Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 38
852 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Á að sameina stóru sjúkrahúsin? Málþing lækna Eitt eða tvö sjúkrahús í Reykjavík? - Vaxandi áhugi á aö byggja nýtt og fullkomið sjúkrahús sem leysti þau tvö sem fyrir eru af hólmi Meðan á aðalfundi Lækna- félags Islands stóð var efnt til málþings um efnið: Eitt eða tvö sjúkraluís í Reykja- vík. Eins og við mátti búast urðu líflegar umræður um efnið og ekki dró það úr spennunni að Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra hafði daginn áður lýst því yfir að hún væri að leita að einum forstjóra fyrir Ríkisspítala og Sjúkrahús Reykjavíkur. Það eru skiptar skoðanir um rekstur stóru sjúkrahúsanna í röðum lækna enda varla á öðru von. I ljósi þess var athyglis- vert að heyra að flestir virtust samt geta tekið undir það að sameining sjúkrahúsanna eins og þau eru nú sé ólíkleg til að skila nokkrum árangri. Hins vegar væri mun meiri von til þess að ná fram aukinni hag- kvæmni og betri þjónustu ef ráðist yrði í að byggja nýtt há- tæknisjúkrahús sem gæti tekið við starfsemi þeirra sem fyrir eru. Og það var á mönnum að heyra að þótt slíkt sjúkrahús myndi kosta tugi milljarða króna gæti það skilað sér til baka á sjö til átta árum. Fjórir frummælendur voru á málþinginu en þegar Sigurð- ur Ólafsson læknir á Akranesi og fundarstjóri setti fundinn ræddi hann um mikilvægi þess að LÍ mótaði sér stefnu í málefnum sjúkrahúsanna, slík stefna væri því miður ekki til þótt starfshópur hefði fjallað um málið. Síðan gaf Sigurður fyrsta frummælandandum orð- ið en það var Tryggvi As- mundsson. Prjár leiðir til sameiningar Erindi Tryggva hét Samein- ing áfaglegumforsendum en í því rakti hann helstu kostina sem verið hafa til umræðu þegar sameiningu sjúkrahús- anna ber á góma. Hann kvart- aði undan því að lítið hefði heyrst úr ráðuneytinu eftir að læknar og aðrir starfsmenn stóru sjúkrahúsanna hefðu tekið höndum saman um að andmæla frægri skýrslu sem ráðgjafarfyrirtækið VSÓ-ráð- gjöf skilaði á sínum tíma. Það væri miður því hver dagurinn sem liði án þess að ákvörðun um framtíð spítalanna væri tekin kostaði mikið. Tryggvi taldi upp þrjár leið- ir sem mögulegt væri að fara í sameiningarmálinu. í fyrsta lagi væri sú leið að byggja nýtt og fullkomið sjúkrahús í Reykjavík. Það væri besti kosturinn því þá næðust flest markmið, vinnuaðstaða batn- aði til muna og hagkvæmni ykist með betri nýtingu tækja og mannafla, auk þess sem viðhaldskostnaður við bygg- ingar sparaðist en hann nemur um 300 milljónum króna á Landspítalanum einum. Ókosturinn við þessa leið væri sá að ekki yrði nein sam- keppni milli sjúkrahúsa en faglegur ávinningur af sam- einingunni myndi vega það fyllilega upp. Önnur leið sem Tryggvi sér í stöðunni er sú að sameina sjúkrahúsin undir stjórn læknadeildar Háskóla íslands. Hann kvaðst sjálfur hafa unnið á slíkri stofnun í Bandaríkjun- um og hún hefði geftð góða raun. Þriðji kosturinn er sá sem hjúkrunarfræðingar hafa hald- ið á lofti en þá yrðu sjúkrahús- in rekin sem parsjúkrahús, tvær aðskildar stofnanir undir einni yfirstjóm. Með því móti væri hægt að bæta reksturinn og samræma ýmislegt en fag- lega hliðin yrði að mestu leyti útundan. Tekjuvandi sjúkrahúsanna Næstur talaði Jóhannes M. Gunnarsson en erindi hans hét Nauðsyn á valkostum í sjúkrahúsþjónustu. Hann sagði í upphafi að vandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.