Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 89
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
897
Ný stjórn
Aðalfundur Félags íslenskra heimilislækna
var haldinn að Hlíðasmára 8, Kópavogi, laugar-
daginn 3. október. Stjórn félagsins er skipuð
sem hér segir: Katrín Fjeldsted formaður
(katfjel@ismennt.is), Valþór Stefánsson vara-
formaður, Gísli Baldursson ritari, Þórir B
Kolbeinsson meðstjómandi. Varamenn í stjórn
eru: Haukur Valdimarsson, Anna K. Jó-
hannsdóttir, Hafsteinn Skúlason og Gísli
Júlíusson.
Aðalfundur Félags
íslenskra lækna
undir sjávarmáli
Hinn 5. september síðastliðinn var aðalfund-
ur Félags íslenskra lækna undir sjávarmáli
(FÍLUS) haldinn í Utrecht, Hollandi. Fundur-
inn var fjölsóttur enda FÍLUS ört stækkandi fé-
lag. A fundinum var saga félagsins kynnt, nú-
verandi starfsemi rædd og framtíð félagsins
mörkuð. í nánustu framtíð verður áhersla lögð á
miðlun upplýsinga um sémám lækna í Hollandi
og þær upplýsingar gerðar aðgengilegri. Þá
verður þátttaka í stefnumótun íslenskra heil-
brigðismála og samkipti við Læknafélag ís-
lands aukin.
Nýja stjórn skipa: Vigfús Sigurðsson for-
maður, Björn Hjálmarsson gjaldkeri og Helgi
Hafsteinn Helgason ritari.
Nýtt félag um
hjarta- og lungna-
endurhæfíngu
Föstudaginn 13. nóvember næstkomandi
verður haldinn stofnfundur félags fagfólks um
hjarta- og lungnaendurhæfingu. Tilgangur fé-
lagsins er að vera þverfaglegur samstarfsvett-
vangur þeirra sem vinna að framgangi hjarta-
og lungnaendurhæfingar.
Stofnfundurinn verður haldinn á Grand Hó-
tel Reykjavík (Háteigur), föstudaginn 13. nóv-
ember kl: 18.00. Léttar veitingar verða í boði
Pharmaco að fundi loknum.
Með von um að sjá sem flesta.
Undirbúningsnefndin
Iðgjald til Lífeyris-
sjóðs lækna
Eitt stig fyrir árið 1998 er kr. 207.000,-
Þannig að lágmarksiðgjald til að viðhalda
réttindum, það er 1/3 úr stigi, er kr.
69.000,-.
Þau sem borga iðgjaldið beint til sjóðsins,
eru beðin að inna það af hendi sem fyrst.
Lækningastofa
-flutningur
Hef flutt lækningastofu mína á göngu-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Fossvogi,
sími 525 1750.
Sigurgeir Kjartansson
sérgrein almennar skurðlækningar
og æðaskurðlækningar
Ný lækningastofa
Hef opnað lækningastofu í Læknastöð
Vesturbæjar, Melhaga 20-22 (Vesturbæj-
arapóteki).
Viðtalsbeiðnum veitt móttaka kl. 10-17 í
síma 562 8090.
Haukur Hjaltason
sérgrein heila- og taugasjúkdómar