Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
867
Læknavaktin sf.
Samið við ráðuneytið um stærra vaktsvæði
og aukna þjónustu
- Starfsemin flyst í nýtt húsnæöi 1. desember næstkomandi
Atli Árnason stjórnarformaður (til vinstri) og Þórður Ólafsson
vaktstjóri Lœknavaktarinnar sf.
Læknavaktin sf. náði fyr-
ir skömmu samningum við
Heilbrigðisráðuneytið um
breytta skipan vaktþjónustu
á höfuðborgarsvæðinu.
Samningurinn hefur í för
með sér að vaktsvæðið
stækkar og nær nú til 165
þúsund manns, auk þess
sem vaktin flyst í nýtt hús-
næði í Smáranum í Kópa-
vogi. Þar mun Læknavaktin
taka til starfa 1. desember
næstkomandi og þjóna íbú-
um Reykjavíkur, Seltjarn-
arness, Kópavogs, Garða-
bæjar, Bessastaðahrepps og
Hafnarfjarðar. Fyrir það
greiðir ráðuneytið Lækna-
vaktinni sf. 134 milljónir
króna á ári.
Atli Arnason undirritaði
samninginn ásamt ráðherra en
Atli er stjórnarformaður
Læknavaktarinnar. Blaða-
maður Læknablaðsins hitti
hann að máli og einnig Þórð
Olafsson vaktstjóra og bað þá
að segja frá starfsemi Lækna-
vaktarinnar.
Endurreisn
heimilislækninga
„Læknavaktin sf. var stofn-
uð haustið 1986 til að sinna
neyðarþjónustu eftir klukkan
17 á kvöldin og um helgar og
var liður í endurreisn heimil-
islækninga á höfuðborgar-
svæðinu. Þá hafði um skeið
ríkt slæmt ástand í vaktamál-
um, erfitt að manna vaktir og
fólk kvartaði undan þjónust-
unni. Heimilislæknar ákváðu
því að taka þessa þjónustu að
sér og gerðu samning um það
við Sjúkrasamlag Reykjavík-
ur. Þá var sett upp vakt þar sem
hjúkrunarfræðingur eða lækn-
ir svaraði í símann og veitti
ráðgjöf en slíkt var þá algert
nýmæli sem og það að opnuð
var móttaka í Heilsuverndar-
stöðinni. Einnig var vitjana-
þjónustu lækna með bílum
haldið áfram en fyrir henni
var gömul hefð.
Heimilis- og heilsugæslu-
læknar litu á þessa starfsemi
sem hluta af starfi sínu og
skyldu við sjúklinga sína, eins
konar framlengingu á vakt-
skyldu. Það var stofnað um
hana félag sem er opið öllum
heimilis- og heilsugæslulækn-
um á höfuðborgarsvæðinu
sem vilja taka vaktir og félag-
ið hefur borið ábyrgð á rekstr-
inum. I því eru nú 36 læknar
en 45-50 læknar hafa skipt á
milli sín vöktunum. Með þessu
móti næst viss hagræðing inn-
an heilsugæslunnar því það
væri mun dýrara að halda uppi
vakt í öllum heilsugæsluum-
dæmunum."
Stærra svæði, bætt
aðstaða
- En hvað felur þessi nýi
samningur í sér? Hvað breyt-
ist?
„í fyrsta lagi stækkar vakt-