Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 68
880
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Dreifibréf landlæknisembættisins nr.
5/1998
Bólusetning gegn inflúensu
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
ráðleggur að inflúensubólu-
efni 1998-1999 innihaldi eft-
irtalda stofna:
A/Sydney/5/97 (H3N2) - lík-
ur stofn
A/Beijing/262/95 (HlNl) -
líkur stofn
B/Beijing/184/93 - líkur
stofn
Hverja á að bólusetja?
* Alla einstaklinga eldri en
60 ára.
* Öll börn og fullorðna sem
þjást af langvinnum hjarta-,
lungna-, nýrna-, og lifrar-
sjúkdómum, sykursýki, ill-
kynja sjúkdómum og öðr-
um ónæmisbælandi sjúk-
dómum.
* Starfsfólk heilbrigðisþjón-
Nú vetrar að og yfir 20
heilsugæslulækna vantar á
landsbyggðina. Verst er
ástandið á Vesturlandi, Vest-
fjörðum, Norður-Þingeyjar-
sýslu og Austfjörðum. Einn
læknir gegnir oft tveggja til
þriggja lækna starfi. Tekið er
með þökkum á móti læknum
sem hlaupa í skarðið, jafnvel í
eina til tvær vikur. Laun lækna
hafa hækkað verulega.
ustu og aðra þá sem daglega
annast fólk með aukna
áhættu.
Brýnt er að bólusetningu
ljúki eigi síðar en í nóvember-
lok.
Frábendingar
Ofnærni gegn eggjum,
formalíni eða kvikasi ll'ri.
Bráðir smitsjúkdómar.
Bólusetning gegn
pneumókokkasýkingum
Sóttvarnalæknir vill einnig
minna á bólusetningar gegn
pneumókokkasýkingum á 10
ára fresti til handa öllum sem
eru eldri en 60 ára og fimm
ára fresti til handa einstak-
lingum sem eru í sérstökum
áhættuhópum.
Búnaður heilsugæslustöðva er
með því besta sem gerist. Hús-
næði og ferðir verða greiddar.
Þeir sem hafa áhuga á af-
leysingu eru vinsamlega beðn-
ir um að hafa samband við
héraðslæknana Reyni Þor-
steinsson Akranesi, Friðnýju
Jóhannesdóttur Isafirði, Ólaf
Hergil Oddsson Akureyri,
Stefán Þórarinsson Egilsstöð-
um eða landlækni.
Aðbúnaður,
vinnutími,
menntun og
afköst lækna
á heilsu-
gæslu-
stöðvum
NIVEL sem er hollensk
rannsóknarstofnun kannaði
aðbúnað, vinnutíma, fram-
haldsmenntun og afköst meðal
heilsugæslulækna í Evrópu.
Yfir 13.000 læknar fengu
spurningalista til útfyllingar,
um vinnutíma, framhaldsnám,
fjölda sjúklingasamkipta á
viku og tækjabúnað.
Niðurstöður
Á myndum 1 og 2 á síðunni
hér á móti má sjá vinnutíma
og hlutfall lækna með fram-
haldsmenntun.
Meðalvinnutími lækna á
viku á íslandi eru rúmar 55
klukkustundir og erum við því
í miðjum hópi Evrópulækna.
Nær 80% heilsugæslulækna á
íslandi eru með framhalds-
menntun í greininni. Þar erum
við í fjórða sæti af 16 þjóðum
Norður- og Vestur-Evrópu.
íslenskir læknar sinna að
meðaltali 150 sjúklingum á
viku. Tækjabúnaður á heilsu-
gæslustöð er með ágætum og
eru íslenskir læknar aðrir í
röðinni af 16 þjóðum.
Dreifibréf landlæknisembættisins
nr. 6/1998
Heilsugæslulækna vantar