Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 58
872
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
- Eruð þið búin að tryggja
ykkur þessa peninga?
„Nei, við erum búin að fara
fram á 200 milljóna króna
fjárveitingu á næsta ári til
þessara mála. Eg er þeirrar
skoðunar að stofnunin verði
að útskýra þennan vanda vel
fyrir þjóðinni, eiganda sínum,
upplýsa hvað það kostar að
leysa hann og leggja áherslu á
mikilvægi þess að brugðist sé
við. Það er hagur allra lands-
manna að það sé gert.“
- í fjölmiðlun hefur komið
fram að stjórnendur íslenskra
fyrirtækja og stofnana geri lít-
ið úr aldamótavandanum og
vilji helst ekki horfast í augu
við hann. A það líka við um
heilbrigðiskerfið?
„Eg held að augu fólks séu
að opnast fyrir alvöru þessar
vikurnar. Það vantar kannski
að einhver gangi fram fyrir
skjöldu og viðurkenni hversu
mikill vandinn sé og að það
þurfi að takast á við hann. Við
höfum setið fundi með stjórn
Ríkisspítala og sviðsstjórum
hinna 11 sviða sem stofnunin
skiptist í og þeir eru að skoða
stöðumatið. Eg á von á því að
frá þeim komi margar hug-
myndir um það hvernig best
verði brugðist við á hverri
deild.“
í aðgerð á nýársnótt
- En hvað um hinn almenna
starfsmann? Nú eru starfandi
um 3.000 manns hjá Ríkis-
spítölum og þessi vandi snert-
ir væntanlega mjög stóran
hluta þeirra. Þarf ekki að
fræða þá?
„Jú, þetta snertir langflesta
og við höfum sett fram hug-
myndir um það hvernig staðið
verði að því að kynna starfs-
mönnum það sem er að gerast
því það er mjög mikilvægt að
virkja þá. Ætlunin er að setja
upp vefsíðu þar sem starfs-
menn og aðrir geta fylgst með
stöðu mála. Við munum gera
stöðumat mánaðarlega og
birta það á vefsíðunni.“
- Ertu bjartsýnn á að ykkur
takist að fara hnökralaust í
gegnum aldamótin?
„Já, ég hef fulla trú á því að
hér verði allt með felldu þegar
árið 2000 gengur í garð. Við
höfum rætt um það í hópnum
að við værum reiðubúnir að
vera hér í opinni aðgerð um
miðnætti á nýársnótt ef á
þyrfti að halda,“ sagði Ólafur
og virtist meina það.
-ÞH
SCHERING
Mel
Schering, 940261
UÍS 98-58. sept. 98
TÖFLUR: G03AA10. Hvertafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 20 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Ábendingar: Getnaðarvöm. Frábendingar:
Þungun, alvarleg röskun á starfsemi lifrarinnar, gula eða þrálátur kláði við fyrri þungun, Dubin-Johnson heilkenni, Rotor heilkenni, æxli í lifur eða saga um æxli
í lifur, segarek, saga um segarek eða aðstæður sem valda hættu á því, t.d. truflun á blóðstorkuþáttum, hjartalokusjúkdómar og gáttatitringur, sigðfmmublóðleysi,
þekkt æxli eða saga um æxli sem kynhormónar geta haft áhrif á, t.d. krabbamein í brjósti eða legslímhúð, alvarleg sykursýki með æðabreytingum, tmflanir á
fituefnaskiptum, saga um herpes,("herpes gestationis" er ákveðinn húðsjúkdómur, sem getur komið upp á meðgöngu og lýsir sér m.a. með blöðmm á húð,
brengluðum lifrarprófum o.fl., versnandi kölkun í miðeyra á meðgöngutíma, blæðingar úr leggöngum af óþekktri orsök, ofnæmi fyrir einhveiju innihaldsefna
Meloden.
Aukaverkanir: Sjaldgæfar em höfuðverkur, magakveisa, ógleði, eymsli í brjóstum, breytingar á líkamsþyngd, breytingar á kynhvöt, þunglyndi getur komið fyrir.
Hjá konum sem hafa tilhneigingu til þess, getur notkun lyfsins stundum valdið litarbreytingum í andliti (chloasma), sem aukast við sólslan. Þær konur ættu að
forðast að vera lengi í sólskini. Greint hefur verið frá einstaka tilvikum af óþoli gagnvart augnlinsum við notkun getnaðarvamataflna. Þær konur sem nota linsur
og verða,fyrir breyttu þoli gagnvart þeim ættu að fara í skoðun til augnlæknis.
