Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 91
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
899
son. Mótinu lauk með matarboði styrktaraðil-
ans í klúbbhúsi Golfklúbbs Suðumesja.
Síðasta mót sumarsins var Glaxo-mótið sem
fór fram á Nesvelli hinn 28. ágúst. Leikin var
punktakeppni með fullri forgjöf (24). Þátt-
takendur voru 25. Sigurvegari mótsins var
Birgir Guðjónsson með 43 punkta, í öðru sæti
var Olafur Einarsson með 41 punkt og í þriðja
sæti var Ólafur Z. Ólafsson með 40 punkta.
Veitt voru nándarverðlaun á annarri braut og
hlaut þau Knútur Björnsson sem var 1,92 m frá
holu eftir upphafshöggið. Þá var dregið úr skor-
kortum um ein verðlaun, Knútur Björnsson
hlaut þau.
Þar með lauk formlegu starfi golfklúbbsins á
árinu 1998.
Stjórnin
Hvaða læknar eru
kynþokkafyllstir?
I viðamikilli könnun sem nýlega var gerð
meðal danskra hjúkrunarfræðinga koma í
ljós viðhorf þeirra til lækna sem hugsan-
legra mannsefna. Þar kemur meðal annars
fram að hjúkrunarfæðingar telja svæfinga-
lækna kynþokkafyllsta en húðlæknar hafa af
minnstum kynþokka að státa. Geðlæknar
eru kærulausastir lækna, háls-, nef- og
eyrnalæknar daðra mest en barnalækna
skortir alla kímnigáfu.
Niðurstöðurnar birtust í blaðinu Dagens
Medicin og þar kom í ljós að skurðlæknar
eru að áliti hjúkrunarfæðinganna mestu
herramennirnir auk þess að vera bæði
fyndnir og gáfaðir. Þeir væru því langæski-
legustu mannsefnin ef ekki kæmi til skortur
á persónutöfrum. Þá hafa kvenlæknar hins
vegar í ríkum mæli og þeir kunna líka að
klæða sig en þeir fá falleinkunn fyrir al-
mennt líkamsástand, auk þess sem þeir telj-
ast vera illa gefnir. Húðlæknar og röntgen-
læknar fá áberandi lélegustu einkunnirnar
og enginn sómakær hjúkrunarfræðingur
myndi giftast slíkum mönnum, segir í blað-
inu.
Það skal tekið fram að af könnuninni
mætti ætla að hjúkrunarfræðingar væru allir
kvenkyns og læknar allir karlkyns, en svo
einföld er veröldin víst ekki.
Hollvinafélag læknadeildar
Háskóla íslands
Aðalfundur og
málþing
Föstudaginn 27. nóvember næstkomandi
verður haldinn aðalfundur Hollvinafélags
læknadeildar. Fundurinn verður í Norræna hús-
inu og hefst kl. 16. A dagskrá eru venjuleg að-
alfundarstörf.
I stjórn Hollvinafélags læknadeildar sitja nú:
Arni Björnsson formaður, Helga Erlends-
dóttir, Jóhannes Nordal, Sveinn Magnússon
og Vilhelmína Haraldsdóttir. Fulltrúi lækna-
nema er Gunnhildur M. Guðnadóttir.
Klukkan 16.45 hefst síðan málþing á vegum
Hollvinafélagsins. Umfjöllunarefnið verður
staða heimilislækninga. Prófessor Jóhann Ág-
úst Sigurðsson mun stýra umræðum. Að mál-
þinginu loknu verða léttar veitingar.
Allir eru velkomnir á aðalfundinn og mál-
þingið. Þeir sem ekki eru meðlimir í Hollvina-
félagi læknadeildar geta gengið í það á staðn-
um eða haft samband við skrifstofu Hollvina-
samtakanna í Stúdentaheimilinu við Hring-
braut, sími: 551 4374, bréfasími: 551 4911,
netfang: sigstef@hi.is
Læknavefur
Nú er lokið uppsetningu lokaðs svæðis
á heimasíðu Læknafélags íslands þar
sem ætlunin er að koma upp umræðu-
hópum og síðum fyrir tilkynningar og
ýmis málefni sem einungis eiga erindi
til lækna.
Svæðið er verndað bæði með notenda-
orði og lykilorði og geta læknar einir
fengið aðgang að því. Aðgangsorð
verða persónuleg fyrir hvern og einn.
Til að fá aðgangsorð þarf að hafa
samband við Margréti Aðalsteinsdóttur
á skrifstofu Læknafélags íslands á
tölvupósti, netfang: magga@icemed.is,
í síma 564 4100 eða í bréfsíma 564
4106.