Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 853 Tryggvi Asmundsson. Jóhannes M. Gunnars- son. Vilhelmína Haralds- dóttir. Þorvaldur Veigar Guð- mundsson. sjúkrahúsanna væri fyrst og fremst tekjuvandi en ekki út- gjaldavandi. Kostnaður við rekstur þeirra hefði farið lækk- andi sem hlutfall af þjóðar- tekjum og rannsóknir sýndu að afköst væru góð og stjórn- unarkostnaður með því lægsta sem þekkist. Jóhannes sagði að engin at- hugun eða efnislegt mat hefði verið lagt á hagkvæmni sam- einingar og fyrr en það lægi fyrir væri erfitt að taka af- stöðu til sameiningar. Hann vitnaði í sænska athugun sem sýndi að ekkert samband væri á milli stærðar og hagkvæmni í rekstri sjúkrahúsa. Einnig benti hann á að sameiningar- alda sem gengið hefði yfir bandarísk sjúkrahús hefði ekki átt sér rætur í sókn eftir aukinni hagkvæmni heldur hefðu sjúkrahúsin verið að styrkja stöðu sína gagnvart tryggingafélögum. Jóhannes taldi upp helstu rökin sem notuð væru til að réttlæta sameiningu og svar- aði þeim. Hann sagði að út úr sameiningu kæmi gríðarlega stór stofnun sem velti yfir 15 milljörðum króna árlega. Sparnaður við yfirstjórnun væri óviss vegna þess að kostnaður við hana væri áber- andi lítill hér á landi í saman- burði við önnur lönd. A hinn bóginn myndu boðleiðir lengjast og hætt við að stjóm- unin yrði svifaseinni og við- mótið ópersónulegra. Varðandi nýtingu á fjárfest- ingum og mannafla sagði Jó- hannes að nýting langflestra tækja væri mikil á báðum sjúkrahúsum, auk þess sem viss tvöföldun væri nauðsyn- leg, ekki síst vegna öryggis- ins. Mönnun sjúkrahúsa væri 20-30% minni hér en á Norð- urlöndum svo vandséð væri hvar ætti að spara þar. Raunar væri bygging nýs spítala einu rökin sem mæltu með samein- ingu. Vísaði hann til þess sem gert var í Osló þar sem reistur var nýr spítali fyrir um 34 milljarða íslenskra króna en hann væri svipaðrar stærðar og hér þyrfti að reisa. Þessi upphæð samsvarar tveggja ára veltu Ríkisspítala og Sjúkra- húss Reykjavíkur. Sérhæfingin kallar á sameiningu Þorvaldur Veigar Guð- mundsson flutti erindi sem hann nefndi Fagleg og fjár- hagsleg nauðsyn sameining- ar. Hann sagði sterk rök hníga að nauðsyn sameiningar, bæði fagleg og fjárhagsleg. Með sameiningu væri hægt að ná fram betri nýtingu, tvöföldun yrði í lágmarki og möguleiki á að sameina stoðdeildir, svo sem innkaup, tölvu- og tækni- deildir, birgðahald, starfs- mannahald og fræðslu, að ógleymdu þvottahúsi sem þegar væri búið að sameina. Einnig væri hægt að flytja klínískar deildir til og sam- ræma vaktir lækna. Þorvaldur sagði að tilfinn- ingar léku stórt hlutverk í sameiningarumræðunni og nefndi sem dæmi umræðuna sem varð um að sameina alla endurhæfingu í Kópavogi og leggja niður Grensásdeild. En ef fjárhagsleg rök mæla með sameiningu þá gera þau faglegu það ekki síður, sagði Þorvaldur. Það væri í raun alveg sama hvað heilbrigðis- yfirvöld vildu, vaxandi sér- hæfing kallaði á stærri eining- ar og ræki á eftir fækkun sjúkrahúsa á landsbyggðinni. Yngri kynslóðir lækna vildu ekki fórna kostum sérhæfing- arinnar og þeir myndu því þrýsta á um sameiningu deilda svo hægt verði að koma við verkaskiptingu. Reyndin væri líka sú að á landsbyggðinni gætti aukins áhuga á sam- vinnu við stóru sjúkrahúsin, hún væri nauðsynleg til þess að hægt væri að halda uppi góðri þjónustu. Þorvaldur tók undir með Jóhannesi og Tryggva að því leyti að einn spítali undir sama þaki væri besti kosturinn. Nú- verandi rekstur á 10-12 stöð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.