Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1998, Page 24

Læknablaðið - 15.11.1998, Page 24
840 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 þunglyndiseinkenna hjá íslenskum konum tveimur til þremur mánuðum eftir fæðingu og kanna samband þunglyndiseinkenna við for- eldrastreitu annars vegar og óværð ungbarna hins vegar. Ennfremur var ætlunin að meta áreiðanleika Edinborgar þunglyndiskvarðans og foreldrastreitukvarðans og samtímaréttmæti beggja kvarðanna. Efniviður og aðferðir Rannsóknarúrtak mynduðu allar íslenskar konur, sem höfðu fætt barn sem var lifandi tveimur til þremur mánuðum eftir fæðingu á einum ársfjórðungi ársins 1992, samtals 1058 konur. Fjöldi fæðinga þetta ár var 4591 (þýði), en konurnar sem mynduðu úrtakið voru valdar úr þjóðskrá (29). Að liðnum tveimur mánuðunt frá fæðingu fengu konurnar senda spurninga- lista. Ef svör bárust ekki innan tveggja vikna voru þeim send ítrekunarbréf tveimur og fjór- um vikum seinna. Konur sem ekki skildu ís- lensku voru undanskildar. Leyfi fékkst hjá Tölvunefnd fyrir rannsókn- inni. Spurningalistum fylgdi bréf um upplýst samþykki, sem konurnar voru beðnar um að kynna sér og endursenda með eiginhandarárit- un. Eftirfarandi spurningalistar voru sendir: Ed- inborgar þunglyndiskvarði (20), foreldra- streitukvarði, styttri útgáfa (30), óværðarkvarði (Infant Difficulty Index) og lýðbreytulisti (1). Edinborgar þunglyndiskvarðinn: Kvarðinn tekur til 10 atriða sem mæla tíðni þunglyndis- einkenna eftir fæðingu með réttmætari og áreiðanlegri hætti en aðrir þunglyndiskvarðar (31,32). Hvert svar hefur gildi á bilinu 0-3 og er hámarksstigafjöldi því 30. Viðmiðunar- mörkin >12 stig hafa verið sett fyrir greiningu þunglyndis hjá úrtökum breskra kvenna. Séu viðmiðunargildin 9-10 valin, greinast 90% af þeim sem þjást af alvarlegu þunglyndi og 75% af þeim sem hafa vægt þunglyndi (sensitivity, næmi). Gildi 12 hjá sömu úrtökum greinir 80% af þeim sem hafa alvarlegt þunglyndi og 50% af þeim sem upplifa vægt þunglyndi. Með kvarðanunt greinast tveir þriðju kvenna með þunglyndi (specificity, sértæki) (33). I úrtökum kvenna með einkenni er sértæki hærri en hjá samfélagsúrtökum. Séu til dæmis viðmiðunar- gildi 12 eða meira sett fyrir úrtak kvenna með einkenni greinast 95% þunglyndra mæðra (20,21). Endurprófun eftir tvær til fjórar vikur er talin auka áreiðanleika og réttmæti til að Table I. Demographic characteristics of Icelandic mothers and infants two to three months postpartum (N=734). Mean SD Range Matemal age (years) 28.3 5.8 16-43 Number of children 2.2 1.1 1-8 Infant difficulties* 1.7 1.7 0-9 Birthweight (grams) 3646 631 1045-6310 *Infant Difficulty Index Table II. Demographic characteristics of Icelandic mothers two to three months postpartum (N= 734). N (%) Type of deliverv Normal 521 (70.9) Cesarean section 91 (12.4) Forceps / vacuum extraction 122 (16.7) Murital status Married 352 (47.8) Cohabitating 313 (42.6) Single/other 69 (9.2) Educational level Primary 306 (41.6) Secondary 287 (39.2) Tertiary 141 (19.2) greina langvarandi vanlíðan og þunglyndi (15). Islensk útgáfa af Edinborgar þunglyndis- kvarðanunt var forprófuð árið 1990 á 201 konu á þremur heilsugæslustöðvum á höfuðborgar- svæðinu tveimur til þremur mánuðum eftir fæðingu. Niðurstöður leiddu í ljós að kvarðann var hægt að nota til að leita þunglyndisein- kenna og til að meta vanlíðan, sem annars hefði ekki orðið vart við. Areiðanleikaprófun stað- festi einsleitni kvarðans (34). Foreldrastreitukvarðinn: Streita í foreldra- hlutverki var könnuð með styttum 36 atriða streitukvarða fyrir foreldra. Kvarðinn saman- stendur af þremur undirkvörðum í 12 liðum, sem mæla skynjaða streitu í foreldrahlutverki, í samskiptum við barnið og í tenglsum við erfið- leika í skapferli barnsins. Heildarstreita í for- eldrahlutverki fæst með samlagningu á gildum allra undirkvarða og er hámarksgildi 180. Gildi >90 eru álitin vísbending um áhættu fyrir vel- ferð foreldris og barns. Lægsta gildi er 36 stig (30). Kvarðinn var forprófaður árið 1992 á úrtaki 255 íslenskra mæðra með ungbörn á fyrsta ald- ursári sem voru valdar með einfaldri tilviljun- arkenndri aðferð úr þjóðskrá. Niðurstöður for- prófunar staðfestu einsleitni kvarðans en að- eins var hægt að nota hann frá sex mánaða aldri barnsins (35). Orðalagsbreytingar á leiðbein-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.