Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 58
872 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 - Eruð þið búin að tryggja ykkur þessa peninga? „Nei, við erum búin að fara fram á 200 milljóna króna fjárveitingu á næsta ári til þessara mála. Eg er þeirrar skoðunar að stofnunin verði að útskýra þennan vanda vel fyrir þjóðinni, eiganda sínum, upplýsa hvað það kostar að leysa hann og leggja áherslu á mikilvægi þess að brugðist sé við. Það er hagur allra lands- manna að það sé gert.“ - í fjölmiðlun hefur komið fram að stjórnendur íslenskra fyrirtækja og stofnana geri lít- ið úr aldamótavandanum og vilji helst ekki horfast í augu við hann. A það líka við um heilbrigðiskerfið? „Eg held að augu fólks séu að opnast fyrir alvöru þessar vikurnar. Það vantar kannski að einhver gangi fram fyrir skjöldu og viðurkenni hversu mikill vandinn sé og að það þurfi að takast á við hann. Við höfum setið fundi með stjórn Ríkisspítala og sviðsstjórum hinna 11 sviða sem stofnunin skiptist í og þeir eru að skoða stöðumatið. Eg á von á því að frá þeim komi margar hug- myndir um það hvernig best verði brugðist við á hverri deild.“ í aðgerð á nýársnótt - En hvað um hinn almenna starfsmann? Nú eru starfandi um 3.000 manns hjá Ríkis- spítölum og þessi vandi snert- ir væntanlega mjög stóran hluta þeirra. Þarf ekki að fræða þá? „Jú, þetta snertir langflesta og við höfum sett fram hug- myndir um það hvernig staðið verði að því að kynna starfs- mönnum það sem er að gerast því það er mjög mikilvægt að virkja þá. Ætlunin er að setja upp vefsíðu þar sem starfs- menn og aðrir geta fylgst með stöðu mála. Við munum gera stöðumat mánaðarlega og birta það á vefsíðunni.“ - Ertu bjartsýnn á að ykkur takist að fara hnökralaust í gegnum aldamótin? „Já, ég hef fulla trú á því að hér verði allt með felldu þegar árið 2000 gengur í garð. Við höfum rætt um það í hópnum að við værum reiðubúnir að vera hér í opinni aðgerð um miðnætti á nýársnótt ef á þyrfti að halda,“ sagði Ólafur og virtist meina það. -ÞH SCHERING Mel Schering, 940261 UÍS 98-58. sept. 98 TÖFLUR: G03AA10. Hvertafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 20 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Ábendingar: Getnaðarvöm. Frábendingar: Þungun, alvarleg röskun á starfsemi lifrarinnar, gula eða þrálátur kláði við fyrri þungun, Dubin-Johnson heilkenni, Rotor heilkenni, æxli í lifur eða saga um æxli í lifur, segarek, saga um segarek eða aðstæður sem valda hættu á því, t.d. truflun á blóðstorkuþáttum, hjartalokusjúkdómar og gáttatitringur, sigðfmmublóðleysi, þekkt æxli eða saga um æxli sem kynhormónar geta haft áhrif á, t.d. krabbamein í brjósti eða legslímhúð, alvarleg sykursýki með æðabreytingum, tmflanir á fituefnaskiptum, saga um herpes,("herpes gestationis" er ákveðinn húðsjúkdómur, sem getur komið upp á meðgöngu og lýsir sér m.a. með blöðmm á húð, brengluðum lifrarprófum o.fl., versnandi kölkun í miðeyra á meðgöngutíma, blæðingar úr leggöngum af óþekktri orsök, ofnæmi fyrir einhveiju innihaldsefna Meloden. Aukaverkanir: Sjaldgæfar em höfuðverkur, magakveisa, ógleði, eymsli í brjóstum, breytingar á líkamsþyngd, breytingar á kynhvöt, þunglyndi getur komið fyrir. Hjá konum sem hafa tilhneigingu til þess, getur notkun lyfsins stundum valdið litarbreytingum í andliti (chloasma), sem aukast við sólslan. Þær konur ættu að forðast að vera lengi í sólskini. Greint hefur verið frá einstaka tilvikum af óþoli gagnvart augnlinsum við notkun getnaðarvamataflna. Þær konur sem nota linsur og verða,fyrir breyttu þoli gagnvart þeim ættu að fara í skoðun til augnlæknis. Varúð: Ástæður til að hætta notkun Meloden strax: Mígrenihöfuðverkur í fyrsta sinn, versnun á mígreni eða aukin tíðni óvenjulega mikils höfuðverkjar, skyndileg truflun á sjón eða heym eða aðrar skyntmflanir, fyrstu merki um æðasegabólgu eða segarek (t.d. óvenjulegir verkir eða þroti í fótum, stingandi verkur samfara öndun eða hósti án nokkurrar augljósrar ástæðu), verkur og þrengsli fyrir brjósti, sex vikum fyrir fyrirhugaða skurðaðgerð og meðan á rúmlegu stendur, t.d. eftir slys, skurðaðgerð, gula, lifrarbólga, kláði um allan líkamann, aukin flogaveikisköst, marktæk hækkun blóðþrýstings, alvarlegt þunglyndi, alvarlegir verkir í efri hluta kviðarhols eða stækkun lifrar, þungun. Við eftirfarandi aðstæður skal ekki nota getnaðarvamatöflur nema undir ströngu eftirliti læknis. Versni einhverjar þessara aðstæðna, getur verið ástæða til þess að hætta notkun getnaðarvamalyfsins: sykursýki eða skert sykurþol, háþrýstingur, æðahnútar, saga um bláæðabólgu, kölkun í miðeyra, MS-sjúkdómur (multiple sclerosis), flogaveiki, porfýría, kalkstjarfi (tetany), Sydenham's chorea, skert nýmastarfsemi, saga um tmflun á blóðstorknun, offita, saga um brjóstakrabbamein í fjölskyldunni og saga um hnúta í bijóstum, saga um þunglyndi, rauðir úlfar (systemic lupus erythematosus), vöðvahnútar í legi (uterine myoma) og mígreni. Að því sem best er vitað er ekki hægt að útiloka samband milli notkunar hormóna til getnaðarvama og aukinnar hættu á sjúkdómum er stafa af segareki í slagæðum og bláæðum, svo sem kransæðastífla, blóðtappi í lungum, æðasegabólga, slag eða segamyndun í sjónhimnu. Læknir skal vera á verði fyrir fyrstu merkjum um slíka sjúkdóma. Vakni gmnur um einhvem þeirra, skal strax hætta að nota Meloden. Hætta á segastíflu í slagæðum (t.d. slagi eða kransæðastíflu) virðist aukast enn þegar miklar reykingar, hækkandi aldur og notkun getnaðarvamataflna fer saman. Vegna þessa skal ráðleggja konum, sem em eldri en 35 ára og nota getnaðarvamatöflur eindregið frá því að reykja. Auk þess geta tilteknir sjúkdómar, svo sem of hár blóðþrýstingur, of há blóðfita, oífita og sykursýki aukið áhættuna hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur. Meta skal hvort æskilegt sé að nota lyfið þegar um þessa sjúkdóma er að ræða með tilliti til áhættunnar sem sjúkdómurinn veldur og ræða það við konuna áður en hún ákveður að nota lyfið. Lýst hefur verið breytingum á þéttni þríglýseríða, kólesteróls og lípóprótína í blóði samfara notkun getnaðarvamataflna. Getnaðarvamatöflur geta einnig valdið skertu sykurþoli. Lýst hefur verið hækkuðum blóðþrýsting hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur. Blóðþrýstingurinn fer venjulega aftur í eðlilegt horf eftir að hætt er að nota lyfið. Sumar konur geta orðið fyrir tíðateppu eða óreglulegum blæðingum þegar þær hætta notkun getnaðarvamataflna, einkum þegar um slíkt var að ræða áður en notkun þeirra hófst. Greina skal konum frá þeim möguleika. I sjaldgæfum tilvikum hefur orðið vart við góðkynja og enn sjaldnar illkynja lifraræxli sem geta leitt til einstakra tilvika af lífshættulegum innvortis blæðingum eftir notkun hormóna á borð við þá sem em í lyfinu. Verði vart við alvarlega verki í efri hluta kviðarhols, merki um stækkun á lifur eða blæðingar í kviðarholi, skal hafa möguleika á lifraræxli í huga við sjúkdómsgreiningu. Við fyrri rannsóknir var greint frá aukinni hættu á sjúkdómum í gallblöðru sem vom staðfestir við uppskurð, hjá þeim konum sem notuðu estrógen og getnaðarvamatöflur. Síðari rannsóknir hafa hins vegar leitt í ljós að hættan á sjúkdómum í gallblöðm sé hverfandi lítÚ. Milliverkanir: Efnasambönd sem hvetja lifrarensím svo sem barbítúröt, prímídón, hýdantóín, fenýlbútasón, rífampisín, karbamazepín og griseófúlvín geta dregið úr verkun Meloden. Skammtastœrðir: Fyrsta taflan úr Meloden pakkningunni skal tekin fyrsta dag tíðahringsins. 1 tafla á dag næstu 21 daga en síðan er 7 daga hlé. Pakkningar: 21 stk. x 3. Nánari upplýsingar í texti Sérlyfjaskrár. Handhafi markaðsleyfis: ScheringAG. Umboðsmaður á íslandi: Thorarensen Lyf ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.