Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Qupperneq 45
ATVINNUMÁL
Sérfjárveitingar til fiskeldis
á vegum Orkustofnunar
Fyrir fjárlög ársins 1987 sótti
Orkustofnun um sérstaka fjárveit-
ingu til verkefna, sem varða nátt-
úrulegar forsendur fiskeldis, eins
og nánar er fjallað um í áður-
nefndri grein.
Við afgreiðslu fjárlaga veitti Al-
þingi 10,7 mkr. til sérverkefnanna,
og auk þess veitti iðnaðarráðu-
neytið 3,76 mkr. til verkefna í
Öxarfirði. Að uppfylltum skilyrðum
um mótframlög frá Orkustofnun
og hagsmunaaðilum verða til
ráðstöfunar 21,22 mkr. til sérverk-
efnanna, þar af 4,76 til Öxarfjarð-
arverkefnisins, sem var í samræmi
við áform um það verkefni. Að
öðru leyti var fjárhæðin talsvert
lægri en um var sótt til verkefn-
anna í heild. Orkustofnun taldi, að
þessum fjárhæðum yrði bezt varið
til rannsókna á varma- og fersk-
vatnsöflun til fiskeldis, auk athug-
unar á möguleikum til sjávaröflun-
ar á hraunströndinni milli ósa
Þjórsár og Ölfusár. Ennfremur
taldi Orkustofnun, að þessu fé
skyldi varið þannig, að hægt yrði
að ná aðstefndum markmiðum á
þeim svæðum, þar sem rannsókn-
ir færu fram. Óhjákvæmilega urðu
því nokkur svæði útundan að
þessu sinni miðað við þær áætl-
anir, sem voru kynntar hagsmuna-
aðilum á seinasta ári. Þau svæði,
sem urðu fyrir valinu, eru: Ölfus-
Grafningur, uppsveitir Árnes- og
Rangárvallasýslu (Biskupstungur,
Hreppar og Land), Vestur-Skafta-
fellssýsla, Skagafjörður (innsveit-
ir), Vestfirðir (Inn-Djúp, svæðið
sunnan Arnarfjarðar og Bjarnar-
fjörður), auk hraunstrandarinnar í
Flóa, sem áður er getið, og Öxar-
fjarðar.
Þessi svæði eru annars vegar,
þar sem vitað er um mikla mögu-
leika á hagkvæmri öflun varma og
ferskvatns, svo sem á Suðurlandi,
og hins vegar svæði, þar sem vit-
að er um möguleika á annaðhvort
varma- eða ferskvatnsöflun, en
upplýsingar um hinn þáttinn eru af
skornum skammti. Þannig virðist
ferskvatnsöflun vera örðug á
Vestfjörðum. í V-Skaftafellssýslu
er víða talið auðvelt að afla fersk-
vatns, en litlar rannsóknir hafa enn
verið gerðar á jarðhita. I Skagafirði
er víða jarðhiti í innsveitum, en lit-
ið hefur verið hugað að nýtingu,
og margt er óljóst um ferskvatns-
öflun. í Þorlákshöfn hefur gengið
greiðlega að ná sjó undan hraun-
lögum, sem ganga í sjó fram. Á
ströndinni austan Ölfusárósa gera
menn sér vonir um svipaðar að-
stæður.
Námskeió ætlaö
konum á Noröurlandi
um stofnun og
rekstur fyrirtækja
Akureyrarbær stendur ásamt
fleiri aðilum að námskeiði, sem er
ætlað konum á Norðurlandi, sem
hafa hug á að stofna til eigin at-
vinnurekstrar.
Hér er um að ræða norrænt
verkefni á vegum norrænu ráð-
herranefndarinnar um fjölbreyttari
atvinnuþátttöku kvenna, en sam-
starfsaðilar bæjarins um fram-
kvæmd þessaeru Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar, iðnaðarráðuneytið,
Iðntæknistofnun, Byggðastofnun
og Sænska byggðastofnunin.
Þetta er fyrsta tilraunin hér á landi
með slíkt námskeið, en á höfuð-
borgarsvæðinu hefur starfað um
skeið áhugahópur um þróunar-
verkefni um stofnun smáfyrirtækja
ætlað konum. Það er skilyrði fyrir
þátttöku á námskeiðinu, að kon-
urnar hafi í hyggju að stofna fyrir-
tæki, og er ætlazt til, að þær vinni
að því, meðan á námskeiðinu
stendur, að koma hugmynd sinni í
framkvæmd.
Námskeiðið stendur yfir þrjár
helgar frá fyrstu helgi apríl-
mánaðar til fyrri hluta júní. Til þess
er ætlazt, að þátttakendur myndi
með sér hópa, sem starfa milli
námskeiðshlutanna, og að þátt-
takendur veiti þannig hver öðrum
stuðning. Konunum býðst einnig
ráðgjöf frá fagfólki milli nám-
skeiðshlutanna og í 3 - 4 mánuði,
eftir að námskeiðinu lýkur.
Verkefni þetta er norrænt og er
nefnt Brjótum múrana - Bryt - og
er tilgangur þess jöfnum höndum
að auka fjölbreytni í starfsvali
kvenna og að efla atvinnulíf í
byggðum landsins. Hugmyndir
eru uppi um, að fleiri slík nám-
skeið fylgi í kjölfarið.
Umsjón með námskeiðinu hefur
Valgerður Bjarnadóttir, fv. bæjar-
fulltrúi á Akureyri, og ber að til-
kynna henni þátttöku i sima 26845
á Akureyri.
Nokkru áður en námskeiðið
hefst verður haldinn fundur til
kynningar á því. Kvaðst Valgerður
í samtali við Sveitarstjórnarmál
vilja hvetja konur á Norðurlandi til
þess að hugsa djarft og koma á
þann fund og kynna sér, hvað um
er að ræða og að hugsa síðan
málið.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 91