknablaðið - 15.09.1998, Side 75
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
689
Ritfregnir
garðyrkju og hefur líklega
komist að sömu niðurstöðu og
Birtíngur forðum í sögu Vol-
tairs: en þar segir Birtíngur í
sögulokum eftir að hafa lent í
hinum margvíslegustu hrakn-
ingum um álfur og lönd
þetta er vel mælt, en maður
verður að rækta garðinn sinn“.
Kollegi nokkur sem heim-
sótti Busch sá ekkert á heimil-
inu sem minnti á ævistarf hús-
ráðenda, nema hina íslensku
fálkaorðu og virtist hún hafa
verið Busch mjög kær og með
þessu er ég kominn að kjama
málsins: Það er ekki nóg að
vera þakklátur og hugsa með
virðingu til þessara dugmiklu
manna, maður verður líka að
tjá það á áþreifanlegan hátt og
vil ég nú biðja kollega mína
Bjarna og Kristin um að af-
henda þessum heiðursmönn-
um viðurkenningarnar.
Takk fyrir.
Heiðursgestirnir þökkuðu
báðir fyrir sig og dr. Bjarni
leiðrétti söguna af dr. Busch,
sem hætti störfum eftir að
hann hafði fengið aðsvif við
vinnu sína en var ekki kominn
á eftirlaunaaldur.
Frú Þorbjörg Þóroddsdóttir
ávarpaði frú Ingeborg Einars-
son og bar lof á hana fyrir
brautryðjendastarf í garðrækt
og ekki minnst blómarækt í
Reykjavík og jafnframt hlý-
hug og gestrisni í sinn garð.
Heiðursskjölin eru hand-
gerð af Soffíu Árnadóttur
grafískum hönnuði og er
merki félagsins gert úr gull
foliu.
Til fróðleiks má geta þess
að dr. Busch fékk riddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu þann
1. mars 1950.
Garðar Guðmundsson
Læknablaðinu hefur borist
fylgirit við heilbrigðisskýrslur
frá landlæknisembættinu en
það ber heitið Réttargeðdeild-
in að Sogni. Greinargerð eftir
5 ára starf. Höfundar þess em
Ragnheiður Hergeirsdóttir
yfirfélagsráðgjafi og Magnús
Skúlason yfirlæknir. Efni rits-
ins skýrist af heiti þess en í
lokaorðum greinargerðarinnar
segir svo:
„Nú er komin rúmlega 5 ára
reynsla af rekstri og starfsemi
réttargeðdeildar á íslandi.
Ekki verður lengur komist hjá
því að veita meira fjármagni í
starfsemina eigi hún yfirleitt
að vera til. I þessari samantekt
er reynt að varpa ljósi á starf-
semina og helstu vandamál
sem hún stendur frammi fyrir í
dag.“
Þá hefur embætti landlækn-
is einnig gefið út Tímariialista
Bókasafns landlœknisemb-
œttisins en hann hefur að
geyma skrá yfir öll þau tímarit
sem embættið er áskrifandi
að. Þar segir Stefanía Júlíus-
dóttir forstöðumaður bóka-
safnsins meðal annars í for-
mála:
„Á Tímaritalistanum eru
vefföng þeirra áskriftartíma-
rita Landlæknisembættisins,
sem hafa efnisyfirlit, útdrætti
og í sumum tilvikum allan
textann aðgengilegan um Lýð-
netið (Internetið) endur-
gjaldslaust í rafrænu formi,
miðað við ársbyrjun 1998. Til
stendur að setja Tímaritalist-
ann á heimasíðu Landlæknis-
embættisins [http://www.land-
laeknir.is] með tengingum frá
titli tímarits yfir í rafræna
formið ...“
Blaðinu hefur einnig borist
Ársskýrsla Krabbameinsfé-
lagsins sem lögð var fram á
aðalfundi félagsins 8. maí
1998. Þar kemur fram að starf-
semi félagsins hafi verið með
venjubundnum hætti á liðnu
starfsári en meðal nýjunga er
nefnd áherslubreyting í
fræðslu um tóbaksvarnir sem
færst hefur frá Krabbameins-
félagi Reykjavíkur til grunn-
skólans.
Einnig kemur fram að hald-
ið var upp á 10 ára afmæli
tveggja þátta í starfsemi fé-
lagsins á starfsárinu. Annað
afmælisbarnið var Heima-
hlynning sem hefur fest sig í
sessi en þar starfa nú sjö
hjúkrunarfræðingar og þrír
læknar. Hitt afmælisbarnið var
Rannsóknastofa Krabba-
meinsfélagsins í sameinda- og
frumulíffræði sem hélt upp á
10 ára afmælið í mars á þessu
ári. Um hana segir Guðrún
Agnarsdóttir forstjóri Krabba-
meinsfélags íslands í formála:
„Á fslandi eru kjöraðstæður
til krabbameinsrannsókna eins
og margir vita. Þær hafa verið
nýttar af starfsfólki rann-
sóknastofunnar með afar góð-
um árangri og hafa niðurstöð-
ur þeirra og annars íslensks
rannsóknarfólks á þessu sviði
vakið mikla og verðskuldaða
athygli á alþjóðavettvangi.
Það má teljast vel að verki
staðið að rannsóknastofa með
ekki lengri starfstíma skuli
hafa náð svo miklum afköst-
um.“
Loks ber að geta þess að
landlæknisembættið hefur
gefið út upplýsingabækling á
ensku undir heitinu Health in
Iceland. Eins og nafnið bendir
til eru hér á ferðinni tölfræði-
upplýsingar um íslenskt
heilbrigðiskerfi, lífsgæði og
algengi ýmissa sjúkdóma hér
á landi.