Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
861
Héraðssjúkraliúsið í Þrándheimi eins og arkitektar sjá fyrir sér að það líti út árið 2012.
Þrándheimur
Héraðssjúkrahúsið í Þránd-
heimi verður endurbyggt á
næstu 14 árum eða svo en það
er einnig háskólasjúkrahús.
Þar er um enn stærri byggingu
að ræða því alls verður svæðið
fullbyggt 167.500 fermetrar
að gólffleti. Þar af fær sjúkra-
húsið 118.500 fermetra til ráð-
stöfunar, 4.000 fermetrar fara
undir sjúkrahótel en háskólinn
fær 45.000 fermetra.
Efnt var til samkeppni um
hönnun sjúkrahússins og varð
hópur norskra arkitekta hlut-
skarpastur en hann naut ráð-
gjafar hins þekkta fyrirtækis
Emst & Young. Fyrir er á svæð-
inu einskonar Lególand eldri
og nýrri bygginga og leggja
arkitektarnir til að þær verði
allar rifnar að frátalinni gömlu
aðalbyggingunni sem er frið-
uð og einni eða tveimur öðr-
um. Meðal húsanna sem á að
rífa eru sum ekki nema 20 ára
gömul. Samningar um bygg-
inguna voru undirritaðir árið
1995 og framkvæmdir hófust í
fyrra en áætlað er að sjúkra-
húsið verði fullbyggt árið
2012. Þannig verður staðið að
framkvæmdum að sem minnst
röskun verði á starfsemi sjúkra-
hússins á byggingartímanum.
Nýi spítalinn boðar nýja
tíma í uppbyggingu sjúkrahúsa
því hún gengur þvert á hefð-
bundna skiptingu í deildir eftir
sérgreinum. Spítalinn skiptist í
sjö miðstöðvar. I miðjunni
verður kennslu- og þjónustu-
miðstöð en umhverfis hana
verða: brjóstholsmiðstöð, kvið-
arholsmiðstöð, taugamiðstöð,
mæðra- og barnamiðstöð,
stoðkerfismiðstöð og miðstöð
umhverfissjúkdóma (þar með
talin krabbamein). I hverri
miðstöð verða allir sérfræð-
ingar sem starfa á viðkomandi
sviði, hvort sem þeir fást við
greiningu eða meðferð, hand-
lækningar eða lyflækningar. I
hverri miðstöð verða bæði
rannsóknastofur, skurðstofur
og myndgreining svo dæmi sé
tekið.
LFpptökusvæði Héraðs-
sjúkrahússins í Þrándheimi er
álíka fjölmennt og Island og í
rekstraráætlun þess er gert ráð
fyrir að innlagnir verði 65.700
á ári og samskipti lækna og
sjúklinga 225.000 talsins þeg-
ar sjúkrahúsið verður fullbyggt.
Kostnaður við þennan
glæsilega spítala er áætlaður
4.250 milljónir norskra króna
en þar af fara 1.100 milljónir í
háskólahlutann. Kostnaður
við sjúkrahúshlutann verður
því á að giska 28 milljarðar
íslenskra króna. -ÞH