Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1999, Page 60

Læknablaðið - 15.04.1999, Page 60
332 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Inngangur: Áratugir eru liðnir síðan farið var að nota lendarutanbastsdeyfingu með stað- deyfilyfjunt. Okostir þeirrar meðferðar voru fylgikvillar og ófullkomin verkjastilling við efri kviðar- og brjóstholsaðgerðir. Með aukinni þekkingu á lyfjafræði og líffærafræði var farið að nota blöndu ýmissa lyfja, sem áhrif höfðu á viðtæki mænunnar. Með þessu móti mátti minnka mjög tíðni fylgikvilla, auka verkjastill- ingu og bæta þar með andlega og líkamlega líð- an sjúklinga. Með tilkomu þriggja lyfja utan- bastsmeðferðar (búpívakaín 0,1 mg/ml, fent- anýl 2 ug/ml. adrenalín 2 pg/ml) má fá fram góða verkjastillingu með fáum aukaverkunum. Forsenda þessarar meðferðar er að leggur sé staðsettur sem næst verkjasegmenti mænu. Á síðustu þremur árunt hefur svæðisbundinni þriggja lyfja utanbastsmeðferð verið beitt með góðum árangri til verkjastillingar stærri að- gerða á handlækningadeild Landspítalans og hefur árangur við þá meðferð verið kannaður með tilliti til staðsetningar leggjar. Efniviður og aðferðir: Alls voru 1.033 sjúk- lingar í úttektinni. Skráður var nákvæmlega á eftirlitsblaði á fjögurra klukkustunda fresti ár- angur verkjameðferðar og fylgikvilla sem og skerðing á hreyfigetu. Hreyfigeta var metin samkvæmt kvarða Bromage frá 0-3. Staðsetn- ing leggjar á lendarsvæði eða brjóstholssvæði var borin saman við hreyfigetu sjúklinga. Niðurstöður: I þeim tilfellum þar sent leggur var lagður á brjóstholssvæði yfir viðkomandi verkjasegmenti var hreyfigeta >2 í 1,9% til- fella. Þar sem leggur hafði verið lagður á lend- arsvæði reyndust 21,4% sjúklinga hafa hreyfi- getu >2. Þegar borin var saman staðsetning leggjar og aðgerðarform var í öllum tilfellum um verulegan mun á hreyfigetu að ræða brjóst- holsstaðsetningu í liag. Við brjóstholsaðgerðir var enginn sjúklinga með kvarða >2, enda eng- inn leggur lagður á lendarsvæði. Ályktanir: Mikilvægt er að leggja deyfingu yfir þeim stað afturhorns mænu, þar sem búast má við að ífarandi verkjaboð komi inn og mið- ast það við staðsetningu aðgerðar. Aldrei skal þó leggja deyfinguna neðar en L-l. Ranglega staðsettur leggur þýðir skert hreyfigeta, meira magn lyfja, meiri ógleði, lengri rúmlega, lengri þvagleggjarþörf og óánægður sjúklingur. S-5. Þriggja lyfja svæðisbundin verkja- meðferð á Landspítalanum. Lýst tveimur sjúkratilfellum Gísli Vigfússon, Eiríkur Benjamínsson, Oddur Fjalldal, Jón Sigurðsson Frá svœfingadeild Landspítalans Á handlækningadeildum Landspítalans hef- ur verið veitt þriggja lyfja svæðisbundin utan- bastsverkjameðferð (búpívakaín 0,1 mg/ml, fentanýl 2 pg/ml, adrenalín 2 pg/ml) um þriggja ára skeið. Þessi meðferð var í lok árs 1995 kynnt meðal starfsfólks deildanna. Sjúk- lingum var fylgt eftir af lækni gjörgæsludeildar og verkjahjúkrunarfræðingi. Árangur meðferð- ar var tölvuskráður og meðferðin, skráningin og eftirlitið bætt eftir því sem hnökrar komu fram. Ýmis vandamál geta komið upp við með- ferðina, sem oftast eru smávægileg. Oftast eru þau tæknilegs eðlis, ófullkomin verkastilling eða fylgikvillar lyfjanteðferðar. Á árinu 1998 komu upp tvö óvenjuleg tilfelli annað tæknilegs eðlis en hitt vegna verkja. Sjúkratilfelli 1: Ung kona, sem átti að fara í æðaaðgerð, fékk utanbastslegg lagðan á bjóst- holssvæði. Fremur illa gekk að koma leggnum fyrir, sjúklingur var órólegur og fattur í baki. Það tókst þó að lokum og sjúklingur fékk góða verkjastillingu eftir aðgerð. Eftir meðferð, þeg- ar fjarlægja átti legginn, var hann fastur hvern- ig sem togað var í hann. Sjúklingur var látinn beygja sig fram og til hliðar, í sitjandi og liggj- andi stöðu án árangurs. Brugið var á það ráð að sprauta skuggaefni í legginn og virtist hann mynda slaufu utan við utanbastsrými. Haft var samband við bæklunarlækni og var fyrirsjáan- legt að gera þyrfti aðgerð til að fjalægja legg- inn. Skömmu fyrir aðgerð var enn reynt að toga í legginn og sjúklingur nú látinn sitja og mynda öfuga kryppu og brá þá svo við að leggurinn rann auðveldlega út. Sjúkratilfelli 2: Eldri karlmaður með slæma slitgigt í mjöðm átti að fá gervilið. Tekin var röntgenmynd af lungum fyrir aðgerð og kom í ljós illkynja æxli og fór sjúklingur því í aðgerð á lunga. Lagður var brjóstholsutanbastsleggur fyrir aðgerð og gekk það vel. Eftir aðgerð fékk sjúklingur hefbundna þriggja lyfja utanbasts- meðferð og var hann að heita verkjalaus á að- gerðarsvæði. Hins vegar hafði hann slæman verk frá mjöðm, sem hélt fyrir honum vöku. Bæði sjúkratilfelli eru lærdómsrík. Það fyrra sýnir að oftast er hægt að ná út utanbastslegg ef sjúklingur er látinn liggja í þeirri stöðu sem leggurinn var lagður í, þótt óvenjuleg sé. Hitt tilfellið staðfestir svæðisbundna verkun þriggja lyfja verkjameðferðarinnar og mikilvægi þess
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.