Varúð: Ástæður til að hætta notkun Meloden strax: Mígrenihöfuðverkur í fyrsta sinn, versnun á mígreni eða aukin tíðni óvenjulega mikils höfuðverkjar, skyndileg
truflun á sjón eða heym eða aðrar skyntmflanir, fyrstu merki um æðasegabólgu eða segarek (t.d. óvenjulegir verkir eða þroti í fótum, stingandi verkur samfara
öndun eða hósti án nokkurrar augljósrar ástæðu), verkur og þrengsli fyrir brjósti, sex vikum fyrir fyrirhugaða skurðaðgerð og meðan á rúmlegu stendur, t.d. eftir
slys, skurðaðgerð, gula, lifrarbólga, kláði um allan líkamann, aukin flogaveikisköst, marktæk hækkun blóðþrýstings, alvarlegt þunglyndi, alvarlegir verkir í efri
hluta kviðarhols eða stækkun lifrar, þungun. Við eftirfarandi aðstæður skal ekki nota getnaðarvamatöflur nema undir ströngu eftirliti læknis. Versni einhverjar
þessara aðstæðna, getur verið ástæða til þess að hætta notkun getnaðarvamalyfsins: sykursýki eða skert sykurþol, háþrýstingur, æðahnútar, saga um bláæðabólgu,
kölkun í miðeyra, MS-sjúkdómur (multiple sclerosis), flogaveiki, porfýría, kalkstjarfi (tetany), Sydenham's chorea, skert nýmastarfsemi, saga um tmflun á
blóðstorknun, offita, saga um brjóstakrabbamein í fjölskyldunni og saga um hnúta í bijóstum, saga um þunglyndi, rauðir úlfar (systemic lupus erythematosus),
vöðvahnútar í legi (uterine myoma) og mígreni.
Að því sem best er vitað er ekki hægt að útiloka samband milli notkunar hormóna til getnaðarvama og aukinnar hættu á sjúkdómum er stafa af segareki í slagæðum
og bláæðum, svo sem kransæðastífla, blóðtappi í lungum, æðasegabólga, slag eða segamyndun í sjónhimnu. Læknir skal vera á verði fyrir fyrstu merkjum um
slíka sjúkdóma. Vakni gmnur um einhvem þeirra, skal strax hætta að nota Meloden. Hætta á segastíflu í slagæðum (t.d. slagi eða kransæðastíflu) virðist aukast
enn þegar miklar reykingar, hækkandi aldur og notkun getnaðarvamataflna fer saman. Vegna þessa skal ráðleggja konum, sem em eldri en 35 ára og nota
getnaðarvamatöflur eindregið frá því að reykja. Auk þess geta tilteknir sjúkdómar, svo sem of hár blóðþrýstingur, of há blóðfita, oífita og sykursýki aukið áhættuna
hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur. Meta skal hvort æskilegt sé að nota lyfið þegar um þessa sjúkdóma er að ræða með tilliti til áhættunnar sem sjúkdómurinn
veldur og ræða það við konuna áður en hún ákveður að nota lyfið. Lýst hefur verið breytingum á þéttni þríglýseríða, kólesteróls og lípóprótína í blóði samfara
notkun getnaðarvamataflna. Getnaðarvamatöflur geta einnig valdið skertu sykurþoli. Lýst hefur verið hækkuðum blóðþrýsting hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur.
Blóðþrýstingurinn fer venjulega aftur í eðlilegt horf eftir að hætt er að nota lyfið. Sumar konur geta orðið fyrir tíðateppu eða óreglulegum blæðingum þegar þær
hætta notkun getnaðarvamataflna, einkum þegar um slíkt var að ræða áður en notkun þeirra hófst. Greina skal konum frá þeim möguleika. I sjaldgæfum tilvikum
hefur orðið vart við góðkynja og enn sjaldnar illkynja lifraræxli sem geta leitt til einstakra tilvika af lífshættulegum innvortis blæðingum eftir notkun hormóna á
borð við þá sem em í lyfinu. Verði vart við alvarlega verki í efri hluta kviðarhols, merki um stækkun á lifur eða blæðingar í kviðarholi, skal hafa möguleika á
lifraræxli í huga við sjúkdómsgreiningu. Við fyrri rannsóknir var greint frá aukinni hættu á sjúkdómum í gallblöðru sem vom staðfestir við uppskurð, hjá þeim
konum sem notuðu estrógen og getnaðarvamatöflur. Síðari rannsóknir hafa hins vegar leitt í ljós að hættan á sjúkdómum í gallblöðm sé hverfandi lítÚ.
Milliverkanir: Efnasambönd sem hvetja lifrarensím svo sem barbítúröt, prímídón, hýdantóín, fenýlbútasón, rífampisín, karbamazepín og griseófúlvín geta dregið
úr verkun Meloden. Skammtastœrðir: Fyrsta taflan úr Meloden pakkningunni skal tekin fyrsta dag tíðahringsins. 1 tafla á dag næstu 21 daga en síðan er 7 daga
hlé. Pakkningar: 21 stk. x 3. Nánari upplýsingar í texti Sérlyfjaskrár. Handhafi markaðsleyfis: ScheringAG. Umboðsmaður á íslandi: Thorarensen Lyf ehf.