Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Qupperneq 14
HAFNAMAL
Hermann Gu&jónsson, hafnamálastjóri
Hlutverk Hafnamála-
stofnunar ríkisins —
fjárveitingar til hafnamála
Hlutverk Hafnamála-
stofnunar ríkisins
Bygging og rekstur hafna er
verkefni, sem stjórnvöld ætla
sveitarfélögunum að sinna.
Rekstur hafnanna er alfarið mál
sveitarfélaganna. Með setningu
hafnalaga hefur rikisvaldið hins
vegar tekið að sér að styðja við
bakið á sveitarfélögunum, þegar
um nýbyggingu hafnarmannvirkja
er að ræða. Stuðningi þessum má
í aðalatriðum skipta í þrennt:
Þar ber fyrst að nefna fjárfram-
lög, er nema ákveðnu hlutfalli af
byggingarkostnaði.
í öðru lagi er um að ræða frum-
rannsóknir, en þær eru að fullu
kostaðar af ríkissjóði. Með frum-
rannsóknum er m.a. átt við gerð
grunnkorta af hafnarsvæðum,
jarðvegsathuganir, öldumælingar,
straumfræðirannsóknir, líkantil-
raunir og hagkvæmniathuganir.
Þegar rannsóknir eru komnar á
það stig, að unnt er að taka
ákvarðanir um staðarval mann-
virkis, gerð, styrkleika og bygg-
ingarefni, telst frumrannsóknum
lokið. Ríkisvaldið hefur talið eðli-
legt að taka að sér þetta verkefni
til að jafna aðstöðu sveitarfélag-
anna, auk þess sem hér er um
mjög sérhæfðar rannsóknir að
ræða, sem vart getur talizt hag-
kvæmt að byggja upp aðstöðu og
mannafla fyrir, nema á einum stað.
Frumrannsóknir þurfa ekki að
leiða til hafnargerðar; þær geta
verið tímafrekar og dýrar, allt eftir
staðháttum.
í þriðja lagi er stuðningurinn í
því fólginn, að ríkið tekur að sér að
reka sérhæft verktaka- og ráð-
gjafarfyrirtæki, sem skal hafa yfir
að ráða sérhæfðum tækjum og
mannafla, er getur annazt hönnun
mannvirkja og framkvæmdir í
ákveðnum tilvikum. Verktakafyrir-
tækinu er ætlað að sinna fram-
kvæmdum, sem krefjast tækja-
búnaðar og verkreynslu, sem ekki
er til á almennum markaði, og jafn-
framt að hafa umsjón með fram-
kvæmdum fyrir lítil sveitarfélög, er
ekki hafa bolmagn til að standa
fyrir framkvæmdum sjálf. Á sama
máta er ráðgjafarþjónustan
hugsuð til þess að sinna hönnun
og skipulagningu sérhæfðra verka
í ákveðnum tilvikum, svo og til
þess að aðstoða lítil sveitarfélög,
sem ekki hafa tæknideildir innan
sinna vébanda.
Hafnamálastofnun ríkisins er sú
stofnun, sem ætlað er að sinna
umræddum hlut ríkisins í fram-
kvæmd hafnamála.
Þótt meginhlutverk Hafnamála-
stofnunar sé að veita sveitarfélög-
unum þjónustu, eins og áður
sagði, er annað hlutverk hennar
að veita ríkisvaldinu þjónustu sína.
Stærstu liðirnir í þessari þjónustu
eru eftirfarandi:
í fyrsta lagi að safna saman á
óhlutdrægan hátt upplýsingum um
þær kröfur, sem gerðar eru til
hverrar einstakrar hafnar, svo og
upplýsingum um gæði hafnarinnar
eða getu til þjónustu. Einnig upp-
lýsingum um ástand hafnarmann-
virkja og rekstrarafkomu einstakra
hafna. Þessar upplýsingar ásamt
frumrannsóknum nýtast síðan við
gerð skipulagstillagna að hafnar-
svæðum og sem undirstaða áætl-
anagerðar. Skoðun mín er sú, að
þungamiðjan í áætlanagerð stofn-
unarinnar skuli vera uppsetning
samræmds mælikvarða fyrir allar
hafnir landsins, sem síðan yrði til
þess að auðvelda stjórnvöldum að
vega og meta óskir einstakra
hafnarstjórna um framlög til
hafnargerðar.
í öðru lagi skal Hafnamálastofn-
un hafa eftirlit með hafnarfram-
kvæmdum, er njóta ríkisstyrks.
Tilgangur þessa eftirlits er, að
hafnarmannvirki uppfylli lág-
markskröfur um gæði og öryggi
svo og, að þeir fjármunir, sem
ríkið veitir til hafnamála, nýtist sem
bezt. Verki þessu lýkur síðan með
gerð skýrslu um framkvæmdir
hvers árs, sem skilað er til sam-
gönguráðherra.
Starfsemi
Hafnamálastofnunar
Eftir að ég hefi í stuttu máli gert
grein fyrir skoðun minni á, hvert
hlutverk Hafnamálastofnunar sé,
vil ég snúa mér að skipulagi
stofnunarinnar og starfseminni,
sem þar fer fram.
Síðustu mánuðina hafa orðið
nokkur mannaskipti í starfsliði
stofnunarinnar, og eru þau skipti
ekki að fullu um garð gengin enn-
60 SVEITARSTJÓRNARMÁL