Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Qupperneq 15
HAFNAMÁL
Lenging stálþilsgards í Sandgerðishöfn á árinu 1985.
þá. Slík mannaskipti hafa ugglaust
alltaf einhverjar breytingar í för
meö sér. Skipting stofnunarinnar I
deildir hefur verið í endurskoöun,
og í október 1986 samþykkti
hafnaráö uppkast að skipuriti, þar
sem gert er ráö fyrir, að stofnun-
inni sé skipt í fjórar deildir, þ.e.:
1. Fjármáladeild.
2. Framkvæmdadeild.
3. Tæknideild.
4. Rannsóknadeild.
Deildaskipting þessi er síðan
sett fram í nýrri reglugerð um
hafnamál, sem birt hefur verið í
Stjórnartíðindum og er númer
494/1986.
Ætlunin er, að starfsemin í
hverri deild verði sem hér segir:
Fjármáladeild
Fjármáladeild er ætlað að sinna
annars vegar skrifstofuhaldi og
hins vegar uppgjöri framkvæmda
og fjármálastjórn. Auk þess falla
undir þessa deild verkefni eins og
starfsmannahald, skjalavistun og
ritaraþjónusta. Pá sinnir deildin
einnig tilsvarandi verkefnum fyrir
Vitastofnun íslands, en, eins og
bæði vitalög og hafnalög gera ráð
fyrir, skulu þessar tvær stofnanir
hafa með sér samstarf. Skrifstofu-
stjóri er Sigurður Ingi Kristinsson,
viðskiptafræðingur, en Sigurður
Örn Sigurðarson, viðskiptafræð-
ingur, sem einungis er í hálfu
starfi, annast uppgjör fram-
kvæmda. Ætlunin er að breyta því
starfi í fullt starf, sem þá einnig
fæli í sér fjármálastjórn fram-
kvæmda og samskipti við sveitar-
stjórnir, hvað varðar fjármögnun
og uppgjör framkvæmda. Sótt
hefur verið um, að þessi staða
verði auglýst laus til umsóknar.
Framkvæmdadeild
Framkvæmdadeild er ætlað að
annast þá verktakastarfsemi, sem
stofnuninni er falið að sinna. Undir
þá deild fellur rekstur sérhæfðra
tækja, svo sem dýpkunartækja og
rektækja fyrir stálþil. Einnig þeir
verkstjórar og vinnuflokkar, sem
vinna við hafnarframkvæmdir úti á
landi. Með öðrum orðum sér
deildin um að skipuleggja og hafa
umsjón með þeim verkum, sem
unnin eru með eigin tækjum og
mannafla. Deildarstjóri fram-
kvæmdadeildar er Gústaf Jóns-
son, tæknifræðingur, og honum til
aðstoðar Jóhannes Sverrisson,
tæknifræðingur.
Tæknideild
Tæknideild er ætlað að annast-
undirbúning og umsjón fram-
kvæmda. Með undirbúningi fram-
kvæmda er m.a. átt við samráð við
sveitarstjórnir, áætlanagerð,
skipulag hafnarsvæða, hag-
kvæmnisathuganir og frumhönn-
Bygging stálþilsbryggju á Flateyri sumarið 1986.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 61