Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Qupperneq 36
LANDSHLUTASAMTÖKIN
32. fjórdungsþing Vestfirðinga:
Róttæk byggðaáætlun
fyrir Vestfirði
Á 32. fjórðungsþingi Vestfirð-
inga, sem haldið var á ísafirði 22.
og 23. ágúst sl., var í ályktun
þökkuð sú ákvörðun stjórnar
Byggðastofnunar að taka höndum
saman við Fjórðungssamband
Vestfirðinga um að gera róttæka
byggðarþróunaráætlun fyrir Vest-
firði. Var stjórn sambandsins og
framkvæmdastjóra falið að leggja
fram allt það starf og fjármuni, sem
mögulegt er, til þess að hraða og
vanda gerð slíkrar áætlunar. Heitið
var á stjórnvöld að gefa fyrirheit
um aðgerðir, sem nauðsynlegar
teljast, til þess að slík áætlun kom-
ist í framkvæmd, heitið var á þing-
menn kjördæmisins að fylgja eftir
af einurð þeim tillögum, sem
gerðar yrðu til þess að efla og
auka byggð á Vestfjörðum og loks
voru einstakar sveitarstjórnir
hvattar til þess að vera virkar við
stefnumótun og gerð áætlunarinn-
ar.
Varðandi einstakar framkvæmd-
ir á Vestfjörðum var ályktað um
gerð frumáætlunar um kostnað við
gerð jarðganga milli byggðarlagaá
norðanverðum Vestfjörðum, þ.e. á
milli Önundarfjarðar, Súganda-
fjarðar og Skutulsfjarðar, og þing-
ið ályktaði, að einn allra áhrifarík-
asti þátturinn í að treysta og efla
byggð á Vestfjörðum sé að stór-
bæta samgöngur á landi. Sé það
markmið, sem allir Vestfirðingar
verði að sameinast um.
Á þinginu var ályktað um tíma-
setta áætlun um byggingu nýrrar
ferju yfir Breiðafjörð og hafnarað-
stöðu á Brjánslæk og í Stykkis-
hólmi vegna hennar. Um atvinnu-
mál var ályktað um hval- og sel-
veiðimál, um leigu á framleiðslu-
rétti jarða og um bætta rekstrar-
stöðu útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækja i fjórðungnum.
Efling ferðaþjónustu
Annað helzta málefni fjórðungs-
þingsins voru ferðamál, og flutti
Birgir Þorgilsson, ferðamálastjóri,
framsöguerindi um þau. Taldi
hann Vestfirðinga eiga mikla
möguleika á sviði ferðamála vegna
sérstöðu landshlutans í ýmsum
efnum. Aðstaða hefði batnað með
tilkomu hins nýja vegar yfir Stein-
grímsfjarðarheiði, og bættar sam-
göngur í fjórðungnum væru for-
senda aukinna umsvifa í ferða-
þjónustu. í ályktun þingsins um
ferðamál voru sveitarstjórnar-
menn á Vestfjörðum hvattir til
þess að taka höndum saman við
þá, sem hafa atvinnu af ferðaþjón-
ustu, um að nýta sem bezt þá
fjármuni, sem tiltækt er að verja til
ferðamála, og lögð var áherzla á
markvissa leiðbeiningarstarfsemi
til handa þeim, sem ætla að starfa
að ferðamálum.
Stjórn sambandsins og fram-
kvæmdastjóra var á þinginu falið
að hefjast nú þegar handa við að
láta gera almenna úttekt á þeim
möguleikum, sem fyrir hendi eru
til uppbyggingar á ferðamálum í
fjórðungnum. Að þeirri könnun
lokinni verði á næsta fjórðungs-
þingi tekin ákvörðun um frekari
aðgerðir.
Tveggja ára átak í
skólamálum
Pétur Bjarnason, fræðslustjóri,
flutti framsögu um annað megin-
mál fjórðungsþingsins, sem var
bætt skipulag skólamála á Vest-
fjörðum.
í ályktun þingsins voru sveitar-
stjórnir á svæðinu hvattar til þess
að beita sér fyrir tveggja ára
myndarlegu átaki í skólamálum í
samráði við fjórðungssambandið,
fræðsluskrifstofu og Kennarasam-
band Vestfjarða. Starfstími grunn-
skóla verði samræmdur og verði 9
mánuðir á ári og allir níundu bekkir
verði starfræktir á öllum stærri
þéttbýlisstöðunum í framtiðinni.
Skiptikennsla leggist af. Áherzla
var lögð á, að vestfirzkir unglingar
sæki nám innan fjórðungsins að
svo miklu leyti, sem það stendur
þeim til boða, og stuðli sveitar-
stjórnir að því með fyrirgreiðslu
varðandi ferðir og upplýsinga-
miðlun.
Jónas Ólafsson, oddviti Þingeyrar-
hrepps, formaöur Fjórðungssam-
bands Vestfiröinga.
Lagt var til, að fræðsluráð skipi
þriggja manna framkvæmdanefnd,
sem vinni með sveitarstjórnum að
þessu átaki í skólamálum með
eftirliti, samræmingu og kynningu
á starfinu.
Loks var í annarri ályktun hvatt
til bættrar aðstöðu Núpsskóla og
minnt á það menningarlega gildi,
82 SVEITARSTJÓRNARMÁL