Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.1998, Side 87

Læknablaðið - 15.11.1998, Side 87
Langtíma verkjastílling! Durogesic FORÐAPLÁSTUR; N02AB03 X R E Eiginleikar: Forðaplásturinn er ætlaður til samfelldrar meðferðar með fentanýli. Fentanýl er sterkt morfínlyf sem fyrst og fremst binst (i-viðtökum. Abendingar: langvinnir verkir, af völdum illkynja sjúkdóma, sem eru næmir fyrir morfínlyfjum. Frábendingar: Slævð öndun. Varúð: Aukinn heilaþrýstingur, minnkuð meðvitund, meðvitundarleysi og órói í kjölfar neyslu áfengis og svefnlyfja. Hægur hjartsláttur. Astmi. Slímsöfnun í lungum. Samtímis notkun annarra slævandi lyfja. Fylgjast þarf náið með sjúklingum með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi svo og öldruðum sjúklingum og sjúklingum í kröm. Meðganga og brjóstagjöf: Morfínlyf geta hamið öndun hjá nýburum. Ef um langvarandi notkun lyfsins á meðgöngu hefur verið að ræða má gera ráð fyrir fráhvarfseinkennum hjá baminu eftir fæðinguna. Fentanýl berst í brjóstamjólk í nægilegu magni til þess að hafa áhrif á bamið, jafnvel þó að gefnir séu venjulegir skammtar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir em ógleði/uppköst (28%) og syfja (23%). Alvarlegasta aukaverkunin er hömlun öndunar og er skammtaháð, en þessi aukaverkun er sjaldgæf hjá sjúklingum, sem myndað hafa þol gegn morfínlyfjum. Algengar (>1%): Almennar: Kláði. Hjarta- og œðakerfi: Lágur blóðþrýstingur, hægur hjartsláttur. Miðtaugakerfi: Syfja, rugl, ofskynjanir, sæluvíma. Hömlun öndunar. Meltingarfæri: Ogleði, uppköst, hægðatregða. Húð: Erting í plástursstæðinu (roði, kláði, útbrot). Þvagfœri: Þvagteppa. Húðertingin hverfur venjulega innan sólarhrings eftir að plástur hefur verið fjarlægður. Sjúklingar, sem fá morfínlyf, geta myndað þol og einnig orðið háðir lyfinu. Milliverkun: Fentanýl samverkar með barbítúrsýmlyfjum. Skammtastærðir handa fullorðnum: Skömmtun er einstaklingsbundin og byggir á almennu ástandi sjúklings svo og á fyrri sögu um notkun morfínlyfja. HaFi sjúklingur ekki fengið sterk morfínlyf áður ber að stilla inn stuttverkandi morfínlyf fyrst og síðan breyta þeim skammti yfir í Durogesic. Skammtur lyfsins er svo endurskoðaður með jöfnu millibili þar til æskilegum áhrifum er náð. Þegar breytt er úr morfínlyfjum til inntöku eða stungulyfjum yfir í Durogesic skal nota eftirfarandi til leiðbeiningar: 1. Leggið saman notkunina á sterkum verkjalyfjum síðasta sólarhring. 2. Ef sjúklingurinn hefur notað annað lyf en morfín, breytið þá yfir í jafngildis- skammt (sjá sérlyfjaskrá) af morfíni til inntöku. 3. Notið töflu (sjá sérlyfjaskrá) til þess að ákveða upphafsskammt Durogesic og miðið við morfínskammt til inntöku á sólarhring. (90 mg af morfíni til inntöku á dag er sambærilegt við Durogesic 25 míkróg/klst. Þannig skal nota Durogesic 50 míkróg/klst. ef morfínskammtur til inntöku er 135-225 mg/sólarhring). Skipta skal um plástur eftir 72 klst. Hæfilegur skammtur fyrir hvem einstakling er fundinn með því að auka skammtinn þar til verkjastillingu er náð. Fáist ekki nægjanleg verkun af fyrsta plástri, má auka skammtinn eftir 3 daga. Síðan er unnt að auka skammtinn á þriggja daga fresti. Þurfi sjúklingurinn meira en 100 míkróg/klst. má nota fleiri en einn plástur í senn. Durogesic skal líma á efri hluta lfkamans eða á upphandlegg og á ógeislaða, slétta, og heilbrigða húð. Ef hár em á staðnum ber að klippa þau af en ekki raka en hárlaus svæði em æskilegust. Ef þvo þarf svæðið áður en plásturinn er settur á, skal gera það með hreinu vatni. Ekki má nota sápu, olíu, áburð eða önnur efni sem geta ert húðina eða breytt eiginieikum hennar. Þegar skipt er um plástur skal hann settur á annan stað. Fyrri stað má ekki nota fyrr en eftir nokkra sólarhringa. Skammtastærðir handa börnum: Lítil reynsla er af notkun lyfsins til meðferðar hjá bömum.Athugið: Durogesic á ekki að nota gegn bráðaverkjum eða verkjum eftir skurðaðgerðir. Pakkningar og verð (1.4.1998): Forðaplástur 25 míkróg/klst.: 10 cm 2x5 stk. - 5967 kr. Forðaplástur 50 míkróg/klst.: 20 cm 2x5 stk. -10428 kr. Foröaplástur 75 míkróg/klst.: 30 cm 2x5 stk. - 14060 kr. Forðaplástur 100 míkróg/klst.: 40 cm 2x5 stk. - 17052 kr. THORARENSEN LYF Vainagarðar 18 • 104 Rcykjavik ■ Simi 568 6044 ^JANSSEN-CILAG

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.