Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1999, Page 55

Læknablaðið - 15.04.1999, Page 55
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 327 Á þessu ári, 11 árum eftir greiningu krabba- meinsins, fór sjúklingur til heimilislæknis vegna verkja í hægri síðu. Hann var sendur í sneiðmynd af kviði sem sýndi eðlilega lifur en hins vegar hnút neðst í hægra lunga. Sá hnútur var fjar- lægður og reyndist einnig vera nýmakrabbamein. Farið er í gegnum fræðin til samanburðar. E-38. Brottnám legs með kviðsjá. Fyrstu 40 aðgerðirnar á kvennadeild Landspít- alans Jens A. Guðmiindsson', Ragnheiður Baldurs- dóttir2, Guðmundur Arason', Hafsteinn Sœ- mundsson', Auðólfur Gunnarsson' Frá 'kvennadeild Landspítalans, 2kvinneklini- ken Ullevál Sykehus, Osló Inngangur: Brottnám legs er ein algengasta aðgerð sem konur gangast undir og á Islandi öllu eru gerðar um 400 slíkar aðgerðir árlega. I meirihluta tilvika er um að ræða góðkynja sjúkdóma í legi, en í tæplega 10% tilvika er um illkynja sjúkdóma að ræða. Við góðkynja sjúk- dóma er leg fjarlægt um leggöng eða með kvið- skurði. Með kviðsjártækni má framkvæma hluta brottnámsaðgerðar með kviðsjá og taka leg síðan neðan frá (laparoscopically assisted vaginal hysterectomy=LAVH) eða framkvæma alla aðgerðina með kviðsjá (laparoscopic hys- terectomy=LH, laparoscopic subtotal hysterec- tomy=LASH). Helstu kostir við kviðsjárað- gerðir eru taldir minna álag fyrir sjúkling og fljótari bati eftir aðgerð, en helstu ókostirnir eru langur aðgerðartími og kostnaður við að- gerð. Fyrsta tilraun til slíkrar aðgerðar á kvenna- deild Landspítalans var gerð í lok árs 1993. Tilgangur þessarar könnunar var að lýsa fyrstu reynslu af brottnámi legs með kviðsjá á kvennadeild Landspítalans. Efniviður og aðferðir: Sjúkraskrár allra kvenna, sem gengust undir brottnám á legi með kviðsjá á kvennadeild Landspítalans á árunum 1993-1996, voru skoðaðar. Kannaðar voru ábendingar, tegundir aðgerða, aðgerðatími, legutími, veikindaleyfi eftir aðgerð og fylgi- kvillar. Niðurstöður: Fjörtíu aðgerðir voru fram- kvæmdar, en í tveimur tilvikum (fyrstu og 22.) var aðgerðinni breytt í opna aðgerð (conver- sion). Meðalaldur kvennanna var 47,2 ár (33- 63). Aðalábendingar voru: 18 blæðingatruflan- ir, 13 vöðvahnútar, þrjú blæðingavandamál á hormónauppbótarmeðferð, tveir tíðaverkir, ein kirtil- og vöðvavilla (adenomyosis), tvær frumubreytingar á leghálsi (dysplasia/CIN) og ein legslímuvilla (endometriosis). Aðgerðinar voru: a) LAVH=15, b) LASH=23 og c) breytt í opna aðgerð=2. Aðgerðartími: 80-220 mínútur; miðgildi= 140 mínútur. Legutími: 2-26 dagar; miðgildi= fimm dagar (40 konur). Veikindatími var 11- 103 dagar; miðgildi= 28 dagar (24 konur). Fylgikvillar eftir aðgerð voru sjö minniháttar og þrír alvarlegir. Ekkert langvarandi heilsu- tjón hlaust af fylgikvillum aðgerða. Síðustu 14 aðgerðirnir voru án fylgikvilla. Ályktanir: Brottnám legs með hjálp kviðsjár virðist leiða til styttri legutíma og veikinda- leyfis en gerist við kviðskurð, en aðgerðartími var lengri. Verulegur ávinningur virðist vera að styttri legutíma og veikindaleyfi, sem endur- speglar minni óþægindi eftir kviðsjáraðgerðir, en gera þarf frekari samanburðarrannsóknir. E-39. Gallvegalokun. Sjúkratilfelli greind á Landspítalanum 1936-1999 Jóhann Ragnar Guðmundsson, Guðmundur Bjarnason Frá skurðdeild Barnaspítala Hringsins Gallvegalokun (biliary atresia) er sjaldgæfur sjúkdómur en er þó algengasta orsök stíflugulu utan lifrar í nýburum og aðalorsök lifrar- ígræðslu barna. Á íslandi hafa nokkrir sjúk- lingar verið greindir á Landspítalanum síðan 1936 en ekki verið farið yfir afdrif þeirra sér- staklega áður. I þessari rannsókn, sem er afturskyggn, verður meðferð og afdrif sjúklinganna skoðuð, notast verður við sjúkraskýrslur Landspítalans frá 1936-1999 og farið í gegnum þær. Niðurstöður verða kynntar á þinginu. E-40. Lærleggsbrot hjá börnum Yngvi Olafsson Frá hœklunarlœkningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Á síðari árum hefur í auknum mæli verið far- ið að meðhöndla lærleggsbrot hjá börnum með skurðaðgerð. Hefur sú tilhneiging haldist í hendur við framfarir sem orðið hafa í meðferð slíkra brota hjá fullorðnum en um leið tak- markast af eðlilegri varkárni þar sem meðferð slíkra brota án aðgerðar lijá börnum hefur verið í tiltölulega föstum skorðum og gefist vel. Á síðustu tveimur árum höfum við á Sjúkra- húsi Reykjavíkur meðhöndlað sex börn með lærleggsbrot með lokaðri réttingu og ytri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.