Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.1998, Side 76

Læknablaðið - 15.09.1998, Side 76
690 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Iðorðasafn lækna 103 Augnorð í 85. og 86. pistli (Lbl 1997; 83: 42 og 123) voru nokkur augnorð tekin til skoðunar. Annars hefur umræða um augnsjúkdómafræði ekki ver- ið sérlega fyrirferðarmikil í þessum pistlum og undirritað- ur verður að viðurkenna að hann hefur ekki mikla tilfinn- ingu fyrir því hversu mikið sé um vandamál á sviði íslenskra íðorða í þeirri grein. Ljóst er þó að augnlæknar þeirrar kyn- slóðar, sem nýlega er sest í helgan stein eða horfin yfir móðuna miklu, lögðu ríka áherslu á að nota íslensk fræðiheiti í viðræðum við sjúklinga sína. Undirritaður hefur orðið var við það að meðal yngri augnlækna eru einnig áhugamenn um varð- veislu og gerð íslenskra augn- fræðiheita. Þeir hafa þó ekki mikið haft sig í frammi á þess- um vettvangi og beiðnir um aðstoð við myndun íðorða í nýjustu tækni augnlækninga hafa ekki verið margar. Þetta er ekki sett fram til umvönd- unar, heldur til þess að reyna að vekja áhuga og umræðu og bjóða fram aðstoð ef hennar er þörf. Orðanefnd læknafélag- anna er mikið í mun að safna íslenskum íðorðum og heitir á alla lækna að senda henni hugarsmíðir sínar. Sendingar þurfa ekki að vera ýkja form- legar eða hugmyndir ítarlega rökstuddar. Stutt ábending í síma og handskrifaður minn- ismiði geta gert sama gagn og formlegt bréf eða hátækni- sending um alnetið. Gleraugu á Esjuna Hugmyndin að umræðu um augnorð kom fram við lestur á frétt í Morgunblaðinu þann 14. ágúst síðastliðinn. Sagt var frá því að myndlistarmað- urinn Stefán Geir Karlsson hefði í hyggju að setja gler- augu á Esjuna í tilefni af því að Reykjavík verður ein af menningarborgum Evrópu ár- ið 2000. Gleraugun eiga að vera nákvæm en risavaxin eft- irmynd af gleraugum, sem Halldór Laxness notaði á sín- um yngri árum, og standa sumarlangt. Eins og svo oft áður vita menn í fyrstu ekki sitt rjúkandi ráð þegar stór- kostlegar hugmyndir eru sett- ar fram. Á annarri myndinni sem fylgir fréttinni hafa slík gleraugu verið sett með tölvu- tækni á eitt klettanefið sem skagar fram úr Esjunni. Ekki kemur beinlínis fram hvort þetta sé hugmynd listamanns- ins eða útfærsla blaðsins, en lesandinn fær auðveldlega þá tilfinningu að þarna sé verið að sýna fram á dulræn og söguleg tengsl fortíðar og nú- tíðar. Ævaforn klettarisinn er settur í það hlutverk að fylgj- ast með okkur örsmáum mann- verunum um skamma hríð og við fáum að sjá að með okkur sé fylgst. Ekki spillir að minn- ast þess að í gegnum gleraugu Halldórs fengum við að sjá marga þættina í því sem við getum kallað íslendingseðlið dregna skírum dráttum. Mörg- um líkaði ekki það sem þeir fengu að sjá, en eftir á getum við ef til vill sættst á að áminningar hafi verið þörf. Skyldi svo vera enn? Nærsýni, fjarsýni Undirritaður hnaut um þá skýringu að Esjan þyrfti gler- augu af því að hún væri orðin fjarsýn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem undirritaður rekst á það að orðin fjarsýni og nær- sýni virðast misskilin. Margir í nánasta kunningjahópnum eru komnir á þann aldur að lesgleraugun mega aldrei vera langt undan og í tilefni af því hefjast oft umræður. Sumir hafa aldrei áður þurft á gler- augum að halda, sjá vel frá sér og eru því fjarsýnir. Aðrir hafa gengið með gleraugu frá unga aldri, séð illa það sem fjarri er, en vel það sem næst þeim er, og hafa því verið nefndir nærsýnir. Undirrit- uðum finnst að þessi orð ættu að vera auðskilin og Islensk orðabók Máls og menningar útskýrir þau mjög skil- merkilega, þó að Iðorðasafn lækna birti heitin myopia, nærsýni, og hyperopia, fjar- sýni, án nokkurra skýringa. Ekki er ætlunin að gera lítið úr hugmynd listamannsins, en líklegra er að öldungurinn Esjan hafi tapað nærsýni sinni og þurfi fremur lesgleraugu frá efri árum Halldórs en nær- sýnisgleraugun frá yngri ár- um hans. Hitt er svo annað mál að við hin getum haft gott af því að kiifra upp á Esjuna og horfa úr fjarska á samfélagið okkar í gegnum nærsýnisgler- augu Halldórs. Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.