Læknablaðið - 15.09.1998, Page 86
700
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Opni EQuiP fundurinn
um gæðaþróun
Hótel Sögu, Reykjavík, 5. nóvember
Þann 5.-7. nóvember næstkomandi verður haldinn í Reykjavík fundur vinnuhóps EQuiP,
sem er vinnuhópur heimilislækna í Evrópu um gæðaþróun. í tengslum við fundi vinnu-
hópsins verður opinn fundur á Hótel Sögu fimmtudaginn 5. nóvember kl. 10:00-17:00 og
er hann ætlaður heimilislæknum og öðru fagfólki í heilsugæslu. Aðrir læknar og heilbrigð-
isstarfsfólk er einnig velkomið.
Erlendir fyrirlesarar verða Leif Persson frá Svíþjóð, sem talar um leiðir til gæðaumbóta,
Luis Pisco frá Portúgal, sem talar um gæðaþróun og gæðahópa, og Richard Baker frá
Bretlandi, sem talar um gæðaþróun á Bretlandseyjum og sérstaka gæðahópa (MAAG).
Eftir hádegishlé verða kynnt ýmis gæðaþróunarverkefni íslenskra heimilislækna og mun
nánari dagskrá birtast í októberhefti Læknablaðsins. Fundur þessi tengist vísindaþingi Fé-
lags íslenskra heimilislækna, sem haldið verður á sama stað 6. og 7. nóvember.
ítarlegri upplýsingar veitir Gunnar Helgi Guðmundsson, formaður gæðaráðs Félags ís-
lenskra heimilislækna, Heilsugæslustöðinni Fossvogi.
Fjórða vísindaþing
Félags íslenskra
heimilislækna
Reykjavík 6.-7. nóvember
Á þinginu verða bæði frjálsir fyrirlestrar og spjaldasýning. Kynntar verða rannsóknir og
rannsóknaráætlanir sem tengjast heilsugæslu. Auk þess verða bæði innlendir og erlendir
gestafyrirlesarar.
Ágrip skal skrifa á A4-blað með sama sniði og á fyrri þingum. Þar skal koma fram tilgangur
rannsóknarinnar, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Ágripum skal skilað á
disklingum ásamt einu útprenti til Emils L. Sigurðssonar, Heilsugæslutöðinni Sólvangi,
220 Hafnarfirði fyrir 15. september.
Ágripin verða birt í sérstöku blaði þingsins sem dreift er til allra lækna á íslandi.
Vísindaþingsnefndin
Emil L. Sigurðsson
Jón Steinar Jónsson
Sigríður Dóra Magnúsdóttir